Víkurfréttir - 07.10.2020, Page 23
Frábærar fréttir!
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum fyrir skömmu að leggja til að
komið yrði á fót menntaneti á Suðurnesjum í samstarfi við mennta-
stofnanir á svæðinu til að efla náms- og starfsúrræði fyrir atvinnu-
leitendur. Menntamálaráðherra mun stýra þessu nýja menntaneti í
samvinnu við heimamenn en forsætisráðherra sagði að svona verk-
efni hafi verið gert víðar með góðum árangri. Það er mikið gleði-
efni að haldið sé áfram veginn til styrkingar náms á Suðurnesjum.
Nám er tækifæri
Fyrirhugað er að ráðstafa allt að 300 milljónum króna til
kaupa á þjónustu hjá menntanetinu sem hluti af átakinu
Nám er tækifæri. Þá hefur verið ákveðið að styrkja þær
námsleiðir sem í boði eru hjá Keili gegn því að sveitar-
félögin á Suðurnesjum komi jafnframt inn með fjármuni
á móti. Stjórnvöld hafa að undanförnu átt samtöl við
forsvarsmenn sveitarfélaga, landshlutasamtök sveitar-
félaga á Suðurnesjum, menntastofnanir og atvinnurek-
endur á svæðinu um aðgerðir til að bregðast við stöðu
vinnumarkaðarins á svæðinu. Atvinnuleysi þar hefur
farið vaxandi eftir að kórónafaraldurinn hófst, fór hæst
í kringum 25% í upphafi faraldursins en var í september
í kringum 17%. Það skiptir máli á tímum sem þessum að
fólk hafi greiðan aðgang að aukinni menntun til þess að
styrkja sig á atvinnumarkaði til framtíðar.
Fjölbreytni og sveigjanleiki
Fjölbreytt námsframboð og sveigjanlegt námsumhverfi,
sem skapað er í nánu samstarfi við aðila vinnumarkað-
arins, er nauðsynlegt svo að atvinnulíf og samfélag vaxi
og dafni. Fjölbrautaskóli Suðurnesja hefur verið mikil
lyftistöng fyrir samfélagið á Suðurnesjum frá stofnun
árið 1976. Menntaskólinn Ásbrú (Keilir), Fisktækni-
skólinn og MSS eru stofnanir sem orðið hafa til vegna
frumkvæðis einkaaðila, sveitarfélaga á Suðurnesjum og
fyrirtækja á svæðinu. Þörfin fyrir fjölbreyttar námsleiðir,
starfsþjálfun og endurmenntun hefur verið áþreifanleg.
Nú eru þessar menntastofnanir orðnar rótgrónar í sam-
félaginu og hafa sannað gildi sitt. Menntunarstig fólks á
svæðinu hefur hækkað, sérstaklega kvenna. Það er ekki
síst bættu aðgengi að námi að þakka sem og fjölbreyttum
námsleiðum og sveigjanlegum kennsluháttum. Höldum
áfram þessa leið.
Breyttar kröfur vinnumarkaðarins
Sjálfvirknivæðing undanfarinna ára og hraðar tækni-
breytingar munu ekki hægja á sér. Með þeim breytingum
er einsýnt að kröfur um fjölbreytta menntun á fram-
haldsskólastigi sem og ákall eftir nútímalegum og sveigj-
anlegum kennsluháttum muni halda áfram að aukast.
Ný tækifæri eru handan við hornið. Í skýrslu starfshóps
forsætisráðuneytisins um Ísland og fjórðu iðnbyltinguna
kemur fram að líkur á sjálfvirknivæðingu starfa minnka
með hærra menntunarstigi. Líklegt er að mörg störf sem
krefjast lítillar menntunar muni hverfa eða taka miklum
breytingum. Vægi framhaldsskólanáms verður því sífellt
meira og þörfin fyrir fjölbreyttar námsleiðir vex. Því þarf
að auka áherslu á tæknigreinar og nýsköpun auk þess að
halda áfram að bjóða upp á hefðbundið bóknám og iðn-
greinar. Menntun er máttur.
Áfram veginn!
Silja Dögg Gunnarsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins.
Hælisleitendamál
í ólestri
„Ertu að yfirgefa landið þitt í
leit að betri lífskjörum? Ertu
að yfirgefa landið þitt í leit að
vinnu? Þetta eru ekki löglegar
ástæður fyrir því að fá alþjóð-
lega vernd í Noregi. Þér verður
vísað til baka“. Þetta er texti úr
auglýsingu sem norsk stjórn-
völd birta á helstu netmiðlum.
Auk þess er því komið á fram-
færi í auglýsingunni að reglur
hafi verið hertar í Noregi. Danir
hafa birt áþekkar auglýsingar.
Árið 2004 var 48 tíma reglan
við afgreiðslu umsókna tekin
upp í Noregi til að draga úr til-
efnislausum umsóknum og gera
kerfið skilvirkara.
