Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 21.05.2020, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 Af hverju fórstu að æfa golf? Pabbi stakk upp á því að prófa og mér fannst það ótrúlega gaman. Hvað hefurðu æft lengi? Í næstum fjögur ár. Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa? Það sem er skemmtilegast eru vippin. Í hverju þarftu að bæta þig? Ég þarf að bæta mig í púttunum. Uppáhaldskylfan í pokanum? 56° [fleygjárn]. Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á hring? Í byrjun síðasta sumars. Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring? 86 högg. Hvert er besta golfráðið? Spila og spila. Hver er fyrirmynd þín í golfinu? Ragnhildur Sigurðardóttir, Ragnhildur Kristins- dóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Annika Sören- stam, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir. Hvert er draumahollið þitt? Ólafía Þórunn, Annika og Ragga. Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa golf? Prófa og fá góðan kennara. Hvað er skemmtilegast við golfið? Að keppa og spila með vinkonum sem ég hef kynnst í gegnum golfið. Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR Ljósmynd/GR Berglind Ósk Geirsdóttir 15 ára Af hverju fórstu að æfa golf? Mér fannst mjög gaman að spila golf. Hvað hefurðu æft lengi? Ég hef æft golf í 7 ár. Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa? Pitch og chip. Í hverju þarftu að bæta þig? Ég þarf að bæta mig í lengri járnahöggum. Uppáhaldskylfan í pokanum? Pútterinn og 58̊ [fleygjárn]. Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á hring? Ég man það ekki. Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring? Einn yfir pari í Borgarnesi. Hver er fyrirmynd þín í golfinu? Ég hef aldrei pælt í því. Hvert er draumahollið þitt? Get ekki ákveðið mig. Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa golf? Að æfa hjá GR. Hvað er skemmtilegast við golfið? Að spila golf í útlöndum. Ljósmynd/GR Ísleifur Arnórsson 16 ára Þ egar börn og unglingar eru komin af stað í íþróttinni, og farin að spila að fullum krafti, færist hugurinn gjarn- an nær keppnisgolfinu. Kylfingar á mismunandi getustigum í barna- og unglingastarfinu geta tekið þátt í mótum við sitt hæfi á sínum forsendum og fært sig yfir í hærri þrep eftir því sem geta og áhugi á keppn- isgolfinu eykst. Innanfélagsmótin Flestir af stærri golfklúbbunum halda úti inn- anfélagsmótaröð þar sem yngstu kylfingarnir geta brotið ísinn og fengið jákvæða reynslu af því að keppa, í umhverfi sem þau þekkja vel þar sem þau etja kappi við æfingafélaga sína. GR heldur 10 mót yfir sumarið fyrir iðkendur frá 6-18 ára á Icelandair Cargo-mótaröðinni. Flokkunum er skipt upp eftir aldri og getu og er mikið lagt upp úr því að þau sem eru að stíga fyrstu skrefin finni jákvæða upplifun af því að vera með. Þau yngstu leika af gull- teigum sem eru fremstu teigarnir á vellinum og leika níu holur en þau eldri og reyndari leika 18 holur af aftari teigum. Áskorendamótaröð GSÍ Eftir að hafa leikið á mótaröðinni í heima- klúbbnum vilja börnin oft taka næsta skref og liggur leiðin þá á Áskorendamótaröðina þar sem fimm mót eru haldin á laugardögum yfir sumarið víðs vegar um landið. Þar á að vera gaman á vellinum og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar og foreldrar eru hvattir til virkrar þátttöku og að gera þessi mót sem skemmti- legust fyrir þátttakendur með jákvæðu hug- arfari í kringum umgjörð móta. Þátttakendur geta valið um að leika í níu eða 18 holu flokki og er áhersla lögð á já- kvæða upplifun umfram úrslitin á vellinum. Að móti loknu er boðið upp á grillaðar pylsur sem börn og foreldrar gæða sér á meðan á verðlaunaafhendingu stendur. Unglingamótaröð GSÍ Mótaröðin er fyrir framtíðarkylfinga 21 árs og yngri sem komnir eru með reynslu af keppn- isgolfi í sínum heimaklúbbi á áskorendamóta- röð og tilbúnir að taka næstu skref. Mótaröðin inniheldur alls fimm mót á hverju tímabili og haldinn er sérstakur stigalisti yfir stöðu leik- manna á mótaröðinni sem er uppfærður eftir hvert mót. Í lok tímabils eru efstu leikmönnum hvers aldursflokks veitt verðlaun fyrir stiga- meistaratitil GSÍ. Mótaröðin er samstarfsverkefni Golf- sambands Íslands og þeirra golfklúbba sem halda mótin, en mótaröðin hefur vaxið hratt á undanförnum árum bæði í fjölda og styrk keppenda. Elstu aldursflokkarnir hefja því keppni einum degi fyrr en aðrir keppendur. Alls eru keppnisflokkarnir fjórir hjá báðum kynjum á mótaröðinni: 19-21 árs, 17-18 ára, 15- 16 ára og 14 ára og yngri. Stigamótaröð GSÍ Stigamótaröðin er mótaröð fyrir bestu kylfinga landsins og til að fá þátttökurétt þarf að upp- fylla ákveðin forgjafarskilyrði. Einnig getur staða á stigalista ráðið því hvort leikmenn fá boð til þátttöku á einstökum mótum. Efnileg- ustu unglingarnir sem leika á unglingamóta- röðinni taka yfirleitt þátt í stigamótaröðinni ef mótin skarast ekki og ná sér þar með í mik- ilvæga reynslu með því að reyna sig á meðal þeirra bestu á stærri vettvangi. Í lok hvers tímabils hljóta efstu kylfingar, í hvorum flokki fyrir sig, titilinn stigameistarar GSÍ. Íslandsmótið í golfi hefur verið hátindur tímabilsins en þar er leikið um Íslandsmeist- aratitilinn í höggleik sem er án efa eftirsóttasti titill sem völ er á í íslensku golfi. Til mikils er að vinna en verðlaun á mótaröðinni eru glæsileg og afreksstjóri GSÍ fylgist vel með árangri leik- manna og styðst við það í vali sínu á leik- mönnum sem sendir eru í landsliðsverkefni er- lendis á vegum GSÍ. Íslandsmót golfklúbba Íslandsmót golfklúbba er hápunktur keppn- istímabilsins hjá flestum í barna-, unglinga- og afreksgolfinu. Mótið er haldið í öllum aldurs- flokkum frá 12 ára og yngri og allt upp í öld- ungaflokka karla og kvenna. Mótið hefur þá sérstöðu að vera liðakeppni milli golfklúbbanna þar sem klúbbarnir keppa sín á milli í riðlum áður en farið er í úrslitakeppni um sæti. Þegar kylfingarnir sem vanir eru að leika sem einstaklingar koma saman sem lið og keppa fyrir félagið sitt verður oft til frábær stemning í hópnum ásamt mikilli spennu og dramatík á vellinum þar sem leik- fyrirkomulagið er holukeppni sem býður upp á miklar sviptingar meðan á leiknum stendur. Hjá yngri liðunum eru foreldrar oft þátttak- endur og fylgja börnum sínum og liðsfélögum eftir ásamt því að smyrja nesti og rétta þjálf- urum hjálparhönd við skipulagið svo allt gangi sem best, þau eru því þátttakendur í verkefni liðsins og smitast þessi góða stemning yfir á alla sem taka þátt í mótinu. Auðvelt að svala keppnisþörfinni Þrepaskipt keppnisgolf hjá ungmennum. Eitthvað í boði fyrir kylfinga á hvaða getustigi sem er Ljósmynd/GR Sveitir GR fagna sigri í sveita- keppni GSÍ 15 ára og yngri S norri Páll Ólafsson, Derrick John Moore og David George Barnwell eru allir PGA-menntaðir golfkenn- arar sem starfa hjá GR og búa þeir yfir mikilli reynslu þegar kemur að þjálfun barna, unglinga og afrekskylfinga. Snorri hefur verið meðlimur í GR í 25 ár og hefur starfað hjá GR við þjálfun undanfarin 10 ár ásamt því að sinna skipulagshluta starfsins, samskiptum við foreldra og upplýsingagjöf undanfarin 2 ár. David er fæddur í Englandi en flutti til Ís- lands árið 1986. David starfaði um árabil hjá Golfklúbbi Akureyrar við miklar vinsældir heimamanna. David hefur starfað við góðan orðstír um land allt en hann hefur starfað hjá GR sem ungmennaleiðtogi undanfarin 10 ár. Derrick er fæddur og uppalinn í Skotlandi en flutti til Reykjavíkur árið 1999 þar sem hann starfaði sem yfirkennari til ársins 2006. Derrick kom aftur til starfa hjá GR árið 2019 eftir að hafa starfað um árabil hjá GKG við góðan orðstír og vinnur nú náið með David við þjálfun og fræðslu yngri iðkenda GR. Þremenningarnir segjast leggja mikið upp úr því að búa til jákvætt umhverfi innan klúbbsins fyrir alla iðkendur og er stóra mark- miðið að iðkendurnir læri leikinn, reglurnar, gildi og siði og stundi íþróttina á eigin for- sendum sér til ánægju í nútíð og framtíð. Hafa þeir allir gaman af því að fá að vinna með kylfingum í öllum aldurshópum á hverjum degi og hafa metnað til þess að viðhalda því sem við höfum gert vel og bæta það sem við getum bætt til þess að gera vinnuumhverfið enn betra og skemmtilegra fyrir iðkendur og félagsmenn. Hverjir taka við krökkunum? Morgunblaðið/Hari Snorri Páll Ólafsson, Derrick Moore og David Barnwell. Þjálfararnir þrír hjá GR eru þrautreyndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.