Morgunblaðið - 18.05.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
„EF ÞÚ ERT EKKI HRIFIN AF EINS-
MANNS-HLJÓMSVEITUM GET ÉG SKIPT
YFIR Í ANNAÐ.”
„EF ÞÚ ERT SVONA KLÁR, HVERNIG
STENDUR ÞÁ Á ÞVÍ AÐ HEIMURINN VAR Í
ALGERU RUGLI ÁÐUR EN ÉG FÆDDIST?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að muna hvað hún
bað um.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OG NÚ AFTUR AÐ MYNDINNI
„STARFSVIÐTAL ÚLFAMANNSINS”
JÆJA, HERRA JÓNATAN, BÝRÐU
YFIR SÉRKUNNÁTTU?
ÉG GET SETIÐ OG VELT MÉR
YFIR Á BAKIÐ Á FULLU TUNGLI
HLJÓMAR EINS
OG TILVALINN
MILLISTJÓRNANDI
HELGA LAS FYRIR MIG LISTA NN
ÞINN YFIR ALLA HUGSANLEGA
ÓVINI HÉR Í KONUNGSRÍKINU …
ÞAÐ VAR EITT
NAFN ÞAR SEM ÉG
KANNAÐIST EKKI VIÐ!
Ó, JÁ … HANN ER
MATARGAGNRÝNANDI
HÉRAÐSBLAÐSINS!
markaðsmála hjá BM Vallá. Barna-
börn: Hörður Ingi, f. 1991, Sigurður
Guðni, f. 1997, Kjartan Ólafur, f.
2000 og Jón Halldór, f. 2004; 3) Hall-
dóra Ingimarsdóttir, f. 3.1. 1980,
sérfræðingur í markaðsmálum hjá
Sjóvá, búsett í Reykjavík. Barna-
barn: Sigrún Lára, f. 2010.
Systkini: Ísólfur Sigurðsson, f.
5.2. 1944, viðskiptafræðingur, bú-
settur í Hafnarfirði; Halldór Sig-
urðsson, f. 26.7. 1953, rafeindavirki,
búsettur í Kópavogi.
Foreldrar: Hjónin Sigurður
Guðni Ísólfsson, f. 10.7. 1908, d. 31.7.
1992, úrsmíðameistari, organisti og
söngstjóri í Fríkirkjunni í Reykja-
vík, og Rósamunda Ingimarsdóttir,
f. 16.9. 1915, d. 12.4. 2007, húsmóðir.
Þau voru búsett í Reykjavík.
Ingimar
Sigurðsson
Margrét Elíasdóttir
húsfr. í Fremri-Hnífsdal
Halldór Sölvason
b. í Fremri-Hnífsdal
Halldóra Margrét Halldórsdóttir
húsfreyja í Fremri-Hnífsdal
Ingimar Bjarnason
skipstj., útvegsb. og
oddviti í Fremri-Hnífsdal
Rósamunda Ingimarsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Rósamunda
Guðmundsdóttir
húsfreyja á Tannanesi
Bjarni Jónsson
formaður og b. á
Tannanesi í Önundarfirði
Friðrik Bjarnason
tónskáld í Hafnarfirði
Halldór Ingimarsson
togaraskipstjóri
Bjarni Pálsson b., og organisti
í Götu í Stokkseyrarhr.
Jónas Elíasson
prófessor
emeritus
Þuríður Pálsdóttir
söngkona
Páll Ísólfsson
tónskáld og organisti
Elías Ingimarsson forstjóri
Síldarverksmiðjunnar á
Skagaströnd
Bjarni Ingimarsson
togaraskipstjóri
Þórdís Eyjólfsdóttir
húsfr. í Símonarhúsum
Bjarni Jónsson
formaður og b. í
Símonarhúsum á Stokkseyri
Þuríður Bjarnadóttir
húsfreyja á Stokkseyri
Ísólfur Pálsson
formaður, organisti, hljóðfærasm.
og tónskáld á Stokkseyri
Margrét Gísladóttir
húsfr. og yfirsetukona
á Syðra- Seli
Páll Jónsson
formaður, b. og hreppstj á
Syðra-Seli í Stokkseyrarhr.
Úr frændgarði Ingimars Sigurðssonar
Sigurður Guðni Ísólfsson
úrsmíðameistari og
organisti í Rvík
Helgi R. Einarsson skrifar mér:„Það vill svo til að fyrir tæpu
ári fékk ég gimbur í afmælisgjöf og
var að hitta hana nú í sauðburði.
Á Vopnafirði á ég á,
sem á sér engan líka.
Það er alveg af og frá
að eigi margir slíka.
Hún er eins og hefðarmær,
af henni stafar ljóma.
Hún er finnst mér einstök ær
og eiganda til sóma.
Ef endurholdgun hendir mig,
að hrúti verð, með sjarma,
þá flýti mér að finna þig
og fer með þér að jarma.
Kveðja frá stoltum eiganda.“
Gústi Mar skrifar á Leir: „Þetta
„snjalla“ nýyrði, óínáanlegur, var í
fyrirsögn á Vísi.is fyrir stuttu“:
Á orðið hérna illa líst
er minn þanki tregur
Er þó sjálfur ekki síst
óínáanlegur.
Ólafur Stefánsson svaraði:
„Þetta „nýyrði“ er ekki eins nýtt og
halda mætti við fyrstu sýn. Í maí
2002 lét þingflokksformaður Sam-
fylkingar hafa eftir sér að það væri
orðinn kækur hjá Davíð Oddssyni
að koma með skýrslur þegar Hall-
dór væri óínáanlegur. Þá varð mér
að orði:“
Birtir skýrslur, baldinn þver,
við Brusselvaldið tregur,
þegar Halldór Ásgríms er
óínáanlegur.
Ég hitti karlinn á Laugaveginum
og fór með þessa vísu Ólafs. Hann
hló við, hallaði höfðinu upp og aft-
ur á bak til vinstri og kvað:
Með góðum vísum gjörir skemmta
gömlum, ungum
gúrkubóndi í Biskupstungum.
Á föstudag voru hér í Vísnahorni
vísur eftir Indriða á Fjalli. Um
hann sagði Guðmundur á Sandi að
Indriði væri „heimiliselskur mað-
ur“:
Hugurinn aftur hraður snýr,
heima finnur sína,
þóttú allar brjótir brýr
bak við hæla þína.
Komið gat fyrir, að Indriði léti í
veðri vaka að til væru einfaldir
menn á jörðinni:
Maðurinn, sem úti er,
undrun vekur mína:
heilanum úr höfði sér
hann er búinn að týna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stoltur fjáreigandi
og óínáanlegur