Ríkisstjórn sósíaldemókrata
í Danmörku ræðir að ekki verði
tekið við hælisleitendum á
danskri grundu heldur í móttöku-
stöð í Norður-Afríku til að girða
fyrir að fólk leggi á sig hættuferð
á manndrápsfleytum yfir Miðjarð-
arhafið. Fyrir fáeinum árum komu
6.000 hælisleitendur að landa-
mærum Noregs frá Rússlandi á
nokkrum vikum. Eru stjórnvöld
hér á landi viðbúin því að fá slíkan
fjölda umsókna á fáeinum vikum?
Dómsmálaráðherra lagði fram
frumvarp á Alþingi nú í vor um
breytingu á lögum um útlendinga.
Frumvarpinu er ætlað að gera
stjórnvöldum kleift að afgreiða
skjótt og örugglega umsóknir
sem leiða ekki til veitingar alþjóð-
legrar verndar. Frumvarpið náði
ekki fram að ganga vegna ósættis
í ríkisstjórninni. Brýnt er að ein-
falda og hraða málsmeðferð um-
sókna svo að auka megi skilvirkni
og stytta málsmeðferðartíma.
Á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft hælisleitendamálin á sinni
könnu um árabil. Hann sýnist
skorta nauðsynlega festu og
hefur ekki reynst fær um að taka
á vandanum. Stjórnsýslan ræður
ekki við að afgreiða umsóknir
innan viðunandi frests og beinn
kostnaður við framfærslu hælis-
leitenda eykst hratt. Á þessu ári
kostar hann skattgreiðendur fjóra
milljarða og fer ört hækkandi.
Þögn ríkir um óbeinan kostnað.
Samkvæmt tölum flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna,
UNRWA, er fyrir kostnað af
hverjum hælisleitenda sem kemur
til Vesturlanda hægt að hjálpa
a.m.k. tíu til tólf manns í heima-
landi.
Okkur ber að aðstoða nauð-
stadda eftir föngum að teknu til-
liti til fámennis þjóðarinnar. Koma
ber í veg fyrir að móttökukerfi
hælisleitenda sé misnotað með
röngum upplýsingum og tilhæfu-
lausum umsóknum.
Ísland hefur ekki farið að for-
dæmi Dana og Norðmanna og
auglýst strangt regluverk í út-
lendingamálum vegna þess að
á Íslandi eru útlendingamálin í
ólestri, m.a. vegna stefnuleysis,
ófullnægjandi stjórnsýslu og laga-
þræta á kostnað skattgreiðenda.
Á vettvangi stjórnmálanna dugir
ekki að hlaupast undan merkjum
réttarríkisins af ótta við háværan
minnihluta.
Birgir Þórarinsson,
alþingismaður Miðflokksins. EKKI DETTA
ÚR SAMBANDI!
Eins og dæmin sanna geta bæði fyrirtæki
og einstaklingar, ekki síst bændur, orðið
fyrir stórtjóni þegar rafmagn dettur út
vegna veðurs og náttúruhamfara. Við
eigum varaaflstöðvar fyrir allar aðstæður.
Rafmagnsleysi getur valdið stórtjóni
REYKJAVÍK
Klettagörðum 25
Sími 5 200 800
SELFOSSI
Eyravegi 67
Sími 4 800 600
AKUREYRI
Draupnisgötu 2
Sími 4 600 800
REYÐARFIRÐI
Nesbraut 9
Sími 4 702 020
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 52
Sími 4 207 200
HAFNARFIRÐI
Bæjarhrauni 12
Sími 5 200 800
GRUNDARTANGA
Mýrarholtsvegi 2
Sími 5 200 830
Hafðu samband í tæka tíð!
Nánari upplýsingar á ronning.is eða ronning@ronning.is
Einnig birt á www.naudungarsolur.is
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Hafnargata 67, Keflavík, 50% ehl.
gerðarþola, fnr. 208-8124 , þingl.
eig. Haraldur Gunnar Húbertsson,
gerðarbeiðandi Greiðslumiðlun
ehf., þriðjudaginn 13. október nk.
kl. 09:00.
Hátún 1, Keflavík, fnr. 208-8331 ,
þingl. eig. Jakub Polkowski, gerðar-
beiðandi Vátryggingafélag Íslands
hf., þriðjudaginn 13. október nk. kl.
09:20.
Kirkjubraut 19, Njarðvík, fnr. 209-
3794 , þingl. eig. Guðlaugur Smári
Nielsen, gerðarbeiðandi Vátrygg-
ingafélag Íslands hf., þriðjudaginn
13. október nk. kl. 09:45.
Kirkjubraut 7, Njarðvík, fnr. 209-
3774 , þingl. eig. JV Capital ehf,
gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf.
og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum,
þriðjudaginn 13. október nk. kl.
10:00.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
5. október 2020.
UPPbOð
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
vÍkUrFrÉTTir Á SUðUrNESJUM Í 40 Ár // 23