Feykir - 27.02.2019, Side 5
Landssamband hestamanna-
félaga (LH) kynnti á blaða-
mannafundi í Bláa Lóninu
sl. sunnudag landsliðshóp
LH í hestaíþróttum sem er
fyrsta skrefið að breyttum
áherslum LH í afreksmálum. Á
Facebook-síðu sambandsins
segir að hingað til hafi
landslið Íslands á HM verið
valið út frá svokölluðum lykli
og úrtökumóti en nú verði
breyting á.
Á úrtökumótum gátu fimm
knapar tryggt sér sæti í lands-
liðinu og liðstjórinn valdi tvo í
viðbót, var þá m.a. litið til
árangurs á Íslandsmóti og
keppnisárangurs íslenskra
knapa erlendis. Landsliðið var
svo kynnt rúmum mánuði fyrir
HM og segir í tilkynningunni að
segja megi að landsliðið hafi
verið virkt í rétt rúma tvo
mánuði sem er afar stuttur tími
og áherslan skiljanlega einungis
á þann viðburð.
Breytingin sem LH hefur
gert á landsliðsmálum er að
landsliðshópur LH verður virk-
ur allt árið um kring og mun
koma að ýmsum viðburðum,
mótum og sýningum sem eru til
þess fallnar að efla hestaíþróttina
og styrkja liðið til árangurs.
Meðal landsliðsmanna eru
tveir af Norðurlandi vestra,
Þórarinn Eymundsson á Sauð-
árkróki og Vestur-Húnvetn-
ingurinn Helga Una Björns-
dóttir frá Syðri-Reykjum í
Miðfirði. Auk þeirra eru Skag-
firðingurinn Jóhann Skúlason,
sem býr í Danmörku og Bergþór
Eggertsson frá Bjargshóli i
Miðfirði en hann býr í Þýska-
landi.
Helga Una stundar tamn-
ingar á Fákshólum í Ásahreppi
ásamt þremur öðrum. Hún
segir það mjög gaman að hafa
verið valin í landsliðið og mikill
heiður að vera með þessu góða
fólki. Henni líst vel á nýtt
fyrirkomulag og telur það mun
skilvirkara en áður.
Þórarinn segir að auk þess að
vera mikill heiður þá sé þetta
mikil hvatning fyrir tímabilið.
„Ég var á báðum áttum hvort ég
ætti að taka þátt áður en þessi
breyting kom til en nú er bara
upp með höfuð og stefna á
mót,“ segir hann. /PF
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Landslið LH í hestaíþróttum
Tóti Eymunds og Helga Una valin
Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Körfubolti
Tap gegn ÍR í síðasta heimaleiknum
Lið Tindastóls og ÍR mættust
í 1. deild kvenna síðastliðinn
laugardag í Síkinu. Þetta
var í þriðja skiptið sem liðin
mættust í vetur og höfðu
þau unnið sitt hvorn leikinn.
Heimastúlkur fóru vel af stað
í leiknum og leiddu með tólf
stigum í hálfleik en gestirnir úr
Breiðholtinu komu ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og
náðu með góðum leik að snúa
taflinu við og unnu sætan
sigur. Lokatölur 65-74.
Eins og í fyrri leikjum þá er
hæð mótherjanna að valda
Stólastúlkum vandræðum. Að
þessu sinni tók lið ÍR 20
fráköstum meira en lið
Tindastóls, 58 gegn 38, og þar af
tóku þær 24 sóknarfráköst gegn
sex heimastúlkna. Fyrir vikið
tóku þær 20 fleiri skot en lið
Tindastóls og það er ansi
dýrkeypt. Stólastúlkur voru án
baráttujaxlsins Ernu Rutar og
þá munar að sjálfsögðu talsvert
um að Þóranna Ósk er enn að
stríða við afleiðingar heila-
hristings sem hún fékk fyrir
áramót og hefur ekkert verið
með síðan. Marín Lind var
stigahæst í liði Tindastóls með
23 stig en Tess var „aðeins“ með
18 stig á laugardaginn en hirti
níu fráköst og átti fimm stoð-
sendingar. Eva Rún og Valdís
Ósk voru báðar með níu stig í
leiknum. Í liði ÍR var Nína Jenný
stigahæst með 16 stig og Hrafn-
hildur gerði 14 en Sigurbjörg
gerði tíu stig og tók 13 fráköst.
Næsti leikur Tindastóls fer
fram í Njarðvík 1. mars og
síðasti leikur stúlknanna er
síðan 9. mars og fer fram á
Akureyri.
