Morgunblaðið - 18.05.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr Ford Transit 350 Trend L3H3
Sjálskiptur. 2 x hliðarhurð.
Klæddur að innan. Dráttarkrókur.
1.276.400,- undir listaverði.
Okkar verð 4.790.000 án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnuauglýsingar
Interviews will be held in
Reykjavik in May and June
For details contact:
Tel.:+ 36 209 430 492
Fax:+ 36 52 792 381
E-mail: omer@hu.inter.net
internet: http://www.meddenpha.com
Study Medicine and Dentistry
In Hungary “2020”
Fundir/Mannfagnaðir
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um að aðalfundurinn staðfesti
samruna við Útgerðarfélagið Glófaxa ehf.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á
skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfundinn.
Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins
eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Þau framboð
sem þegar hafa borist halda fullu gildi nema
viðkomandi dragi framboð sitt til baka.
STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Sögustund af hljóðbók kl. 10.30. Hugarþjálfun, leikir og
spjall kl. 13.30. Hámarksfjöldi 20 manns, það verður að skrá sig í síma
411-2600. Spritta sig þegar komið er inn og þegar farið er út.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Höfum opnað smá rifu á félags-
miðstöðina. Ákveðnar takmarkanir eru í gildi. Misjafnt eftir svæðum
hve margir komast inn í einu. Áfram þarf að huga vel að handþvotti
og sprittun bæði þegar komið er inn og þegar farið er út. Í suma
viðburði þarf að skrá sig í síma 411-2790. Nánari upplýsingar í síma
411-2790. Hlökkum til að sjá ykkur.
Korpúlfar Opið í Borgum 8:00 til 15:30 og kaffi á könnunni. Virðum
20 manna regluna og 2 metra. Förum rólega af stað og munum kynna
fljótlega sumarstarfið. Gönguhópar leggja af stað frá Borgum og
Grafarvogskirkju kl. 10 mánudaga. En miðvikudaga og föstudaga kl.
10 frá Borgum, boðið verður upp á nýjar gönguleiðir í sumar. Spritta
þarf hendur þegar komið er inn og út í Borgir. Allir velkomnir.
Seltjarnarnes Gler og leir í samráði við leiðbeinanda bæði í dag og
á miðvikudaginn. Jóga í dag með Öldu kl. 11.00 eingöngu fyrir íbúa á
Skólabraut. Handavinna á Skólabraut kl. 13.00 eingöngu fyrir íbúa á
Skólabraut. Ath. stefnt er að því að opna sundlaugarnar í dag 18. maí.
Hvetjum fólk til áframhaldandi varúðar varðandi fjarlægðamörk og
sóttvarnir.
Rað- og smáauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
með
morgun-
nu
✝ Þórunn G. Þor-steinsdóttir
fæddist á Efri-
Vindheimum,
Glæsibæjarhreppi í
Eyjafirði 22. októ-
ber 1936. Hún lést á
dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri, 3.
maí 2020.
Foreldrar Þór-
unnar voru Þor-
steinn Steinþórsson,
f. 19. júní 1884 á Hallfríð-
arstöðum í Hörgárdal, d. 4. júlí
1945, og Marzilína Sigfríður
Hansdóttir, f. 27. ágúst 1899 á
Myrká í Hörgárdal, d. 3. ágúst
1987. Börn Þorsteins og Mar-
zilínu: 1) Hálfsystir Þórunnar,
samfeðra, Jóhanna Lilja Antonía,
f. 3.12. 1917, d. 1998, 2) Baldur, f.
7.1. 1920, d. 2011, 3) Steinþór, f.
25.5. 1925, 4) Hans Hjörvar, f.
6.11. 1926, d. 2002, 5) Hulda, f.
22.5. 1928, d. 2009, 6) Hildigunn-
ur, f. 24.12. 1930, d. 2002, 7) Þór-
unn, f. 22.10. 1936, d. 2020.
Þórunn giftist eftirlifandi eig-
inmanni sínum Sigurði Gunnari
Flosasyni frá Hrafnsstöðum,
Ljósavatnshreppi, Suður-
26.5. 2008 og d) Eyjólfur Bjarki
Steinþórsson, f. 29.7. 2010.
Þórunn ólst upp á bænum Efri-
Vindheimum og vann þar framan
af við hin ýmsu bústörf enda
margt að gera. Í sveitinni lágu
leiðir hennar og Sigurðar saman
þar sem hann vann sem vinnu-
maður á næsta bæ. Eftir það varð
ekki aftur snúið og hófu ungu
hjónakornin líf sitt saman og bú-
skap þegar Sigurður lauk kenn-
aranámi. Þau hjónin fluttu nokkr-
um sinnum og bjuggu meðal
annars á Suðureyri, Dalvík og á
Akureyri. Á Akureyri byggðu þau
sér hús í Langholti 3 en þar
bjuggu þau lengi. Þau fluttu síðan
í Mýrarveg 111 árið 2000 og leið
ákaflega vel þar. Þórunn vann
fyrst og fremst sem húsmóðir en
starfaði einnig víða, til dæmis við
síldarvinnslu og barnapössun. Á
Akureyri vann hún hjá niðursuð-
unni og Heklu en einnig í þvotta-
húsum öldrunarheimila Akureyr-
ar, bæði á Skjaldarvík og á Hlíð.
