Morgunblaðið - 18.05.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2020
Leroy Sané, sóknarmaður enska
knattspyrnufélagsins Manchester
City, mun yfirgefa félagið í sumar en
þetta fullyrti Roman Weidenfeller,
fyrrverandi markvörður Borussia
Dortmund, í samtali við þýska fjöl-
miðla á dögunum. Sané mun ganga til
liðs við Þýskalandsmeistara Bayern
München en hann hefur verið sterk-
lega orðaður við þýska liðið und-
anfarin tvö tímabil.
Hann gekk til liðs við City frá Schalke
árið 2016 en Sané verður samnings-
laus sumarið 2021. Leikmaðurinn hef-
ur ekki viljað skrifa undir nýjan samn-
ing á Englandi og City þarf því að selja
hann í sumar ef liðið ætlar sér að fá
eitthvað fyrir hann. Sané hefur tvíveg-
is orðið Englandsmeistari með City og
þá var hann valinn besti ungi leik-
maður úrvalsdeildarinnar tímabilið
2017-18.
Eva Diljá Arnþórsdóttir og Raj K.
Bonifacius unnu bæði þrefalt á
Reykjavíkurmeistaramótinu í tennis
sem fram fór á tennisvöllum Víkings í
Fossvoginum um helgina. Þetta var í
annað sinn sem mótið er haldið en
Eva Diljá sigraði í einliðaleik kvenna
þar sem hún lagði Saule Zukauskaite
örugglega, 2:0.
Þá fékk hún einnig gullverðlaun í
einliðaleik U18 ára og í tvíliðaleik U16
ára ásamt Eygló Dís Ármannsdóttur.
Hún hafnaði svo í öðru sæti í einliða-
leik U16 ára. Raj lagði Björgvin Atla
Júlíusson 2:1 í úrslitaleik eftir að hafa
lent 1:0 undir.
Þá fékk Raj gullverðlaun í flokki öð-
linga 30 ára og eldri og flokki 40 ára
og eldri. Þá sigruðu þau Aleksander
Stojanovic, Víkingi, og Eygló Dís Ár-
mannsdóttir, Fjölni, bæði í einliða-
flokki U16 ára og U14 ára.
Norski knattspyrnumaðurinn Erling
Braut Haaland skoraði fyrsta mark
Dortmund í öruggum 4:0-sigri á
Schalke í þýsku 1. deildinni á laugar-
daginn. Var markið það tíunda sem
hann skorar fyrir liðið í deildinni í níu
leikjum. Norðmaðurinn byrjaði leiktíð-
ina hjá Salzburg í Austurríki þar sem
hann skoraði 16 deildarmörk fyrir ára-
mót. Þá skoraði hann tíu mörk í Meist-
aradeildinni. Markið í gær þýðir því að
hann hefur skorað tíu eða fleiri mörk í
þremur keppnum með félagsliðum á
leiktíðinni.
Sænski knattspyrnumaðurinn Zlat-
an Ibrahimovic verður ekki áfram hjá
ítalska liðinu AC Milan þegar samn-
ingur hans rennur út í sumar en það
var fyrrverandi þjálfari hans hjá Inter
Mílanó, Sinisa Mihajlovic, sem greindi
frá þessu í samtali við ítalska fjöl-
miðla. Mihajlovic, sem nú stýrir liði
Bologna, segist hafa rætt við Svíann á
dögunum en Zlatan er
mættur aftur til Ítalíu
eftir að hafa dvalist í
heimalandi sínu og
æft með Hammarby
undanfarnar vikur
vegna kórónuveiru-
faraldursins. AC
Milan er í sjöunda
sæti ítölsku A-
deildarinnar, 17
stigum á eftir
toppliði Juven-
tus þegar liðið á
tólf leiki eftir. Zlat-
an, sem er orðinn
38 ára, kom til AC
Milan í janúar frá
LA Galaxy og hefur
skorað þrjú mörk í átta
deildarleikjum.
Eitt
ogannað
GOLF
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá
Björgvinsdóttir og Andri Þór
Björnsson fögnuðu sigri á ÍSAM-
mótinu á heimslistamótaröðinni í
golfi á Hlíðavelli um helgina. Allir
sterkustu atvinnukylfingar Íslands
voru mættir til leiks, sem og efni-
legir áhugamannakylfingar.
Spennan var mikil í karlaflokki og
enn meiri í kvennaflokki þar sem
úrslitin réðust ekki fyrr en á
sjöttu holu í bráðabana. Að lokum
hafði Guðrún betur gegn Ólafíu
Þórunni Kristinsdóttur eftir sann-
kallaða maraþonviðureign í bráða-
bananum. Guðrún var í forystu
nánast allt mótið, en Ólafíu tókst
að saxa á Íslandsmeistarann og
jafna þegar fjórar holur voru eftir.
Tókst hvorugri þeirra að tryggja
sér sigurinn eftir 18 holur og því
réðust úrslitin í bráðabana, en þær
luku báðar leik á samtals tveimur
höggum undir pari.
