Feykir - 23.10.2019, Side 11
Ávextir, sætmeti
og síðast en ekki
síst, kjöt
Björn og Hrund búa á Krithóli í Skagafirði ásamt dóttur sinni, Bríeti
Láru. Hrund er kennari í Árskóla og Björn rafvirki hjá Tengli. Hann er að
ljósleiðaravæða Norðurland vestra og í hjáverkum sinnir hann 350
kinda fjárbúi. Hrund eldar yfirleitt á þeirra heimili og hefur Björn þurft
að bragða á ýmsum nýjungum eftir að hafa kynnst henni. Þar má meðal
annars nefna avókadó, tortillur, vikulega kjúklingarétti og góð salöt. Ef
eitthvað bjátar á er svar Björns yfirleitt: „Þarf hann ekki bara að borða
meira kjöt?" Þau fara milliveginn í þessu tölublaði Feykis með ávöxtum,
sætmeti og síðast en ekki síst kjöti.
AÐALRÉTTUR
Morgunverðarpönnu-
kökur með grískri jógurt
og ávöxtum (fyrir 2)
½ bolli tröllahafrar
½ bolli kotasæla
2 stór egg
¼ tsk vanilludropar
¼ tsk kanil
½ tsk lyftiduft
olía/smjör á pönnuna
ávextir að eigin vali
hlynsíróp eða hunang
grísk jógúrt
Aðferð: Setjið u.þ.b. helming
hafranna í matvinnsluvél eða
blandara og búið til fínt mjöl. Setjið
mjölið, heilu hafrana, kotasæluna,
eggin, vanilludropana, kanilinn og
lyftiduftiið saman í skál og hrærið
vel. (Athugið að ef þið malið ekki
hluta hafranna og notið eingöngu
heila hafra getur reynst snúið að
steikja pönnukökurnar því þær eru
lausari í sér. Ef þið notið bara heila
hafra (sem ég geri oft) passið þá að
vera ekki með of háan hita á
pönnunni).
Hitið olíu eða smjör á pönnu og
steikið litlar pönnukökur (í
lummustærð).
Skerið ávexti að eigin vali. Á
okkar heimili er það banani,
mangó, jarðarber og pera. Einnig
er algjört „gúrm“ að hafa bláber,
hindber og/eða vínber fyrir
berjaunnendur.
Fáið ykkur a.m.k. tvær pönnu-
kökur, hrúgið ávöxtum á, dreypið
sírópi eða hunangi yfir og toppið
með matskeið af grískri jógúrt.
Njótið.
(E.s. Fyrir lengra komna, þá
sem eru aðframkomnir af hungri
eða almennt á tyllidögum má bæta
nokkrum beikonstrimlum við
herlegheitin. Allt er betra með
beikoni.)
UPPSKRIFT 2
Döðluterta - þessi góða
með karamellusósunni
frá mömmu
2 egg
200 g sykur
150 g hveiti
1 tsk lyftiduft
100 g smjör (brætt)
200 g döðlur (saxaðar)
Aðferð: Egg og sykur þeytt saman.
Öðrum hráefnum blandað saman
við eggjahræruna. Sett í tvö
hringlaga form og bakað við 180°C
þar til botnarnir losna frá forminu.
Karamella:
120 g sykur
2 dl rjómi
30 g smjör
1 tsk vatn
2 msk síróp
Aðferð: Allt sett saman og hitað í
potti og hrært stanslaust þar til
karamellan er orðin gullinbrún,
tekur heila eilífð en er algjörlega
þess virði. Hellið karamellunni yfir
kökuna eða berið fram til hliðar.
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR) frida@feykir.is
Björn Ólafsson og Hrund Malín Þorgeirsdóttir matreiða
Björn og Hrund ásamt Bríeti Láru dóttur
þeirra. MYND: ÚR EINKASAFNI
Feykir spyr...
Hvaða bók lastu
síðast ?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : frida@feykir.is
„Síðast las ég bókina Vertu
ósýnilegur eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur. Hún er mjög
vel skrifuð og á vel við okkur
öll í dag.“
Helga Gunnarsdóttir
„Ég hlusta orðið mikið á
bækur og síðast hlustaði ég
á Endurkomuna eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson. Mér fannst
hún áhugaverð en ekki beint
skemmtileg. Umfjöllunarefnið
situr aðeins eftir en hentar
líklega ekki þeim sem leita eftir
glæpum og spennu..“
Margrét Björk Arnardóttir
„Hornauga eftir Ásdísi Höllu
Bragadóttur. Fannst nú ekki
mikið til hennar koma en það
þarf hugrekki til að skrifa um
svona viðkvæm mál.“
Þórdís Friðbjörnsdóttir
„Siðast las ég bók sem heitir
Allt i himnalagi hjá Eleanor
Oliphant. Hún er skrifuð af Gail
Honeyman. Ég get mælt með
henni, skemmtileg, heillandi og
hlýleg saga.“
Haukur Freyr Reynisson
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Broddur
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Gypsy Moth er mölfluga sem getur gert stórskaða í trjágróðri og er
m.a. mikið meindýr í Bandaríkjunum. Fræðiheiti mölflugunnar er
Lymantria dispar og á íslensku hefur hún fengið nafnið Eldbursti.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá getur karlinn fundið lykt af kvensunni
í nærri tveggja kílómetra færi.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Tengt við vöxt er títt mitt heiti.
Traust á staf ég aukið gat.
Nagdýri ég varnir veiti.
Valið efni í gæða mat.
UPPSKRIFT 3
Kjötbollur með beikoni
og döðlum (fyrir 2)
300 g ærhakk
1 egg
70 g beikon (saxað)
60 g döðlur (saxaðar)
3 msk spelt, hveiti eða
möndlumjöl
¼ laukur (saxaður)
400 g sætar kartöflur
béarnaise sósa
olía, salt og pipar
Aðferð: Forhitið ofninn í 200°C
með blæstri. Flysjið og skerið sætu
kartöflurnar í teninga og veltið
þeim upp úr olíu, salti og pipar.
Setjið í eldfast mót og bakið í ofni í
30-40 mínútur eða þangað til þær
eru eldaðar í gegn.
Steikið laukinn og beikonið á
pönnu í smá olíu á miðlungshita í
nokkrar mínútur, bætið síðan
döðlunum við og steikið í nokkrar
mínútur til viðbótar. Setjið hakkið,
eggin, hveiti eða mjölið og
döðlublönduna í skál og kryddið
með salti og pipar. Blandið þessu
vel saman og mótið bollur.
Hitið smá olíu á pönnu og
steikið bollurnar á meðalháum hita
þar til þær hafa brúnast á öllum
hliðum. Setjið bollurnar síðan í
eldfast mót og inn í ofn í u.þ.b. átta
mínútur eða þar til þær eru eldaðar
í gegn.
Berið bollurnar fram með
bökuðum sætum kartöflum og
béarnaise sósu.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Þorstein og Gloriu á
Byrgisskarði að taka við af okkur.
Tilvitnun vikunnar
Óklifin fjöll fram undan buga þig ekki heldur steinvalan í
skónum. – Muhammad Ali
3 7 8
1 4
2
4
6
5
5
2 1
3
9
1
7
69
3
845
7
1 2
6
6
8 5 6 7
8 9
9
3
47
3
8
4
2
40/2019 11