Freyr

Árgangur

Freyr - 15.11.1967, Síða 8

Freyr - 15.11.1967, Síða 8
HJARÐMAÐURINN Norskur maður heitir Sigurd Eikland. Nafn hans er til okkar komið á þann hátt, að hann hefur skráð bók eina mikla, sem ber heitið: DRIFTESMALINN og gæti vel heit- ið Hjardmaöurinn á íslenzku. Orðið smali er að vísu til í okkar máli og var og er nafn á þeim, sem gætir fjár, einkum ánna í þá daga er þær voru nytjaðar til mjólkur á sumrum. Síðan fráfærur lögðust niður hef- ur smalaheitið sjaldan verið á vörum fólks, en eldri menn hafa ýmsir verið smalar og minnast bæði sælla og súrra stunda þeirra tíma. Ennþá tölum við um að smala, þeg- ar fé er safnað saman af fjalli eða úr haga í ákveðnum tilgangi, og smalamennskan er vel kunn og tengd við sömu fyrirbæri. En sjálfur smalinn hér á landi er eiginlega aðeins söguleg vera og mun verða svo, unz eftirlit verður með fé í högum á sumrum, unz fénu verður haldið til beitar og á beztu haglendunum í stað þess að það snöltrar nú einatt við girðingar langtím- um saman. Þegar bændur hafa viðurkennt nauðsyn þess að halda fénu til haga, í bók- staflegri merkingu, að sumrinu, þá verða þeir menn, sem að því vinna, smalar í nýrri merkingu en gegnandi sama hlutverki og smalarnir í gamla daga. Var svo til ætlast að mjólkin kæmi í fötur eigenda fyrrum, en á komandi tímum skal hún renna í munn og maga dilkanna og efla vænleik þeirra. —o— Hvað um þetta? Það er viðhorf sér á parti fyrir okkur. Hitt er staðreynd, að Norðmenn hafa alltaf haft hjarðmenn starfandi — smala — og hafa enn. Með seljamennskunni, sem nú leggst niður þar í landi, eða dregst saman að minnsta kosti, fækkar því fólki, er gætir búfjár um heið- ar og firnindi, en hitt er staðreynd, að gæzla hjarðar í sumarhögum er þar víða nauðsyn, þótt búsmali sé ekki mjaltaður. Rándýr og hættur og villur geta valdið svo miklum afföllum, að eftirlit gerir miklu betur en að borga sig. Umrædd bók, eftir Sigurd Eikland, fjallar um hjarðmenn og hjarðmennsku um liðna ártugi eða nánar tiltekið allt að 150 síðustu árin, á því landssvæði sem heit- ir Rogland, Agðir og Hörðaland. Uppi á heiðum þessara fylkja hafa smal- Enn er fönn á fjöllum og heiðum þegar hjarðmenn stefna þangað með féð að vori, en brátt grær og sól og sumar er framundan. Xú er féð flutt frá byggð- um á bifreiðum.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.