Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 2
Jóhannes Guðmunds- son, til vinstri. Bjarni Þór og Jóhanna Lea Lúðvíksbörn. Viktor Ingi Einarsson. Sigurður Bjarki Blumenstein. Ásdís og Nína Valtýsdætur. Ekki er hjá því komist að allir kylfingar eru einhvern tíma byrjendur. Leiðbeinendur á námskeiðunum í sumar í Golfskóla GR hafa náð afar góðum tökum á íþróttinni og láta að sér kveða sem keppnisfólk. Þau voru eitt sinn byrjendur eins og aðrir en stigu fyrstu skref sín í íþróttinni á nám- skeiðum hjá GR. Meðfylgjandi eru myndir af leiðbeinendunum frá þeim tíma. Byrjuðu sjálf á sumarnám- skeiðum G olfskóli GR er starf- ræktur yfir sumartím- ann og er hugsaður fyrir börn og unglinga á aldr- inum 7-15 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í golf- íþróttinni. Námskeiðin fara fram á æfingasvæði Bása í Grafarholti. Öll- um er heimil þátttaka hvort sem viðkomandi er félagi í golfklúbbi eða ekki. GR leggur mikla áherslu og metnað í að halda vönduð sum- arnámskeið fyrir krakka sem eru að byrja í golfi. Yfirþjálfarar klúbbsins, Snorri Páll Ólafsson, David George Barnwell og Derrick Moore, hafa umsjón með námskeið- unum. Afrekskylfingar í GR leiðbeina einnig á námskeiðunum. Þau heita Jóhannes Guðmundsson, Viktor Ingi Einarsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Ásdís Valtýsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Nína Valtýsdóttir og Bjarni Þór Lúðvíks- son. Leiðbeinendurnir eru marg- faldir íslandsmeistarar í ýmsum aldursflokkum í golfi, þ.e. í högg- leik, holukeppni og sveitakeppnum. Byrjuðu sjálf á námskeiðum Leiðbeinendurnir eiga það allir sammerkt að hafa byrjað í golfi á sumarnámskeiðum GR. Þaðan fóru þau svo á sínar fyrstu reglulegu æfingar í barna- og unglingastarfi GR, en það starf er rekið allt árið. Þeir krakkar sem koma á sumar- námskeiðin þurfa ekki að eiga kylf- ur eða vandaðan búnað þegar þau koma á fyrsta námskeiðið þar sem þau geta fengið búnað lánaðan hjá klúbbnum, a.m.k. fyrstu skrefin. Við hvetjum því sem flesta foreldra til að gefa börnum sínum tækifæri á því að prófa að æfa golf hjá GR undir leiðsögn góðra kennara. Námskeiðin hefjast klukkan 9:00 alla morgna og standa til klukkan 13:00. Mæting er í Básum í Grafar- holti þar sem leiðbeinendur taka á móti krökkunum. Þátttakendur eru beðnir að koma klæddir eftir veðri og hafa með aukafatnað. Vera við- búnir öllu hvað veður varðar. Einn- ig er æskilegt að hafa með sér hollt nesti og drykk. Eftir að hafa lokið námskeiði stíga krakkarnir mörg hver inn í starfið hjá klúbbnum og stunda reglubundnar æfingar allt árið um kring og eru þau tilbúin í að takast á við flóknari verkefni á skemmti- legum og árangursmiðuðum æfing- um eftir veru sína í Golfskólanum. Hentugt til að stíga fyrstu skrefin Morgunblaðið/Eggert Upplagt er fyrir börnin að kynnast golfíþrótt- inni á námskeiðum í sumar Frá vinstri: Nína, Ásdís, Jóhanna, Bjarni, Viktor, Sigurður og Jóhannes. Þ etta er í annað sinn á tveimur árum sem barna- og unglingastarf Golf- klúbbs Reykjavíkur gefur út efn- ismikið blað, í afar góðu og ánægjulegu samstarfi við Morg- unblaðið, í því skyni að kynna starfsemina og þá möguleika sem golfíþróttin hefur upp á að bjóða þegar börn ákveða velja sér tóm- stundir. Í blaðinu er lögð rík áhersla á það að upplýsa foreldra barna um það hvernig þau geti borið sig að við að byrja í golfi, hvaða búnað þarf að nálg- ast eða eiga fyrstu metr- ana í golfinu, hver kostn- aður fylgi því að byrja að stunda golf og hvernig dagskráin er hjá Klúbbnum. Þá er enn fremur lögð rík áhersla á að kynna það fyrir foreldrum hverjir taka á móti börnunum og leiði þau áfram fyrstu skrefin í golfinu, hvernig ber að hegða sér