Þá kom hún að umönnun íbúa á
Hlíð síðustu starfsár sín þar. Þór-
unn hafði yndi af að taka á móti
gestum og sinna fjölskyldu sinni
og þá sér í lagi börnunum. Hún
var mikil saumakona, hafði unun
af því að taka í spil, hlusta á góða
tónlist og ferðast.
Útför Þórunnar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 18. maí
2020, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Þingeyjarsýslu 25.9.
1955. Foreldrar hans
voru Þóra Sigurlaug
Sigurgeirsdóttir, f.
23.9. 1903, d. 31.3.
1996 og Flosi Sig-
urðsson, f. 7.11.
1904, d. 16.4. 1979.
Börn Þórunnar og
Sigurðar eru: 1)
Flosi Þórir Sigurðs-
son, f. 15.7. 1954, 2)
Þorsteinn Marinó
Sigurðsson, f. 28.8. 1961, d. 25.9.
1990, 3) Þórunn Sigurlaug Sigurð-
ardóttir, f. 31.1. 1964, gift Adolf
Inga Erlingssyni, f. 8.9. 1962. Börn
þeirra eru: a) Elva Dröfn Adolfs-
dóttir, f. 28.8. 1980, gift Hafliða
Gunnari Guðlaugssyni, f. 7.7.
1981. Börn þeirra eru: Þorgrímur,
f. 2006, Sigurlaug, f. 2009 og Þor-
björg, f. 2011, b) Marinó Ingi
Adolfsson, f. 6.9. 1996, c) Þórkatla
Ragna Adolfsdóttir, f. 30.1. 2002,
4) Steinþór Gunnar Sigurðsson, f.
25.7. 1971, kvæntur Kristínu Sig-
urðardóttur, f. 13.9. 1979. Börn
þeirra eru: a) Sigurður Már Stein-
þórsson, f. 11.7. 1998, b) Ágúst
Már Steinþórsson, f. 6.8. 2000, c)
Ingólfur Bjarki Steinþórsson, f.
Elsku tengdamamma. Sumir
segja að besta innihaldið leynist í
minnstu pökkunum og það er
óhætt að segja að sú fullyrðing
lýsi þér prýðilega. Þú varst
kannski ekki há í loftinu en því
stærri persónuleiki. Fyrstu árin
okkar Bróa saman fékk ég að
kynnast þér vel og er ég þakklát
fyrir það. Þótt þú værir frekar
lokuð í byrjun fórstu fljótt að
opna þig og fyrr en varði sýnd-
irðu mér hvernig manneskja þú
varst. Það var alltaf hægt að stóla
á stuðning þinn, umhyggju og
hlýju og þú reyndist bæði okkur
Bróa og strákunum öllum svo vel.
Við áttum gott samband og það
var gaman að gantast svolítið í
þér og við hlógum oft saman, ekki
síst að körlunum okkar. Þú
gekkst um með stríðnisglampa í
augunum og gast verið þrjósk, en
bara ef þess þurfti. Einhver ótrú-
leg seigla einkenndi þig, því
margur er knár þótt hann sé
smár, og sýndirðu okkur hana vel
í veikindum þínum sem þú tókst á
við af miklu æðruleysi og styrk.
Síðustu árin breyttist andlegt at-
gervi þitt og það var stundum erf-
itt að heimsækja þig því minnið
var farið og þú kannaðist lítið við
mig og yngstu drengina. Þú hlóst
nú samt og spjallaðir og þá glitti í
ömmu Tótu okkar og það yljaði
okkur. Þú varst mér svo kær og
mér þótti innilega vænt um þig.
Mig langar að þakka þér fyrir allt
sem þú gerðir fyrir okkur, takk
fyrir að hafa fætt í heiminn ynd-
islega manninn minn, takk fyrir
að vera drengjunum mínum góð
amma og takk fyrir að vera þú
sjálf. Prakkaraskapurinn þinn
færir fram bros á varir mínar og
ást ykkar hjóna og virðing hvort
fyrir öðru veitir mér byr í mínu
hjónabandi. Enda voruð þið sam-
an fram á síðustu stund. Þá var
líkamlega atgervið einnig farið en
ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að kveðja þig, strjúka
kinnina þína og dást að öllum fal-
legu freknunum þínum. Ég vona
að þú vitir að ég mun passa upp á
hann Bróa þinn og ömmustrák-
ana fjóra eins og ég mögulega
get. Takk fyrir allar yndislegu
minningarnar, fiskibollurnar í
gulu sósunni og hangikjötið á jól-
unum. Ég vona að þú hafir það
gott þar sem þú ert, þar sé frið-
sælt og hlýtt og að þið Steini getið
grínast hvort í öðru. Hvíldu í friði
elsku Þórunn mín, minning þín
lifir í okkur sem eftir stöndum.
