Víkurfréttir - 07.10.2020, Qupperneq 16
Appelsínugular vegan sápur og snúðar með appelsínugulu kremi standa Suðurnesja-
mönnum til boða í árlegu átaki Soroptimistaklúbbs Keflavíkur frá 25. nóvember. Átakið er
alþjóðlegt og heitir „Roðagyllum heiminn“. Konurnar í klúbbnum hófu undirbúning í vikunni
þegar þær fóru í sápugerð undir handleiðslu Ólafs Árna Halldórssonar í Sápunni en hann
leggur fram vinnu sína, uppskriftir, tæki og tól til framleiðslu á sápunum.
Í fyrra tók Soroptimistaklúbbur
Keflavíkur í fyrsta sinn þátt í roða-
gyllingu heimsins, sem er alþjóð-
legt átaka gegn kynbundnu of-
beldi og mörg mannúðarsamtök
um allan heim taka þátt í. Átakið
hefst 25. nóvember á alþjóðlegum
baráttudegi Sameinuðu þjóðanna
gegn kynbundnu ofbeldi, staðfestur
í mannréttindayfirlýsingunni. Átakið
nær hámarki sínu mánudaginn
10. desember, á alþjóða mannrétt-
indadaginn.
Appelsínugulur er
litur átaksins
„Í fyrra fengum við fyrirtæki og stof-
anir í lið með okkur en forsvarsmenn
margra þeirra tóku vel í beiðni okkar
um að lýsa byggingar, húsnæði eða
umhverfi upp með appelsínugulum
lit, sem er litur átaksins. Liturinn
táknar bjartari framtíð, lausa við of-
beldi gegn konum og börnum,“ segir
Svanhildur Eiríksdóttir, formaður
soroptimistaklúbbsins.
Stofnanir og fyrirtæki
í appelsínugulu
„Í ár munum við aftur biðja fyrir-
tæki og stofnanir að lýsa upp og
fáum vonandi enn fleiri til að
taka þátt núna. Þá hefur Sigurjón
Héðinsson bakari tekið jákvætt í
beiðni klúbbsins að selja snúða með
appelsínugulu kremi þessa sextán
daga meðan átakið stendur yfir og
láta ágóðann af sölunni renna til
Velferðarsjóðs Suðurnesja. Það er
mikilvægara sem aldrei fyrr að auka
innstreymi í hjálparsjóði, þar sem
streymið hefur verið að minnka
vegna samdráttar allsstaðar í þjóð-
félaginu. Við ætlum að kalla snúðana
Mannúðarsnúða.“
Karlarnir hjálpa konunum
Fjáröflun klúbbsins verður sala
á appelsínugulri vegan-sápu sem
Ólafur Árni Haraldsson í Sápunni
aðstoðar Soroptimistakonur með að
gera svo þær geti selt hana til Suður-
nesjamanna. „Þetta er alveg frábært.
Pabbi einnar systur í klúbbnum út-
vegar okkur húsnæði svo það er
óhætt að segja að karlar styðji sér-
staklega vel við átakið, sem okkur
finnst skemmtilegt. Sápuna munum
við selja á vettvangi Soroptimista en
sjáum við aðrar smugur munum við
að sjálfsögðu nýta okkur það,“ segir
Svanhildur.
Soroptimistaklúbbur
Keflavíkur er stærsti
klúbbur landsins
Soroptimistaklúbbur Keflavíkur er
stærsti klúbburinn innan Sorop-
timistasambands Íslands. Hann
var stofanaður 5. júní 1975 og
telur 42 systur. Klúbburinn hefur
á undanförnum árum styrkt Vel-
ferðarsjóð Suðurnesja, Björgina og
Frú Ragnheiði, ásamt styrkjum til
einstaklinga.
Allar tekjur klúbbsins koma frá
árgjöldum systra og fjáröflunum
og er fjármagnið nýtt til að styrkja
konur og stúlkur þó samfélagið allt
njóti vissulega góðs af stuðningi
Soroptimista.
Soroptimistar eru alþjóðleg
samtök kvenna sem hafa það að
markmiði að stuðla að jákvæðri
heimsmynd, þar sem samtaka-
máttur kvenna nær fram því besta
sem völ er á. Samtökin vinna að
bættri stöðu kvenna, að mann-
réttindum öllum til handa sem og
jafnrétti, framförum og friði með
alþjóðlegri vináttu og skilningi að
leiðarljósi. Samtök Soroptimista eru
starfsgreinasamtök og er leitast við
að hafa fulltrúa sem flestra starfs-
stétta til að fá sem breiðastan hóp.
Appelsínugular vegan-sápur og
snúðar í átaki Soroptimistakvenna
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Svanhildur Eiríksdóttir, formaður vandar sig í sápugerðinni.
Soroptimistakonur verða líka í sviðljósi Suðurnesjamagasíns.
Sjónvarpsinnslagið er aðgengilegt í rafrænni útgáfu.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
16 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár