Morgunblaðið - 18.05.2020, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir nokkrum árum kom út í Aust-
urríki bók eftir Moniku Luise
Gschiel um Pál Pampichler Pálsson,
trompetleikara, stjórnanda, tónskáld
og kennara. Rut Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari, Sigurður Ingvi Snorrason
klarínettuleikari og Helga Hauks-
dóttir fiðluleikari ákváðu að gefa
bókina út á ís-
lensku og bæta
við köflum um líf
hans og starf á Ís-
landi með ís-
lenska lesendur í
huga. Bókin
Ljáðu mér vængi,
Minningabrot úr
lífi Páls Pamp-
ichlers Pálssonar
kom síðan út á 92 ára afmæli lista-
mannsins 9. maí síðastliðinn.
Þegar Paul Pampichler var 21 árs
hafði hann spilað í Fílharmoníusveit-
inni í Graz í nokkur ár, en fyrir til-
stilli kennara síns fór hann til Ís-
lands til að vera 1. trompetleikari í
Útvarpshljómsveitinni og stjórna
Lúðrasveit Reykjavíkur í eitt ár.
Hann festi hér rætur, varð íslenskur
ríkisborgari, tók upp íslenskt nafn
og átti ríkan þátt í uppbyggingu tón-
listarlífs hér á landi í 48 ár.
Kom víða við á 48 árum
„Hans fjölbreytta starf hér á Ís-
landi er ómetanlegt framlag til ís-
lensks tónlistarlífs,“ segir Rut. „Páll
var trompetleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í 10 ár og síðar
stjórnandi hennar. Hann stjórnaði
einnig Lúðrasveit Reykjavíkur,
Karlakór Reykjavíkur og Kammer-
sveit Reykjavíkur. Hann byggði upp
Drengjalúðrasveit Vesturbæjar sem
síðar varð Skólahljómsveit Vestur-
bæjar, sem var og er mikil uppeld-
isstöð fyrir verðandi hljóðfæraleik-
ara.“
Rut leggur áherslu á að Páll hafi
verið mjög framsýnn sem stjórnandi.
Hann hafi valið mörg mjög erfið verk
til flutnings þótt ekki hafi verið hér
sá fjöldi hljóðfæraleikara sem hafi
þurft. Hann hafi
komið víða við og
sé til dæmis
mörgum ógleym-
anlegur fyrir
Vínartónleika
Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar.
„Hann var tilval-
inn sem stjórnandi þeirra enda alltaf
léttur og glaður.“
Páll samdi fjölda verka fyrir ein-
staklinga og hópa og í bókinni birtist
í fyrsta sinn skrá yfir um 140 tón-
verk hans. „Vegna samkomubanns-
ins þurftum við að fara ýmsar króka-
leiðir til að koma verkalistanum
saman, en við lögðum allt í sölurnar
til að Páll fengi bókina í afmælis-
gjöf.“
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti, skrifar formála. Minn-
ingabrot úr lífi Páls eftir Moniku L.
Gschiel eru þungamiðjan í þýðingu
Rutar og Sigurðar, Stefán Þ. Steph-
ensen skrifar um heimilisvininn Pál,
Lárus H. Grímsson fjallar um Pál og
Drengjalúðrasveitina, Rut segir frá
Kammersveitinni, Kristöllum Páls
og fleiri verkum og „Vináttan“ nefn-
ist kafli Sigurðar.
Helga, Rut og Sigurður ákváðu í
lok febrúar að gefa bókina út og er
Helga skráður útgefandi en þau
fengu Prentsmiðju Guðjóns Ó. til að
sjá um prentun. „Þetta er skemmti-
leg bók sem segir frá æskuárum Páls
og árum hans hér, þar sem hann að-
lagast, lærir málið, stofnar fjöl-
skyldu og tekur alltaf að sér fleiri og
fleiri verkefni,“ segir Rut. Hún bætir
við að verkefnið, sem hafi tekið um
tvo og hálfan mánuð, hafi verið sér-
lega skemmtilegt, en fjáröflun vegna
útgáfunnar er á Karolina Fund til 3.
júní og þar má kaupa bókina.
Ómetanlegt framlag
Listamaður Páll Pampichler Pálsson stjórnaði m.a. Sinfóníuhljómsveitinni.
Bók um tónskáldið
Pál Pampichler Páls-
son, trompetleikara
og stjórnanda
Hljóðfæraleikarar Rut Ingólfsdóttir, Sigurður Ingi Snorrason og Helga
Hauksdóttir höfðu umsjón með útgáfu bókarinnar.
„Söfn eru jöfn: Fjölbreytni og
þátttaka allra 2020“ er þemað
hérlendis á alþjóðlega safna-
deginum sem haldinn er í dag. Í
ljósi kórónuveirufaraldursins
eru söfn hvött til að nota staf-
rænar lausnir til að fagna deg-
inum. Í tilefni dagsins veitir forseti Íslands Íslensku
safnaverðlaunin í Safnahúsinu í 20. sinn. Alls bárust 47
tilnefningar, en fimm verkefni eru tilnefnd. Þau eru í
stafrófsröð: Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi, sem
Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum, Tækniminjasafn
Austurlands á Seyðisfirði og Sjóminjasafn Austurlands á
Eskifirði standa að ásamt Gunnarsstofnun, menningar-
og fræðasetri á Skriðuklaustri í Fljótsdal; Fiskur og fólk
– sjósókn í 150 ár – ný grunnsýning Sjóminjasafns Borg-
arsögusafns Reykjavíkur og aðkoma tvennra hollvina-
samtaka, Óðins og Magna; 2019 – ár listar í almanna-
rými hjá Listasafni Reykjavíkur; Vatnið í náttúru Íslands
– ný grunnsýning Náttúruminjasafns Íslands og Varð-
veislu- og rannsóknamiðstöðvar Þjóðminjasafns Íslands
ásamt Handbók um varðveislu safnkosts.
Alþjóðlegi safnadagurinn í dag
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 139. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Þetta er lítill bær og allir einhvern veginn inni í þessu, ef
leikir vinnast þá vita allir af því. Það er ekki bara liðið
sem stendur eitt og sér, það eru allir sem styðja, það er
mjög spennandi,“ segir körfuknattleikskonan Embla
Kristínardóttir sem er gengin til liðs við Skallagrím en
mikill metnaður er fyrir kvennakörfunni í Borgarnesi.
Liðið varð bikarmeistari í boltagrein í fyrsta skipti í sögu
félagsins í vetur og vinnur nú hörðum höndum að því að
styrkja sig enn frekar fyrir átökin á næstu leiktíð. » 26
Landsliðskona gengin til liðs
við bikarmeistara Skallagríms
ÍÞRÓTTIR MENNING