Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 20

Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 20
– Nafn, aldur og búseta: Haukur Andreasson, 37 ára. Suður- nesjabæ. – Hvað er það fyrsta sem þú gerir eftir að þú vaknar á morgnana? Fer fram úr og fæ mér kaffibolla. – Hlustarðu á útvarp eða eitt og eitt lag á Spotify? Hlusta á Bylgjuna. – Hvað raular þú eða syngur í sturtu/baði? Ég humma oftast eitthvað sem ég veit ekki hvað er. – Hvaða blöð eða bækur lestu? Upp á síðkastið hafa það verið laga- bækur sem eiga allan minn tíma. Contract Law er sú bók sem ég var að klára. – Hvað er það fyndnasta sem hefur hent þig? Ætli það sé ekki þegar konan fann vegabréf sem ég týndi og afhenti mér þegar ég fór til Manchester á leik. Var stoppaður fyrir stolið vega- bréf og það setti tóninn í ferðina. – Hver fékk þig síðast til að brosa og hvers vegna? Grallarinn hún dóttir mín fær mig stöðugt til að brosa. – Hvað er það skemmti- legasta sem þú horfðir á nýlega í sjónvarpi? Umbrella Academy. – Uppáhaldsvefsíða: fonsjuris.is, veit ekki hvar ég væri án hennar. – Uppáhaldskaffi eða -te: French Roast frá Te & kaffi kemur sterkt til greina. – Uppáhaldsverslun: Fyrirhann.is er að koma sterk inn. – Hvað matreiðir þú ef þú vilt gera eitthvað gott fyrir fjölskylduna? Íslenska kjötsúpu. – Hvað fer mest í taugarnar á þér? Ég er með ótrúlegt jafnaðargeð svo mér dettur ekkert í hug. – Hver er helsta áskorun sem þú hefur þurft að takast á við nýverið? Hver dagur er ný áskorun, ætli það sé ekki að halda síbreytilegu skipu- lagi. – Hvað er eftirminni- legast frá sumrinu? Vinahópurinn fór saman á hótel Hamar, þar var dustað rykið af golf- kylfunum. – Hvaða reglu hefur þú sett þér sem erfiðast er að fara eftir? Hef sett mér það markmið/reglu að ætla byrja að mæta í tíma hjá Dodda og Þurý í ræktina hér í Sandgerði. Hef náð tveimur frábærum nám- skeiðum hjá þeim en þarf að fara í fleiri. – Ef þú værir að setjast á skólabekk í dag, hvað myndir þú vilja læra? Ég er í fullu laganámi samhliða vinnu sem stendur. – Stóra fréttin síðustu daga: Trump með Covid. – Hvernig er haustið að leggjast í þig? Haustið leggst ágætlega í mig. Sam- anstendur af mikilli rútínu og vinnu. – Eru hefðir á þínu heimili tengdar haustinu? Það má segja að hefðin sem stendur sé að sitja á skólabekk í námi. Haukur Andreasson, 37 ára íbúi í Suðurnesjabæ, er á kafi í laganámi samhliða vinnu á fasteignasölu þessa dagana. Hann gaf sér þó tíma í smá netspjall við Víkurfréttir um lífið og tilveruna. Stoppaður fyrir stolið vega- bréf á leið til Manchester Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is N etspj@ ll Haukur og dóttir hans, Sigurrós Máney Hauksdóttir. Haukur og Sigurrós Máney. Frá vinstri: Úlfar Guðmundsson, lögmaður, Haukur Andreasson, fasteignasali, Guðmundur Torfi Rafnsson, húsasmíðameistari, Vilhjálmur Axelsson, matreiðslumeistari, og Ingi Gunnar Ólafsson, einkaþjálfari. Haukur Andreasson og eiginkona hans, Rakel Jónsdóttir, viðskiptafræðingur. 20 // vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.