Feykir - 27.02.2019, Síða 1
Feykir þreytist ekki á því að birta
skemmtilegar myndir af fuglum en
tignarlegur fálki sást á Höfðavatninu
í Skagafirði á dögunum en sá hafði
náð að hremma stokkönd sér til
veislufanga.
Elvar Már Jóhannsson náði að fanga
fuglinn á mynd en þegar hann skoðaði
afraksturinn í tölvunni sá hann að
fálkinn var merktur. „Ég gat greint hvað
stóð á merkinu og hafði samband við
Náttúrustofu Íslands. Ég fékk þau svör
að þetta væri þriggja ára kvenfugl,
merktur sem ófleygur ungi í hreiðri í
S-Þingeyjarsýslu sumarið 2016.“
Á Fuglavefnum kemur fram að fálki,
öðru nafni valur, sé staðfugl og verpur
dreift um land allt en er algengastur í
Þingeyjarsýslum. Aðalfæðan er rjúpa,
sem hann slær með klónum á flugi eða
grípur á jörðu niðri en veiðir flestar
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
08
TBL
27. febrúar 2019
39. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 8
Hrefna Jóhannesdóttir
oddviti Akrahrepps
Umhverfismálin
mér alltaf ofarlega
í huga
BLS. 10
Textílmiðstöð Íslands –
Þekkingarsetur á Blönduósi
Vilja byggja upp
textílsamfélag
á Blönduósi
Fróðleikur frá Byggðasafni
Skagfirðinga
Að setjast
í sekk og ösku
Tignarlegur kvenfálki á Höfðavatni
Merktur sem ófleygur ungi árið 2016
Heimilismatur í hádeginu
Heitur matur 1390 kr. Súpa og brauð 1100 kr.
www.bjarmanes.is
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.is
Þrátt fyrir að fálkinn veiði aðallega rjúpu slær hann greinilega ekki væng á móti girnilegri stokkönd. MYND: ELVAR MÁR JÓHANNSSON
HÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
tegundir fugla. Fer þó talsvert eftir
veiðilendum hvaða bráð verður fyrir
valinu, allt frá fullorðnum heiðagæsum
niður í þúfutittlinga og auðnutittlinga,
einnig hagamýs. Þar sem rjúpan er svo
stór þáttur í fæðuvali fálkans fylgir
varpstofn hans sveiflum í rjúpnastofn-
inum, en er hnikað þannig að mest er
um fálka um þremur árum á eftir
hámarki í stofnstærð rjúpu. Fálkinn var
konungsgersemi fyrr á öldum og um
tíma í skjaldarmerki Íslands. /PF
Lögreglan á Norðurlandi vestra
Mikill erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra
um síðustu helgi í verkefnum tengdum umferð en
á Facebooksíðu embættisins kemur fram að mikil
umferð hafi verið um umdæmið og færð líkt og á
sumardegi.
Alls voru 125 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur
um helgina og þeir sem hraðast óku mældust á 157,
142, og 143 km/klst., voru það allt erlendir ferðamenn. Ein afskipti leiddu af
sér handtöku vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. /PF
Ferðamenn á fartinni