Feykir


Feykir - 27.02.2019, Page 9

Feykir - 27.02.2019, Page 9
Sjötta liðið sem við kynnum að þessu sinni í Meistaradeild KS er eyfirska liðið Team Byko. Baldvin Ari Guðlaugsson er liðsstjóri og honum fylgja Guðmundur Karl Tryggvason, Viðar Bragason tamningamaður á Björgum, dóttir hans Fanndís Viðarsdóttir reiðkennari og Vignir Sigurðsson þjálfari á Litlu-Brekku. „Sem fyrr er það okkur mikil ánægja að hafa lið austan Tröllaskaga með okkur í deild- inni,“ segir á Facebooksíðu Meistaradeildarinnar en í liðinu er saman komið hörku keppnis- fólk úr Eyjafirðinum. Ekki skemmir fyrir að fimmgangurinn verður haldinn á þeirra heimvelli í Léttishöllinni á Akureyri þann 13. mars. Í kvöld verður hins vegar keppt í Slaktaumatölti í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst klukkan 19:00. „Slaktaumatölt. Hvað er nú það?“ spurði Hákon Jóhannsson stofnandi íþróttadeildar Fáks í Moggagrein árið 1997. „Ætli að það sé eitthvað, sem útlendingar hafa fundið upp? Keppnin felst m.a. í því að ríða tölt á milliferð með niðurhangandi taum þ.e. án taumsambands við hestinn. Þetta getur hentað miðlungs knöpum, lítt viljugum og þægum hestum. Trúlega er það ekki þetta, sem íslenskir hestamenn sækjast eftir.“ Frá því að þessari spurningu var fleygt fram hefur mikið vatn runnið til sjávar og slaktaumatöltið fest sig í sessi sem skemmtileg og spennandi keppnisgrein. Reynir Örn Pálmason, marg- faldur Íslandsmeistari í slak- taumatölti, var spurður að því í viðtali á meistaradeild.is hvað það væri sem geri hest að góðum slaktaumatöltara. Hann sagði aðalatriðið að hestarnir væru með eðlisgott tölt og geðgóðir. „Þeir mega ekki spenna sig upp og verða stressaðir, betra er að þeir séu frekar rólegir, með gott jafnaðargeð,” sagði Reynir. Hann telur að með aukinni þjálfun sé hægt að ná góðri stjórn á spennustiginu í hrossinu. /PF MEISTARADEILD KS : Team Byko Lið austan Tröllaskaga KEPPNISDAGAR KS deildarinnar 2019: 27. febrúar Slaktaumatölt - Sauðárkrókur 13. mars Fimmgangur - Akureyri 27. mars Fjórgangur - Sauðárkrókur 12. apríl Tölt og flugskeið – Sauðárkrókur DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN DEILDIN Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is 08/2019 9 Óskar Örn Óskarsson / gítar Var heltekinn af Bruce Springsteen í nokkur ár ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Enn heldur Feykir áfram að kanna tónlistaráhuga- og smekk fólks. Nú er komið að því að Óskar Örn Óskarsson læknir í Reykjavík treysti lesendum fyrir tón-lyst sinni. Óskar er fæddur 1973, sonur Óskars Jónssonar læknis og Aðalheiðar Arnórsdóttur sjúkraliða. Hann ólst upp á Sauðárkróki frá sex ára aldri, fyrst með búsetur í Læknisbústaðnum og síðar Túnahverfinu. Nú býr hann í Vesturbænum í Reykjavík. Óskar segist eitt sinn hafa verið slarkfær á gítar en spurður um helstu afrek sín á tónlistarsviðinu segir hann: „Ég var gítarleikari í stórsveitinni Segulbandinu sem lifði 1987-1989. Ég, Fjölnir Ásbjörns, Arnbjörn Óla og Sossu, Björgvin Reynis og Kristinn og Kristján Kristjánsssynir fórum suður með Norðurleiðarrútunni, keyptum okkur hljóðfæri fyrir fermingarpeningana og töldum í. Maggi Eiríks seldi mér ódýrasta rafmagnsgítarinn sem til var í Rín á Frakkastíg. Hann virkar ennþá – held ég. Við æfðum í bílskúrnum heima hjá mér í Dalatúni 11 og seinna í tónlistarskólanum við Hegrabrautina, þökk sé Evu skólastjóra og Rögga Valbergs. Náðum nú að spila á einhverjum skólaböllum og bæjar- vinnuskemmtunum. Vorum m.a.s. með grúppíur sem gerðu reyndar ekki annað en að njósna á bílskúrsglugg- unum þegar við vorum að æfa. Þær vita hverjar þær eru!“ Hvaða lag varstu að hlusta á? Ég var að leggja bíótónlistargetraun fyrir Hlyn frænda minn á Spotify. Þess vegna er titilstefið úr Forrest Gump það síðasta sem ég var að spila. Hlynur þekkti það strax. Uppáhalds tónlistartímabil? -Ca. 1780–2019. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? -Kolbrún dóttir mín er mjög dugleg að spila fyrir mig ýmislegt nýtt og áhugavert. Hún er Spotifykrakki og er því ekkert alltaf að velta mikið fyrir sér hverjir flytjendurnir eru. Þess vegna hef ég yfirleitt ekki hugmynd um það heldur. En Post Malone, The Weeknd, Khalid og Imagine Dragons eru til dæmis fínir. Ég vel Iron & Wine og Tallest Man on Earth. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? -Pabbi hlustaði á klassík og Simon & Garfunkel. Mamma hlustaði á Queen og Rod toppurinn Þessi væru ofarlega á lista: Tiger Mountain Peasant Song FLEET FOXES The Only Living Boy in New York SIMON & GARFUNKEL Call It Dreaming IRON & WINE Bloodbuzz Ohio THE NATIONAL Little Green JONI MITCHELL Song for Zula PHOSPHORESCENT Óskar Örn Óskarsson keypti sér nýlega kaffi snemma morguns á flugvelli í Brussel og lenti þá í þeirri ánægjulegu lífsreynslu að rifja upp textann við lag Bobs Dyllans, One More Cup of Coffee, með „sjarmerandi og skemmtilegri eldri konu“. Hún byrjaði að syngja lagið á meðan hún hellti upp á en mundi svo ekki textann. „Hún vildi svo ekki sleppa mér fyrr en við vorum búin að rifja upp saman hvernig næsta lína í textanum væri. Og syngja hana.“ Svona getur lífið og tilveran átt óvænta og upplífgandi spretti. MYND ÚR EINKASAFNI Stewart. Arna Rún, stærsta systir, hlustaði á Bowie, Pink Floyd og ELO. Allir hlustuðu á Bítlana. Enginn á Stones. Við bjuggum í Svíþjóð þegar Svíar skömmuðust sín enn fyrir ABBA, svo þau voru no-no… Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? -Arna systir og Simmi mágur gáfu mér Thriller með Michael Jackson í jólagjöf, líklega 1983 eða 84. Fyrsta fullorðins breiðskífan sem ég átti sjálfur og kann hana enn utan að. Hvern tón. Man bara ekki hver var fyrsta platan sem ég keypti mér sjálfur! Ekki gott. Hvaða græjur varstu þá með? -Átti engar græjur. Enda enn ófermdur. En það var Bang & Olufsen í stofunni, no less. Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst eftir að hafa fílað í botn? -Ég og Inga systir elskuðum Roy Rogers með Halla og Ladda. Hef ábyggilega fílað eitthvað í botn á undan því en það er þá bara búið að snjóa of mikið yfir það. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? -Hvað sem er með Pöpunum. Sorrý Papar, en ég bara þoli ykkur ekki! Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? -Mig langar að segja Superstition með Stevie Wonder. Held samt að ég sé að skrökva. Það yrði sennilega eitthvað 80’s gúmmulaði. Eða Mr. Blue Sky með ELO, kannski? Þú vaknar í rólegheitum á sunnu- dagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Beast Epic með Iron & Wine eða Carrie & Lowell með Sufjan Stevens. Kannski Island Songs með Ólafi Arnalds ef ég vil alveg eins sofna aftur… Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ég fer að sjá Tom Waits í einhverju hálfslitnu/ hálfglæsilegu gömlu leikhúsi í San Fransisco sem tekur ekki mikið meira en 1000 manns. Fillmore West kannski? Eða kannski bara í gömlu sirkustjaldi í eyðimörkinni? Ingibjörg Hilmars kemur með! Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? -Mér finnst það hafa verið Ten með Pearl Jam, en hún kom ekki út fyrr en ári seinna. Kannski keyrði ég bara ekkert fyrsta árið. Hvaða tónlistarmaður hefur haft mest áhrif á þig? -Ókei, ég veit að það er ekki kúl að segja Bruce Springsteen, en ég geri það samt. Var algjörlega heltekinn af honum í nokkur ár þegar ég var unglingur og hef eiginlega ekki upplifað það með neinn annan tónlistarmann síðan. Nema kannski Mark Knopfler á svipuðum tíma. Sem er auðvitað enn minna kúl. Oh, well… Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út eða sú sem skiptir þig mestu máli? -Besta plata sem gefin hefur verið út? Ekki séns að ég fáist til að svara því! En Blue með Joni Mitchell er líklega sú sem mér þykir vænst um.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.