í golfi þegar börn eru að stíga sín fyrstu skref og hvaða siði og venjur ber að halda í heiðri þegar íþróttin er stunduð, en íþróttin gerir kröfu um aga. Þá er einnig að finna í blaðinu kynningu á því, hafi börn áhuga á að halda áfram í golfi eftir fyrstu kynnin á byrjendanámskeiðum, hvernig skuli bera sig að í framhaldinu Þrátt fyrir að meginstef blaðsins sé kynn- ing á því sem barna og unglingastarf klúbbsins býður upp á þá er tilgangurinn með útgáfunni einnig sá að kynna fyrir þeim sem lengra eru komnir á lífsleiðinni þá möguleika sem golfið býður upp á. Það sem er einkennandi fyrir golfið er sú staðreynd að þar geta margar kynslóðir komið saman og leikið sér. Það end- urspeglar vel hve fjölskylduvæn íþróttin er. Í blaðinu er að finna viðtal við fjölskyldu þar sem kynslóðir koma saman og leika golf reglulega. Þá verður að nefna að í blaðinu er að finna viðtöl við þjóðþekkta klúbbfélaga, þau Ragnhildi Sigurðardóttur og Sigurð Pét- ursson, sem hafa unnið nánast allt sem hægt er að vinna hér á landi. Þau hafa líka haldið merki klúbbsins hátt á lofti í gegnum tíðina. Blaðið lagði sig fram um að fá þessar goð- sagnir til að tjá sig um það hvernig þau byrjuðu í golfi, hvað golfið hefur gefið þeim og margt fleira. Þá er ljóst að frásagnir af lífshlaupi þessara mögnuðu einstaklinga skapa sögur sem lifa. Í blaðinu er að finna umfjöllun um barna- og ungmennamót GR, þ.e. Reykjavík Junior Open, en mótið hóf göngu sína í fyrra. Það hefur verið markmið klúbbsins frá upphafi að reyna að þróa mótið í þá átt að það geti með tíð og tíma orðið stórt alþjóðlegt barna- og unglingamót hér á landi. Hvort það takist mun tíminn einn leiða í ljós, en eðli málsins samkvæmt var margt sem gerði að verkum að ákveðið var að fara ekki inn á þá braut þetta árið. Sú breyting hefur orðið á móta- haldinu í ár að mótið verður liður í stiga- mótaröð GSÍ. Er full ástæða til að fagna því. Auk umfjöllunar um þetta mót er fjallað um mót GSÍ og enn fremur hvert börn og ung- menni geta farið til keppni, að teknu tilliti til getustigs, vilji þau taka þátt í mótum. Auk þess sem hér að framan er rakið er margvíslegt annað efni að finna í blaðinu. Má þar nefna kynningu á golfklúbbum Vest- mannaeyja og Mosfellsbæjar, þar sem mikið og vandað starf fer fram, auk margvíslegs annars efnis, þ.m.t. upplýsingar um næringu o.fl. Gleðilegt golfsumar. Golfblað GR Í blaðinu er lögð rík áhersla á það að upplýsa foreldra barna um það hvernig þau geti borið sig að við að byrja í golfi Lúðvík Bergvinsson, formaður foreldraráðs GR Morgunblaðið/Hari Ungir iðkendur í GR í Grafarholtinu. Lúðvík Bergvinsson 2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 Útgefandi Árvakur Umsjón Kristján Jónsson Blaðamenn Kristján Jónsson kris@mbl.is Auglýsingar Bjarni Ólafur Guðmundsson daddi@k100.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Eggert af Andra Þór Björnssyni, sigurvegara ÍSAM-mótsins. Skráningar í Golfskóla GR fara fram á félagavef klúbbsins: www.grgolf.felog.is Gjaldið Þátttökugjald er 14.100 kr. og innifalið í því er:  Fjögurra daga kennsla í Golf- skóla GR.  Aðgangur að Grafarkots- og Thorsvelli út sumarið 2020.  Boltakort í Bása.  Pítsuveisla á lokadegi.  Diplóma í lok námskeiðs. Tveggja vikna aðgangur að æf- ingum í barna- og unglingastarfi GR að loknu námskeiði.  Systkinaafsláttur, 20%, er veittur (20% af gjaldi annars, þriðja og fleiri systkina). Námskeiðin 2020 Sumarið 2020 verða námskeiðin haldin á eftirfarandi dagsetn- ingum:  Námskeið 1. 22.-25 júní  Námskeið 2. 29. júní til 2. júlí  Námskeið 3. 13.-16. júlí  Námskeið 4. 27.-30. júlí  Námskeið 5. 10.-13. ágúst. Skráning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.