Feykir - 27.02.2019, Qupperneq 9
Sjötta liðið sem við kynnum að
þessu sinni í Meistaradeild KS er
eyfirska liðið Team Byko. Baldvin
Ari Guðlaugsson er liðsstjóri og
honum fylgja Guðmundur Karl
Tryggvason, Viðar Bragason
tamningamaður á Björgum,
dóttir hans Fanndís Viðarsdóttir
reiðkennari og Vignir Sigurðsson
þjálfari á Litlu-Brekku.
„Sem fyrr er það okkur mikil
ánægja að hafa lið austan
Tröllaskaga með okkur í deild-
inni,“ segir á Facebooksíðu
Meistaradeildarinnar en í liðinu
er saman komið hörku keppnis-
fólk úr Eyjafirðinum. Ekki skemmir
fyrir að fimmgangurinn verður
haldinn á þeirra heimvelli í
Léttishöllinni á Akureyri þann
13. mars. Í kvöld verður hins
vegar keppt í Slaktaumatölti í
Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki
og hefst klukkan 19:00.
„Slaktaumatölt. Hvað er nú
það?“ spurði Hákon Jóhannsson
stofnandi íþróttadeildar Fáks í
Moggagrein árið 1997. „Ætli að
það sé eitthvað, sem útlendingar
hafa fundið upp? Keppnin felst
m.a. í því að ríða tölt á milliferð
með niðurhangandi taum þ.e. án
taumsambands við hestinn. Þetta
getur hentað miðlungs knöpum,
lítt viljugum og þægum hestum.
Trúlega er það ekki þetta, sem
íslenskir hestamenn sækjast
eftir.“ Frá því að þessari spurningu
var fleygt fram hefur mikið vatn
runnið til sjávar og slaktaumatöltið
fest sig í sessi sem skemmtileg og
spennandi keppnisgrein.
Reynir Örn Pálmason, marg-
faldur Íslandsmeistari í slak-
taumatölti, var spurður að því í
viðtali á meistaradeild.is hvað
það væri sem geri hest að góðum
slaktaumatöltara. Hann sagði
aðalatriðið að hestarnir væru
með eðlisgott tölt og geðgóðir.
„Þeir mega ekki spenna sig upp
og verða stressaðir, betra er að
þeir séu frekar rólegir, með gott
jafnaðargeð,” sagði Reynir. Hann
telur að með aukinni þjálfun
sé hægt að ná góðri stjórn á
spennustiginu í hrossinu. /PF
MEISTARADEILD KS : Team Byko
Lið austan Tröllaskaga
KEPPNISDAGAR KS deildarinnar 2019:
27. febrúar Slaktaumatölt - Sauðárkrókur
13. mars Fimmgangur - Akureyri
27. mars Fjórgangur - Sauðárkrókur
12. apríl Tölt og flugskeið – Sauðárkrókur
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
DEILDIN
Hafðu
samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
08/2019 9
Óskar Örn Óskarsson / gítar
Var heltekinn af Bruce
Springsteen í nokkur ár
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Enn heldur Feykir áfram að kanna
tónlistaráhuga- og smekk fólks.
Nú er komið að því að Óskar Örn
Óskarsson læknir í Reykjavík
treysti lesendum fyrir tón-lyst
sinni. Óskar er fæddur 1973,
sonur Óskars Jónssonar læknis og
Aðalheiðar Arnórsdóttur sjúkraliða.
Hann ólst upp á Sauðárkróki frá
sex ára aldri, fyrst með búsetur
í Læknisbústaðnum og síðar
Túnahverfinu. Nú býr hann í
Vesturbænum í Reykjavík.
Óskar segist eitt sinn hafa verið
slarkfær á gítar en spurður um helstu
afrek sín á tónlistarsviðinu segir hann:
„Ég var gítarleikari í stórsveitinni
Segulbandinu sem lifði 1987-1989.
Ég, Fjölnir Ásbjörns, Arnbjörn Óla og
Sossu, Björgvin Reynis og Kristinn
og Kristján Kristjánsssynir fórum
suður með Norðurleiðarrútunni,
keyptum okkur hljóðfæri fyrir
fermingarpeningana og töldum í.
Maggi Eiríks seldi mér ódýrasta
rafmagnsgítarinn sem til var í Rín á
Frakkastíg. Hann virkar ennþá – held
ég. Við æfðum í bílskúrnum heima
hjá mér í Dalatúni 11 og seinna í
tónlistarskólanum við Hegrabrautina,
þökk sé Evu skólastjóra og Rögga
Valbergs. Náðum nú að spila á
einhverjum skólaböllum og bæjar-
vinnuskemmtunum. Vorum m.a.s.
með grúppíur sem gerðu reyndar ekki
annað en að njósna á bílskúrsglugg-
unum þegar við vorum að æfa. Þær
vita hverjar þær eru!“
Hvaða lag varstu að hlusta á? Ég
var að leggja bíótónlistargetraun fyrir
Hlyn frænda minn á Spotify. Þess
vegna er titilstefið úr Forrest Gump
það síðasta sem ég var að spila.
Hlynur þekkti það strax.
Uppáhalds tónlistartímabil? -Ca.
1780–2019.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? -Kolbrún dóttir
mín er mjög dugleg að spila fyrir mig
ýmislegt nýtt og áhugavert. Hún er
Spotifykrakki og er því ekkert alltaf að
velta mikið fyrir sér hverjir flytjendurnir
eru. Þess vegna hef ég yfirleitt ekki
hugmynd um það heldur. En Post
Malone, The Weeknd, Khalid og
Imagine Dragons eru til dæmis fínir.
Ég vel Iron & Wine og Tallest Man on
Earth.
Hvers konar tónlist var hlustað
á á þínu heimili? -Pabbi hlustaði
á klassík og Simon & Garfunkel.
Mamma hlustaði á Queen og Rod
toppurinn
Þessi væru ofarlega á lista:
Tiger Mountain
Peasant Song
FLEET FOXES
The Only Living Boy
in New York
SIMON & GARFUNKEL
Call It Dreaming
IRON & WINE
Bloodbuzz Ohio
THE NATIONAL
Little Green
JONI MITCHELL
Song for Zula
PHOSPHORESCENT
Óskar Örn Óskarsson keypti sér nýlega kaffi snemma morguns á flugvelli í
Brussel og lenti þá í þeirri ánægjulegu lífsreynslu að rifja upp textann við lag
Bobs Dyllans, One More Cup of Coffee, með „sjarmerandi og skemmtilegri eldri
konu“. Hún byrjaði að syngja lagið á meðan hún hellti upp á en mundi svo ekki
textann. „Hún vildi svo ekki sleppa mér fyrr en við vorum búin að rifja upp saman
hvernig næsta lína í textanum væri. Og syngja hana.“ Svona getur lífið og tilveran
átt óvænta og upplífgandi spretti. MYND ÚR EINKASAFNI
Stewart. Arna Rún, stærsta systir,
hlustaði á Bowie, Pink Floyd og ELO.
Allir hlustuðu á Bítlana. Enginn á
Stones. Við bjuggum í Svíþjóð þegar
Svíar skömmuðust sín enn fyrir ABBA,
svo þau voru no-no…
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? -Arna systir og Simmi
mágur gáfu mér Thriller með Michael
Jackson í jólagjöf, líklega 1983 eða
84. Fyrsta fullorðins breiðskífan sem
ég átti sjálfur og kann hana enn utan
að. Hvern tón. Man bara ekki hver
var fyrsta platan sem ég keypti mér
sjálfur! Ekki gott.
Hvaða græjur varstu þá með? -Átti
engar græjur. Enda enn ófermdur. En
það var Bang & Olufsen í stofunni, no
less.
Hvert var fyrsta lagið sem þú mannst
eftir að hafa fílað í botn? -Ég og Inga
systir elskuðum Roy Rogers með
Halla og Ladda. Hef ábyggilega fílað
eitthvað í botn á undan því en það
er þá bara búið að snjóa of mikið yfir
það.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? -Hvað sem er með Pöpunum.
Sorrý Papar, en ég bara þoli ykkur
ekki!
Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað
læturðu hljóma í græjunum til að
koma öllum í stuð? -Mig langar
að segja Superstition með Stevie
Wonder. Held samt að ég sé að
skrökva. Það yrði sennilega eitthvað
80’s gúmmulaði. Eða Mr. Blue Sky
með ELO, kannski?
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst heyra?
-Beast Epic með Iron & Wine eða
Carrie & Lowell með Sufjan Stevens.
Kannski Island Songs með Ólafi
Arnalds ef ég vil alveg eins sofna
aftur…
Þú átt þess kost að fara hvert sem er
í heiminum og skella þér á tónleika.
Hvert færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? -Ég fer að
sjá Tom Waits í einhverju hálfslitnu/
hálfglæsilegu gömlu leikhúsi í San
Fransisco sem tekur ekki mikið meira
en 1000 manns. Fillmore West
kannski? Eða kannski bara í gömlu
sirkustjaldi í eyðimörkinni? Ingibjörg
Hilmars kemur með!
Hvað músík var helst blastað í
bílnum þegar þú varst nýkominn
með bílpróf? -Mér finnst það hafa
verið Ten með Pearl Jam, en hún kom
ekki út fyrr en ári seinna. Kannski
keyrði ég bara ekkert fyrsta árið.
Hvaða tónlistarmaður hefur haft
mest áhrif á þig? -Ókei, ég veit
að það er ekki kúl að segja Bruce
Springsteen, en ég geri það samt. Var
algjörlega heltekinn af honum í nokkur
ár þegar ég var unglingur og hef
eiginlega ekki upplifað það með neinn
annan tónlistarmann síðan. Nema
kannski Mark Knopfler á svipuðum
tíma. Sem er auðvitað enn minna kúl.
Oh, well…
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út eða sú sem
skiptir þig mestu máli? -Besta plata
sem gefin hefur verið út? Ekki séns að
ég fáist til að svara því! En Blue með
Joni Mitchell er líklega sú sem mér
þykir vænst um.