Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 6
6 08/2019
Varðandi mannahald segir
Elsa að áður hafi verið tveir
framkvæmdastjórar en nú
sé hún forstöðumaður yfir
báðum stofnununum. Þær
Jóhanna Erla Pálmadóttir
og Katharina Schneider sem
voru framkvæmdastjórar hvor
yfir sinni stofnuninni séu nú
verkefnastjórar. Auk þeirra
þriggja hefur svo Ragnheiður
Björk Þórsdóttir umsjón
með rannsóknarverkefni.
Öll laun eru nú greidd hjá
Textílmiðstöðinni og því sé
auðveldara að skipta með
sér verkum þegar ekki þarf
lengur að spá í hver sé hvurs
og hvurs sé hvað. Þá hafi sími
og net verið sameinuð. Allt
þetta hafi verið töluverð vinna
sem vonandi muni auðvelda
hlutina og gera alla vinnu
markvissari.
En í hverju er starfsemi mið-
stöðvarinnar helst fólgin?
„Við erum með námsver og fólk
á svæðinu getur komið hingað
og nýtt fjarfundaaðstöðuna
hér niðri til náms og það er
sífellt vinsælla að taka próf
hjá okkur. Svo erum við með
Textíllistamiðstöðina og
ýmislegt sem tengist rekstr-
inum á henni eins og að taka
við umsóknum og velja þá
sem koma og sinna því fólki.
Þar er ýmis fræðsla og kennsla
í gangi, til dæmis koma hing-
að nemendur Listaháskólans
og fá bæði kennslu í vefnaði
og ullarvinnslu en við erum
Blaðamaður Feykis leit við í
Kvennaskólanum á dögun-
um í þeim tilgangi að kynna
sér starfsemi Textílmiðstöðv-
arinnar nánar og helstu áhrifin
sem samruni þessara tveggja
stofnana hefði á daglegan
rekstur þeirra.
Forstöðumaður Textílmið-
stöðvarinnar er Elsa Arnar-
dóttir sem kom til starfa hjá
Þekkingarsetrinu sl. vor og
hefur síðan unnið að því að
samræma starfsemina. Elsa
settist niður með blaðamanni
og var hún fyrst innt eftir því
í hverju samþættingin fælist.
„Þetta eru enn tvær stofn-
anir, annars vegar Textílmið-
stöð Íslands - Þekkingarsetrið
á Blönduósi og hins vegar
Textíllistamiðstöð en frá
áramótum er starfsemin
samtvinnuð. Það sem hefur
breyst er að nú er sama
fulltrúaráð og sama stjórn yfir
báðum stofnunum.“
Elsa segir að tilgangurinn
með samþættingunni hafi
verið að einfalda reksturinn
og umsýsluna. Nú sé til
að mynda ein stjórn í stað
tveggja, ein heimasíða í stað
fjögurra og ákveðin verk hafi
verið flutt frá Textílsetrinu
yfir til Textílmiðstöðvar
þannig að reksturinn á
Textíllistamiðstöðinni sé
aðskilinn frá öðru sem
tilheyri Textílmiðstöð Íslands.
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
Hið gamla og reisulega hús Kvennaskólans á Blönduósi hefur um árabil hýst Textíl-
setur Íslands sem stofnað var árið 2005 og Þekkingarsetrið á Blönduósi, stofnað
2012, og hefur þar verið rekin öflug starfsemi, aðallega á sviði textíl.
Um síðustu áramót var starfsemi þessara tveggja stofnana samþætt undir heitinu
Textílmiðstöð Íslands – Þekkingarsetur á Blönduósi. Við samþættinguna voru
fulltrúaráð og stjórnir beggja stofnana sameinaðar og jafnframt var fulltrúum sem
aðild eiga að stjórn stofnunarinnar fjölgað í þeim tilgangi að efla fagþekkingu í ráðinu.
Í byrjun janúar var svo ný stjórn kosin samkvæmt nýjum skipulagsskrám.
Forstöðumaður Textílmiðstöðvarinnar, Elsa Arnardóttir, framan við hið 107 ára gamla hús sem hýsir starfsemina. MYNDIR: FE
Textílmiðstöð Íslands – Þekkingarsetur Blönduósi
Vilja byggja upp
textílsamfélag á Blönduósi
Í ullarstúdíóinu eru margir möguleikar fyrir hendi.Barbara frá Shetlandseyjum (Hjaltlandseyjum) dvelur nú í Textíllistamiðstöðinni í
annað sinn þar sem hún leggur stund á myndvefnað.