Rosalega kalt í lokin
„Þetta var langt en það er gott
að enda þetta á sigri,“ sagði Guð-
rún Brá kát við Morgunblaðið þeg-
ar sigurinn var í höfn. Kylfingar
léku tvo hringi á laugardag og
einn í gær og viðurkennir Guðrún
að það hafi tekið á, sérstaklega
eftir langan bráðabana.
„Þetta var ótrúlega langur dag-
ur á laugardag og svo varð þessi
seinni dagur mun lengri en maður
ætlaði sér en svoleiðis er þetta
stundum. Ég viðurkenni að ég er
orðin þreytt og það var rosalega
kalt í lokin, en maður verður búinn
að ná sér á morgun.“
Guðrún var með fjögurra högga
forystu eftir fyrsta hringinn, en
fataðist örlítið flugið á öðrum og
þriðja hring og Ólafía nýtti sér
það. „Ég gerði sjálf mjög fá mis-
tök á þessum þremur hringjum og
það skilaði góðu skori. Ólafía fékk
svo nokkra fugla í röð og ég fann
hún var komin í mikinn ham. Ég
náði ekki alveg að gefa í eins og ég
vildi, en sem betur fer endaði
þetta vel,“ sagði Guðrún.
Guðrún leikur á Evrópumóta-
röðinni, en óvíst er hvenær næsta
mót fer fram og hvenær Guðrún
getur leikið næst. „Ég bíð eftir
kalli að utan. Maður er ánægður
að geta spilað hérna heima og ég
er þakklát fyrir það,“ sagði Ís-
landsmeistarinn.
Ólafía Þórunn, sem hefur verið
fremsti kylfingur Íslands síðustu
ár, var brött, þrátt fyrir svekkj-
andi tap. „Mér líður ágætlega. Það
var nokkrum sinnum sem við hefð-
um getað klárað þetta, en það
tókst ekki fyrr en ég missti höggið
á síðustu bráðabanaholunni,“ sagði
hún strax eftir keppni. Var Ólafía
nokkuð sátt með eigin frammi-
stöðu, sérstaklega í ljósi þess að
hún var að elta Guðrúnu stærstan
hluta móts. „Ég er ekki svekkt.
Ég er sátt með hvernig ég kom til
baka og þetta var ágætisæfing í
pressugolfi og svo ágætisæfing í
bráðabana sömuleiðis. Það er eig-
inlega draumastaðan að vera að
elta. Ef maður trúir á sjálfan sig
er gott að koma aftan frá.“
Ullarnærfötin komu sér vel
Ólafía hefur lítið keppt hér á
landi síðustu ár og hún lét ekki
svalt veður á sig fá. „Ég keppti í
ullarnærfötum og mér var mjög
hlýtt. Ég var vel undirbúin. Það
tók auðvitað á að spila í vindinum
og svo eru vellirnir erfiðari en ég
hef vanist í Bandaríkjunum. Mað-
ur þarf að vera góður í að aðlagast
og keppa á mismunandi völlum
viku eftir viku,“ sagði Ólafía Þór-
unn.
Í karlaflokki réðust úrslitin á
lokaholunni. Atvinnukylfingurinn
Andri Þór Björnsson hafði að lok-
um betur eftir hörkukeppni við
hinn 17 ára gamla Dagbjart Sig-
urbrandsson, sem er gríðarlega
efnilegur. Dagbjartur hefði getað
tryggt sér sigurinn á lokaholunni
og þá fékk hann einnig tækifæri til
að tryggja sér bráðabana. Klikkaði
hann hinsvegar á tveimur púttum
og Andri stóð uppi sem sigurveg-
ari á fjórum höggum undir pari.
Andri lauk leik á undan og fylgdist
spenntur með örlögum sínum. „Ég
var ósköp rólegur. Ég beið og sá
hvað gerðist. Auðvitað var gott að
vinna, það er langt síðan ég vann
síðast. Ég var rólegur en á sama
tíma tilbúinn ef að kæmi til bráða-
bana,“ sagði Andri við Morg-
unblaðið. Hann var nokkuð sáttur
við sína spilamennsku á mótinu,
þótt hann vilji á sama tíma gera
betur. „Þetta var nokkuð gott.
Auðvitað er maður ryðgaður eftir
það sem undan er gengið en þetta
er allt á réttri leið. Ég hef náð að
spila mikið á meðan það er gott
veður og svo hef ég náð að æfa vel
undanfarið, en ég á samt nóg
inni.“
Framtíðin björt
Helstu keppinautar Andra á
mótinu voru ungir áhugamenn og
segir hann framtíðina bjarta í ís-
lensku golfi. „Það er fullt af frá-
bærum kylfingum á Íslandi og
kylfingarnir verða betri og betri
með hverju árinu. Framtíðin er
björt hérna á Íslandi,“ sagði
Andri.
Dagbjartur er einn efnilegasti
kylfingur landsins og viðurkennir
hann að það hafi verið svekkjandi
að lenda í öðru sæti, eftir að hafa
verið í forystu fyrir lokahringinn.
