Morgunblaðið - 21.05.2020, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Af hverju fórstu að æfa golf?
Pabbi stakk upp á því að prófa og mér fannst það
ótrúlega gaman.
Hvað hefurðu æft lengi?
Í næstum fjögur ár.
Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa?
Það sem er skemmtilegast eru vippin.
Í hverju þarftu að bæta þig?
Ég þarf að bæta mig í púttunum.
Uppáhaldskylfan í pokanum?
56° [fleygjárn].
Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á
hring?
Í byrjun síðasta sumars.
Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring?
86 högg.
Hvert er besta golfráðið?
Spila og spila.
Hver er fyrirmynd þín í golfinu?
Ragnhildur Sigurðardóttir, Ragnhildur Kristins-
dóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Annika Sören-
stam, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Hulda Clara
Gestsdóttir.
Hvert er draumahollið þitt?
Ólafía Þórunn, Annika og Ragga.
Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa
golf?
Prófa og fá góðan kennara.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Að keppa og spila með vinkonum sem ég hef
kynnst í gegnum golfið.
Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR
Ljósmynd/GR
Berglind Ósk
Geirsdóttir 15 ára
Af hverju fórstu að æfa golf?
Mér fannst mjög gaman að spila golf.
Hvað hefurðu æft lengi?
Ég hef æft golf í 7 ár.
Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa?
Pitch og chip.
Í hverju þarftu að bæta þig?
Ég þarf að bæta mig í lengri járnahöggum.
Uppáhaldskylfan í pokanum?
Pútterinn og 58̊ [fleygjárn].
Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á
hring?
Ég man það ekki.
Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring?
Einn yfir pari í Borgarnesi.
Hver er fyrirmynd þín í golfinu?
Ég hef aldrei pælt í því.
Hvert er draumahollið þitt?
Get ekki ákveðið mig.
Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa
golf?
Að æfa hjá GR.
Hvað er skemmtilegast við golfið?
Að spila golf í útlöndum.
Ljósmynd/GR
Ísleifur Arnórsson 16 ára
Þ
egar börn og unglingar eru komin af
stað í íþróttinni, og farin að spila að
fullum krafti, færist hugurinn gjarn-
an nær keppnisgolfinu. Kylfingar á
mismunandi getustigum í barna- og
unglingastarfinu geta tekið þátt í mótum við
sitt hæfi á sínum forsendum og fært sig yfir í
hærri þrep eftir því sem geta og áhugi á keppn-
isgolfinu eykst.
Innanfélagsmótin
Flestir af stærri golfklúbbunum halda úti inn-
anfélagsmótaröð þar sem yngstu kylfingarnir
geta brotið ísinn og fengið jákvæða reynslu af
því að keppa, í umhverfi sem þau þekkja vel
þar sem þau etja kappi við æfingafélaga sína.
GR heldur 10 mót yfir sumarið fyrir iðkendur
frá 6-18 ára á Icelandair Cargo-mótaröðinni.
Flokkunum er skipt upp eftir aldri og getu og
er mikið lagt upp úr því að þau sem eru að
stíga fyrstu skrefin finni jákvæða upplifun af
því að vera með. Þau yngstu leika af gull-
teigum sem eru fremstu teigarnir á vellinum
og leika níu holur en þau eldri og reyndari
leika 18 holur af aftari teigum.
Áskorendamótaröð GSÍ
Eftir að hafa leikið á mótaröðinni í heima-
klúbbnum vilja börnin oft taka næsta skref og
liggur leiðin þá á Áskorendamótaröðina þar
sem fimm mót eru haldin á laugardögum yfir
sumarið víðs vegar um landið. Þar á að vera
gaman á vellinum og aðaláherslan lögð á að
læra leikinn og mismunandi leikform hans.
Þjálfarar og foreldrar eru hvattir til virkrar
þátttöku og að gera þessi mót sem skemmti-
legust fyrir þátttakendur með jákvæðu hug-
arfari í kringum umgjörð móta.
Þátttakendur geta valið um að leika í níu
eða 18 holu flokki og er áhersla lögð á já-
kvæða upplifun umfram úrslitin á vellinum.
Að móti loknu er boðið upp á grillaðar pylsur
sem börn og foreldrar gæða sér á meðan á
verðlaunaafhendingu stendur.
Unglingamótaröð GSÍ
Mótaröðin er fyrir framtíðarkylfinga 21 árs og
yngri sem komnir eru með reynslu af keppn-
isgolfi í sínum heimaklúbbi á áskorendamóta-
röð og tilbúnir að taka næstu skref. Mótaröðin
inniheldur alls fimm mót á hverju tímabili og
haldinn er sérstakur stigalisti yfir stöðu leik-
manna á mótaröðinni sem er uppfærður eftir
hvert mót. Í lok tímabils eru efstu leikmönnum
hvers aldursflokks veitt verðlaun fyrir stiga-
meistaratitil GSÍ.
Mótaröðin er samstarfsverkefni Golf-
sambands Íslands og þeirra golfklúbba sem
halda mótin, en mótaröðin hefur vaxið hratt á
undanförnum árum bæði í fjölda og styrk
keppenda. Elstu aldursflokkarnir hefja því
keppni einum degi fyrr en aðrir keppendur.
