Feykir - 27.02.2019, Blaðsíða 12
Allt frá stofnun Kvennakórsins Sóldísar hefur verið
efnt til tónleika, þeir fyrstu árið 2011, á konudaginn
sem jafnframt er fyrsti dagur góu. Ekki var brugðið út
af þeirri venju í ár og voru þeir haldnir sem fyrr í
Menningarhúsinu Miðgarði sl. sunnudag.
Ávallt hefur verið vel mætt og var það einnig nú.
Salurinn þéttskipaður ánægðum gestum sem klöpp-
uðu vel fyrir kórnum í lok tónleika. Yfirskrift
tónleikanna í ár var Ó, leyf mér þig að leiða sem er
tilvitnun í fyrsta lagið sem kórinn söng á tónleik-
unum, Draumalandið eftir Sigfús Einarsson við ljóð
Jóns Trausta.
Á dagskrá voru sextán lög, innlend sem erlend, og
má fullyrða að kórinn hafi sjaldan verið betri en nú.
Söngstjóri var Helga Rós Indriðadóttir, undirleikari
Rögnvaldur Valbergsson og einsöngvarar þær Ólöf
Ólafsdóttir og Íris Olga Lúðvíksdóttir. /PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
08
TBL
27. febrúar 2019 39. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Laufey Kristín ráðin
Starf sérfræðings hjá Byggðastofnun
Laufey Kristín Skúladóttir
hefur verið ráðin í starf
sérfræðings á þróunarsviði
Byggðastofnunar. Starfið var
auglýst í byrjun janúar og
rann umsóknarfrestur út
þann 28. janúar. 21 umsókn
barst um starfið, átta konur
og þrettán karlar, en einn
aðili dró umsókn sína til
baka.
Laufey er með MSc gráðu
í stjórnun nýsköpunar og
viðskiptaþróunar frá Copenhagen Business School og
BA gráðu í hagfræði með heimspeki sem aukafag frá
Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún starfað hjá
Fisk-Seafood sem markaðs- og sölustjóri. Þar áður
starfaði Laufey sem verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði og sem atvinnuráðgjafi hjá SSNV. Hún er
fulltrúi í sveitarstjórn í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Laufey mun hefja störf hjá Byggðastofnun á næstunni.
„Verkefnin verða fjölbreytt, en á meðal helstu
verkefna Laufeyjar verður að vinna við undirbúning og
gerð byggðaáætlunar og vinna við greiningar á þróun
byggðar á lands- og landshlutavísu með tilliti til
byggðaáætlunar og sóknaráætlana landshluta," segir á
vef Byggðastofnunar. /FE
Sungið fyrir fullum sal
Konudagstónleikar Sóldísar
Laufey Kristín Skúladóttir.
MYND AF NETINU
Á árunum 1923 – 1930 bjuggu á Hjaltastöðum,
næsta bæ við Bjarnastaði í Blönduhlíð, Kristinn
Jóhannsson og Aldís Sveinsdóttir. Elsti sonur
þeirra var Eiríkur (1916 -1994), síðar kennari.
Drengur orti hann þessa vísu sem síðar varð
landfleyg og hefur mikið verið sungin:
Bjarnastaðabeljurnar
þær baula mikið núna.
Þær ætla að verõa vitlausar,
það vantar eina kúna.
Byggðasaga Skagafjarðar
4. bindi. bls. 140.
Bjarnastaða-
beljurnar
( BYGGÐASÖGUMOLI ) palli@feykir.is
Kvennakórinn Sóldís ásamt Helgu Rós söngstjóra og Rögnvaldi undirleikara. MYNDIR: PF, FE OG MÁ
Feykir.isFjörið er á...