Sigur gegn sveittum Sköllum
Karlalið Tindastóls og Skalla-
gríms mættust í æfingaleik í
Síkinu í síðustu viku. Bæði lið
voru í þörf fyrir að stilla streng-
ina fyrir lokaumferðirnar í
Dominos-deildinni en lið
Tindastóls hefur, eins og minnst
hefur verið á í Feyki, ekki verið
að fara á kostum að undanförnu
í toppbaráttunni. Borgnesingar
eru aftur á móti í bullandi fall-
baráttu. Leikurinn var ágæt
skemmtun en lið Tindastóls
vann ansi öruggan sigur, 73-64,
þar sem Dino Butorac glansaði,
skoraði 27 stig, þar af sjö þrista,
en næstur honum var PJ
Alawoya með 12 stig.
Lið Tindastóls mætir ÍR nk.
sunnudag fyrir sunnan en á
síðan heimaleik gegn Breiðablik
þann 7. mars kl. 19:15. /ÓAB
Úr herbúðum Tindastóls er það
að frétta að þær Vigdís Edda
Friðriksdóttir, Laufey Harpa
Halldórsdóttir og Berglind Ósk
Skaptadóttir hafi samið við
félagið til eins árs.
Á Facebooksíðu Tindastóls
segir að þær Vigdís og Laufey
hafi leikið lykilhlutverk í liðinu
er fór upp úr 2. deild síðasta
sumar og hafa þrátt fyrir ungan
aldur töluverða meistaraflokks
reynslu.
„Vigdís var til reynslu hjá
Þór/KA fyrr í vetur og þótti
standa sig vel. Hún taldi þó hag
sínum best borgið á heima-
slóðum og fögnum við því að
sjálfsögðu. Laufey Harpa var
valin besti leikmaður liðsins
árið 2017 og átti einnig mjög
gott sumar í fyrrasumar, því
augljóslega mikið fagnaðarefni
að hún ætli að taka slaginn
áfram. Berglind Ósk hefur
minna komið við sögu í
meistaraflokki en er virkilega
lofandi leikmaður sem á fram-
tíðina fyrir sér hjá Tindastól,“
segir á síðunni. /PF
Knattspyrna kvenna
Vigdís, Laufey og Berg-
lind semja við Tindastól
Marín Lind og Birna Eiríks (Hansen) berjast undir körfu ÍR. MYND: HJALTI ÁRNA
Landslið Íslands í hestaíþróttum. MYND AF FB LH
MÍ í frjálsum innanhúss
Ísak Óli tvöfaldur
Íslandsmeistari
MÍ í frjálsíþróttum innanhúss fór fram um helgina í Frjáls-
íþróttahöllinni í Kaplakrika í Hafnarfirði. Fremsta frjálsíþrótta-
fólk landsins keppti þar um Íslandsmeistaratitlana og skráðir
keppendur alls 169 frá fjórtán félögum og samböndum. Frá
UMSS tóku sex keppendur þátt.
Á heimasíðu frjálsíþróttadeildar Tindastóls segir að allir
keppendur UMSS hafi staðið sig vel að vanda. Ísak Óli
Traustason varð tvöfaldur Íslandsmeistari; í 60 m grindahlaupi
hljóp hann á 8,27 sek og í langstökki stökk hann 6,80 m. Þá varð
hann í 2. sæti í 60 m hlaupi á 7,07 sek (pm) og í 4. sæti í
stangarstökki með 4,00 m.
Sveinbjörn Óli Svavarsson varð í 4. sæti í 60 m hlaupi á 7,23
sek og í 6. sæti í 200 m hlaupi á 23,19 sek.
Í kúluvarpi kvenna varð Aníta Ýr Atladóttir í 5. sæti kastaði
10,55 m (pm) og Ragna Vigdís Vésteinsdóttir í 6. sæti með
10,24 m.
Rúnar Ingi Stefánsson jafnaði sinn besta árangur í kúluvarpi,
kastaði 11,42 m, og Daníel Þórarinsson hljóp 60 m á 7,62 sek og
200 m á 24,19 sek.
Í stigakeppni mótsins sigraði FH með 50 stig, í 2. sæti ÍR
með 48 stig, í 3. sæti Breiðablik með 21 stig, og lið UMSS
hafnaði í 4. sæti af öllum þátttökuliðunum með 8 stig. /PF
Ísak Óli (lengst til hægri) í grindahlaupinu. MYND: FRÍ.IS
08/2019 5