„Ég er svekktur með hvernig ég
kláraði, sérstaklega miðað við
fyrstu tvo hringina. Vindurinn var
erfiðari á lokahringnum og ég
klúðraði síðustu holunni. Þetta var
ekkert hræðilegt, en ég vildi vinna
þetta,“ sagði Dagbjartur við Morg-
unblaðið.
Ljóst er að mótið gefur góð fyr-
irheit fyrir golfsumarið á Íslandi.
Bestu kylfingar landsins taka þátt
og verður spennan vonandi eftir
því.
Maraþon í Mosfellsbæ
Guðrún vann eftir sex holur í bráðabana Úrslitin réðust á lokaholunni í
karlaflokki Allir sterkustu áhuga- og atvinnukylfingar landsins tóku þátt
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einbeitt Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann í kvennaflokki.
Átta leikmenn skrifuðu undir samn-
ing við handknattleikslið Þórs á
Akureyri um helgina en liðið leikur
í úrvalsdeildinni, Olísdeildinni, á
komandi leiktíð.
Markvörðurinn Jovan Kukobat
kom frá KA og Karolis Stropus
kom frá Aftureldingu. Þá fram-
lengdu þeir Arnar Þór Fylkisson,
Garðar Már Jónsson, Heimir Páls-
son, Ihor Kopyshynskyi, Valþór
Atli Guðrúnarson og Þórður Tandri
Ágústsson allir samninga sína við
félagið. Þórsarar fóru með sigur af
hólmi í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Átta sömdu við
Þór á Akureyri
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Varsla Jovan Kukobat lék með KA á
Akureyri á síðustu leiktíð.
Körfuknattleiksdeild Fjölnis samdi
við tvo nýja leikmenn á dögunum
en liðið er nýliði í úrvalsdeild
kvenna, Dominos-deildinni, á næstu
leiktíð.
Sara Diljá Sigurðardóttir samdi
við félagið en hún er uppalin hjá
Fjölni. Sara gekk til liðs við Snæfell
árið 2015 þar sem hún varð Íslands-
og bikarmeistari, tímabilið 2015-16.
Þá skrifaði Emma Sóldís Svan
Hjördísardóttir undir samning við
félagið en hún er aðeins 16 ára
gömul og á meðal efnilegustu leik-
manna á landinu í dag .
Liðsstyrkur í
Grafarvoginn
Morgunblaðið/Stella Andrea
Frákast Sara Diljá Sigurðardóttir
varð tvöfaldur meistari 2016.
Knattspyrnukonan Anna Björk Kristjánsdóttir er geng-
in til liðs við Selfoss en þetta var tilkynnt um helgina.
Anna Björk, sem er þrítug, kemur til félagsins frá hol-
lenska úrvalsdeildarfélaginu PSV þar sem hún hefur
leikið frá árinu 2019. Hún á að baki 43 A-landsleiki fyrir
Ísland en hún er uppalin hjá KR í Vesturbæ. Hún gekk
til liðs við Stjörnuna árið 2009 þar sem hún varð þrívegis
Íslandsmeistari og þrívegis bikarmeistari. Árið 2016
hélt hún í atvinnumennsku og samdi við úrvalsdeildarlið
Örebro í Svíþjóð. Hún lék í eitt tímabil með Örebro áður
en hún gekk til liðs við Limhamn Bunkeflo sem þá var
nýliði í efstu deild Svíþjóðar en þar lék hún til ársins
2019. „Um leið og ég fór að tala við þjálfarana og fólkið í kringum liðið á
Selfossi þá heyrði ég hvað það er mikill metnaður hérna og það heillaði
mig. Það tala allir vel um Selfoss og það eru skýr markmið og mikill upp-
gangur hjá liðinu,“ sagði Anna Björk í samtali við heimasíðu UMFS.
Landsliðskona á Selfoss
Anna Björk
Kristjánsdóttir
Körfuknattleikskappinn Kristinn Pálsson er genginn til
liðs við Grindavík en þetta kom fram á Facebook-síðu fé-
lagsins um helgina. Kristinn skrifaði undir tveggja ára
samning við Grindvíkinga en hann kemur til félagsins
frá nágrönnunum í Njarðvík þar sem hann hefur leikið
allan sinn feril, að undanskildum árunum þar sem hann
lék í bandaríska háskólaboltanum. Kristinn á að baki 15
A-landsleiki en hann skoraði 10 stig að meðaltali með
Njarðvík í vetur, ásamt því að taka fimm fráköst.
Kristinn fetar þar með í fótspor föður sín, Páls Krist-
inssonar, sem lék með Grindavík um árabil.
„Kristinn er frábær leikmaður sem hlaut góða þjálfun
ungur að árum í Njarðvík. Hann hefur mikla körfuboltahæfileika en það
sem eru hvað sterkustu eiginleikarnir hjá Kristni eru leiðtogahæfileikar
hans og skilningur á leiknum,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari
Grindvíkinga, eftir komu Kristins til félagsins.
Frá Njarðvík til Grindavíkur
Kristinn
Pálsson