Alls eru keppnisflokkarnir fjórir hjá báðum
kynjum á mótaröðinni: 19-21 árs, 17-18 ára, 15-
16 ára og 14 ára og yngri.
Stigamótaröð GSÍ
Stigamótaröðin er mótaröð fyrir bestu kylfinga
landsins og til að fá þátttökurétt þarf að upp-
fylla ákveðin forgjafarskilyrði. Einnig getur
staða á stigalista ráðið því hvort leikmenn fá
boð til þátttöku á einstökum mótum. Efnileg-
ustu unglingarnir sem leika á unglingamóta-
röðinni taka yfirleitt þátt í stigamótaröðinni ef
mótin skarast ekki og ná sér þar með í mik-
ilvæga reynslu með því að reyna sig á meðal
þeirra bestu á stærri vettvangi. Í lok hvers
tímabils hljóta efstu kylfingar, í hvorum flokki
fyrir sig, titilinn stigameistarar GSÍ.
Íslandsmótið í golfi hefur verið hátindur
tímabilsins en þar er leikið um Íslandsmeist-
aratitilinn í höggleik sem er án efa eftirsóttasti
titill sem völ er á í íslensku golfi. Til mikils er að
vinna en verðlaun á mótaröðinni eru glæsileg
og afreksstjóri GSÍ fylgist vel með árangri leik-
manna og styðst við það í vali sínu á leik-
mönnum sem sendir eru í landsliðsverkefni er-
lendis á vegum GSÍ.
Íslandsmót golfklúbba
Íslandsmót golfklúbba er hápunktur keppn-
istímabilsins hjá flestum í barna-, unglinga- og
afreksgolfinu. Mótið er haldið í öllum aldurs-
flokkum frá 12 ára og yngri og allt upp í öld-
ungaflokka karla og kvenna. Mótið hefur þá
sérstöðu að vera liðakeppni milli golfklúbbanna
þar sem klúbbarnir keppa sín á milli í riðlum
áður en farið er í úrslitakeppni um sæti.
Þegar kylfingarnir sem vanir eru að leika
sem einstaklingar koma saman sem lið og
keppa fyrir félagið sitt verður oft til frábær
stemning í hópnum ásamt mikilli spennu og
dramatík á vellinum þar sem leik-
fyrirkomulagið er holukeppni sem býður upp á
miklar sviptingar meðan á leiknum stendur.
Hjá yngri liðunum eru foreldrar oft þátttak-
endur og fylgja börnum sínum og liðsfélögum
eftir ásamt því að smyrja nesti og rétta þjálf-
urum hjálparhönd við skipulagið svo allt gangi
sem best, þau eru því þátttakendur í verkefni
liðsins og smitast þessi góða stemning yfir á
alla sem taka þátt í mótinu.
Auðvelt að svala keppnisþörfinni
Þrepaskipt keppnisgolf hjá
ungmennum. Eitthvað í boði
fyrir kylfinga á hvaða getustigi
sem er
Ljósmynd/GR
Sveitir GR fagna sigri í sveita-
keppni GSÍ 15 ára og yngri
S
norri Páll Ólafsson, Derrick John
Moore og David George Barnwell
eru allir PGA-menntaðir golfkenn-
arar sem starfa hjá GR og búa þeir
yfir mikilli reynslu þegar kemur að
þjálfun barna, unglinga og afrekskylfinga.
Snorri hefur verið meðlimur í GR í 25 ár og
hefur starfað hjá GR við þjálfun undanfarin 10
ár ásamt því að sinna skipulagshluta starfsins,
samskiptum við foreldra og upplýsingagjöf
undanfarin 2 ár.
David er fæddur í Englandi en flutti til Ís-
lands árið 1986. David starfaði um árabil hjá
Golfklúbbi Akureyrar við miklar vinsældir
heimamanna. David hefur starfað við góðan
orðstír um land allt en hann hefur starfað hjá
GR sem ungmennaleiðtogi undanfarin 10 ár.
Derrick er fæddur og uppalinn í Skotlandi
en flutti til Reykjavíkur árið 1999 þar sem
hann starfaði sem yfirkennari til ársins 2006.
Derrick kom aftur til starfa hjá GR árið 2019
eftir að hafa starfað um árabil hjá GKG við
góðan orðstír og vinnur nú náið með David við
þjálfun og fræðslu yngri iðkenda GR.
Þremenningarnir segjast leggja mikið upp
úr því að búa til jákvætt umhverfi innan
klúbbsins fyrir alla iðkendur og er stóra mark-
miðið að iðkendurnir læri leikinn, reglurnar,
gildi og siði og stundi íþróttina á eigin for-
sendum sér til ánægju í nútíð og framtíð.
Hafa þeir allir gaman af því að fá að vinna
með kylfingum í öllum aldurshópum á hverjum
degi og hafa metnað til þess að viðhalda því
sem við höfum gert vel og bæta það sem við
getum bætt til þess að gera vinnuumhverfið
enn betra og skemmtilegra fyrir iðkendur og
félagsmenn.
Hverjir taka við krökkunum?
Morgunblaðið/Hari
Snorri Páll Ólafsson, Derrick Moore og David Barnwell.
Þjálfararnir þrír hjá GR
eru þrautreyndir