Þín tengdadóttir og vinkona,
Kristín (Stína).
Elsku amma Tóta. Ég varð
mjög sorgmæddur þegar ég
heyrði að þú værir dáin því ég
hefði viljað heimsækja þig oftar.
Ég vildi að ég hefði fæðst aðeins
fyrr til að kynnast þér enn betur.
Þú varst algjör prakkari, mjög
góð og dugleg. Það var gott að
eiga þig sem ömmu og leitt að þú
fórst svona snemma. Ég veit að
afi elskaði þig mjög mikið og líður
illa núna en ég skal reyna að
hugga hann. Ég vona að þér líði
vel þar sem þú ert núna og
kannski er Steini frændi með
þér? Þú verður fallegur engill
amma mín og ég vona að þú pass-
ir mig á himnum. Þinn ömmu-
púki,
Ingólfur (Ingó).
Elsku amma, ég vildi að ég
fengi fleiri ár með þér og gæti
kynnst þér meira. Takk fyrir allt.
Mér fannst þú vera góð, fyndin og
skemmtileg. Þú varst góð amma
og passaðir mig oft þegar ég var
lítill. Það var gaman en líka pínu
erfitt að heimsækja þig á elli-
heimilið. Stundum mundirðu eftir
mér en stundum ekki en ég veit
að það var bara af því að þú varst
orðin pínu gömul. Ég vona að þú
fylgist með mér af himnum og
sofðu rótt. Þinn ömmustrákur,
Eyjólfur (Eyjó).
Þórunn G.
Þorsteinsdóttir
Nú er elsku Sjana
frænka farin heim í
sumarlandið sitt. Ég
veit að þar verður
hún umvafin hlýju og ástúð, þess-
um sömu eiginleikum sem voru
höfuðprýði þessarar yndislegu
frænku minnar, og sem hún miðl-
aði af miklu örlæti, en lítillæti og
hógværð. Mér fannst Sjana
frænka alltaf vera svo góð og hlý
við alla og líka í öllu umtali um
fólk. Hún auðsýndi mér alltaf
ómælda elsku og hlýju; mildin í
augum hennar og blíða brosið til
mín fannst mér alltaf segja mér
að henni þætti vænt um mig. Ég
var sannfærð um að hún væri
Kristjana
Jónsdóttir
✝ Kristjana Jóns-dóttir fæddist
29. desember 1923.
Hún lést 4. maí
2020.
Útför Kristjönu
fór fram 14. maí
2020.
svona góð við mig
fyrst og fremst
vegna þess að ég
væri frænka hennar,
– en svo líka, jú,
vegna þess að við, ég
og Þóra dóttir henn-
ar, vorum bestu vin-
konur á þessum
bernskuárum mín-
um á Skaganum.
Sem barn, þá man
ég að mér fannst svo
gaman að segja það við alla sem
heyra vildu að Sjana, konan hans
Sigga fisksala, væri frænka mín.
Með Sjönu frænku og hennar
fólki í næsta húsi, númer 60 við
Kirkjubraut, eignaðist ég nokkr-
ar af mínum fallegustu bernsku-
minningum ofan af Skaga. Þessar
minningar hafa mótað mig og
munu fylgja mér ævilangt. Fyrir
það er ég Sjönu frænku og hennar
fólki ævinlega þakklát.
Elsku Sjana frænka: mildin þín
og tryggð, heillaráð og hlýja voru
þér í blóð borin. Það má sjá af fal-
legu ljóði systkinanna tíu frá
Stóra-Botni í Hvalfirði til móður
sinnar, Jórunnar Magnúsdóttur,
ömmu þinnar og langömmu minn-
ar, sem andaðist hinn fyrsta sum-
ardag árið 1912. Meðal systkin-
anna tíu frá Stóra-Botni var faðir
þinn, Jón Gíslason, og amma mín,
Þorkatla Gísladóttir. Á þessari
kveðjustund hugsa ég til þín,
elsku frænka, og sendi börnum
þínum og afkomendum öllum
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Þau munu áfram og um
ókomna tíð búa að því mikla for-
eldraláni að hafa átt þig sem móð-
ur. Af þessu tilefni læt ég tvö vers
úr ljóðinu fallega til ættmóður
okkar vera huggun þeirra og
kveðju mína:
Móðir kær, vér minnast viljum þín.
Móðir kær, vér tíu börnin þín.
Móðir kær, af mildri drottins náð,
vér muna viljum öll þín heillaráð.
Far vel, móðir, fagnaðar í sal.
Far vel, móðir, þér ei gleyma skal.
Far vel, móðir, frelsarans í hönd.
Fel ég, móðir, þína kæru önd.
Góða ferð, elsku frænka, inn í
sumarlandið þitt.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir.