Feykir


Feykir - 27.02.2019, Side 11

Feykir - 27.02.2019, Side 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Borg. Feykir spyr... Ertu búin/n að skipuleggja sumarfríið? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Ekki búið að skipuleggja en ætli það verði ekki ferðast innan- eða utanlands með fjölskyldunni. Ásamt að dunda í garðinum og pallinum.“ Guðlaugur Skúlason „Ég er búinn að skipuleggja það aðeins. Ég ætla til Póllands í sumar í einn mánuð að hitta fjölskylduna og vini, halda áfram að smíða sumarhúsið mitt og veiða villisvín.“ Marcin Sienkiewicz „Þar sem ég elska skipulag er það löngu skipulagt. Viku fjallganga á Ítalíu og síðan tjaldferðalag innanlands í glampandi sól.“ Birgitte Bærendtsen KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Það er mikilvægast að lifa stórkostlegu lífi. Svo lengi sem lífið er stórkostlegt er mér sama hversu langt það er . – Freddie Mercury Sudoku Ótrúlegt – en kannski satt... Empire State-skýjakljúfurinn í New York var fyrsta byggingin sem var yfir 100 hæðir. Í rúm fjörtíu ár var hann hæsta bygging í heimi (381 m) allt til ársins 1972 þegar tvíburaturnarnir World Trade Center risu í sömu borg. Ótrúlegt en kannski satt, þá eru fleiri en 10 milljónir múrsteinar í Empire State byggingunni. Jóna Halldóra Tryggvadóttir á Hvammstanga er matgæðingur Feykis þessa vikuna. Jóna vinnur sem matráður hjá Sjávarborg en veitingastaðurinn starfrækir mötuneytið fyrir grunnskóla Húnaþings vestra. „Það er mjög skemmtileg vinna, ég hef unnið við mötuneytið síðan árið 2000. Ég er fædd og uppalin á Hrappstöðum í Víðidal, bý núna á Hvammstanga og er gift Hjalta Jósefssyni frá Hvoli í Vesturhópi og eigum við þrjú börn, sjö barnabörn og 3 langömmubörn,“ segir matgæðingurinn Jóna Halldóra. FORRÉTTUR Grafið kjöt 400 g kjöt (gott er að nota bæði ærkjöt og af fullorðnu hrossi) 250 g gróft salt 3 msk sykur Aðferð: Kjötið er þakið vel með blöndunni og látið liggja í fimm tíma. Skolið kjötið vel með vatni. Merjið 5 msk rósapipar og veltið kjötinu upp úr. Pakkið kjötinu vel inn og geymið í kæli í sólahring. EFTIRRÉTTUR Lax í smjördeigi (fyrir 6) 500 g nýr lax, roðflettur og beinlaus 400 g smjördeig 3 msk söxuð steinselja salt og pipar 1 tsk timjan 1 msk sítrónusafi. 1 egg til að pensla með Laxafars: 1 peli rjómi 200 g rækjur 200 g lax, má vera afskurður 2 eggjarauður season all krydd Rækjusósa: 2 dl fiskisoð 2 dl rjómi 1 dl hvítvín 100 g smátt skornar rækjur 2 tsk fiskikraftur salt sósujafnari Aðferð: Smjördeigið er flatt út eftir stærð laxaflaksins. Fiskurinn er kryddaður með salti, pipar, timjan og sítrónusafa. Laxafarsið er sett í matvinnsluvél og maukað, síðan látið jafnt ofan á flakið og saxaðri steinselju stráð yfir. Deigið er pikkað gróflega með gaffli. Penslið í kring um fiskinn með þeyttu egginu og leggið hinn helm- ing smjördeigsins ofan á hann. Þrýstið létt á samskeytin með fingrunum. Skerið 2 sm brún frá fiskinum, fylgið lögun hans og þrýstið á brúnina með gaffli. Búið til haus og sporð úr utanafskurðinum. Setjið fiskinn varlega á smurða ofn- plötu. Penslið fiskinn með egginu. Hitið ofninn í 200°C. Bakið fyrst í 20 mínútur, lækkið þá hitann í 140°C og bakið í 30 mínútur í viðbót. Setjið beinin og hausinn af lax- inum í pott og u.þ.b. 6 dl af vatni. Setjið lárviðarlauf, lauk og gulrót út í, fiskikraft og smá salt og sjóðið í um klukkustund. Setjið rjómann og hvítvínið út í og þykkið með sósujafnara. Síðan eru smátt skornar rækjurnar settar út í afganginn. Meðlætið má gjarnan vera smjörsteiktar kartöflur og spergilkál. Verði ykkur að góðu! Ég skora á Kristínu Heiðu Baldurs- dóttur, starfsmann á Gauksmýri, að sjá um næsta þátt. Grafið kjöt og innbakaður lax með rækjusósu ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Jóna Halldóra Tryggvadóttir matreiðir Jóna Halldóra Tryggvadóttir. AÐSEND MYND „Það eina sem er á dagskrá er að eyða sem mestum tíma í útvist með fjölskyldunni. Draumurinn er að komast aftur í Barðsneshlaupið um verslunarmannahelgina og hlaupa Hellisfjörðinn en það verður bara að ráðast.“ Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir 08/2019 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. FEYKIFÍN AFÞREYING Höfð er ég fyrir höfuðstað. Höfuðlausn minn fóstri kvað. Umgirt virki og varðturnum. Vegleg kirkja í álfheimum.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.