Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 18
Boðið er upp á val þegar kemur að æfingum barna og unglinga eftir því sem hentar hverjum og einum best og er æfingagjöldunum skipt í þrjá flokka: Heilsársæfingar, hálfsársæfingar og sumaræf- ingar. Félagsaðild í GR sem veitir aðgengi að spili á völlum félagsins er innifalin í æfingagjöldum ásamt góðu aðgengi að æfingaaðstöðunni utan skipu- lagðra æfinga með þjálfurum og er golfið því ódýr kostur þegar horft er til annarra íþrótta.  Heilsársæfingar, kr. 47.850  Hálfsársæfingar, kr. 27.700  Sumaræfingar, kr. 17.600 Hvar er nánari upplýsingar að finna? Þeir lesendur sem hafa áhuga á því að fræðast frekar um starfið geta haft samband við skrifstofu Golfklúbbs Reykjavíkur í síma 585-0200 eða haft samband við yfirþjálfara GR, Snorra Pál Ólafsson í gegnum netfangið snorri@grgolf.is eða í síma 585- 0216. Hvað kostar að æfa? Ljósmynd/GR Af hverju fórstu að æfa golf? Fjölskylda mín spilar mikið golf og mamma vildi að ég myndi prófa. Hvað hefurðu æft lengi? Í fjögur ár. Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa? Upphafshögg og löngu höggin. Í hverju þarftu að bæta þig? Í vippunum og komast nær holunni í innáhöggum. Uppáhaldskylfan í pokanum? Driverinn er mín uppáhaldskylfa. Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á hring? Í fyrra í Grindavík á mínu uppáhaldsmóti. Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring? 95 högg á Grafarholtsvellinum. Hver er fyrirmynd í golfinu? Tiger Woods. Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa golf? Ekki gefast upp og vertu jákvæður. Það mun alltaf koma gott högg. Ljósmynd/GR Þóra Sigríður Sveinsdóttir 12 ára 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 A lgeng er sú skoðun að golfið sé fjöl- skylduvæn íþrótt. Sé það einn þeirra þátta sem rekja megi vinsældir íþróttarinnar til en golf er með næst- flesta iðkendur innan ÍSÍ. Stundum er einnig sagt að fulltrúar margra kynslóða geti stundað íþróttina saman því kylfingar geti keppt við völlinn og eigin forgjöf. Ekki eru þetta orðin tóm og við ræddum við fjölskyldu innan GR þar sem amma, afi, mamma, pabbi og þrjár systur eru öll í golfinu. „Við hjónin, Valtýr og Tinna, fórum á golf- námskeið í vinnunni hjá Valtý fyrir um 22 árum og féllum alveg fyrir sportinu. Einnig voru nokkrir í báðum fjölskyldum okkar að stunda golf sem ýtti enn frekar undir áhugann. Þegar við eignuðumst stelpurnar okkar kynntum við þeim íþróttina um leið og við gátum og sjáum ekki eftir því. Við erum mjög ánægð að hafa val- ið golfið sem fjölskylduíþrótt. Golfið sameinar kynslóðir auðveldlega og það er gaman að fara þrír ættliðir að spila golf saman. Allir úti að leika sér saman,“ segir „mamman“, Tinna Krist- ín Snæland, en að hennar sögn tóku dæturnar fljótt fram úr foreldrunum sem sé ánægjulegt. Fjölskyldumeðlimir hafa lagst í ferðalög vegna golfsins. „Við höfum fengið tækifari til að ferðast heil- mikið vegna golfsins. Í ferðalögum innanlands eru golfsettin ávallt með í för og gaman að spila á góðum völlum utanbæjar. Einnig höfum við ferðast um Evrópu, Ameríku og Asíu til að sinna golfinu. Bæði hafa þetta verið skemmti- ferðir, æfingaferðir og keppnisferðir. Við spil- uðum líka golf í brúðkaupsferðinni okkar fyrir 20 árum í Malasíu. Á Íslandi eru ýmsir vellir sem fjölskyldan heldur upp á. Grafarholtið, Leirdalsvöllur, Vest- mannaeyjar, Jaðarsvöllur og golfvöllurinn í Laugardal, Dalbúi, eru þau nöfn sem eru nefnd á heimilinu þegar valið kemur að eftirminnileg- um völlum.“ Tinna Kristín segir fjölbreytni vera af hinu góða í íþróttaiðkun barna. „Það skiptir auðvitað mestu máli að barnið finni sig í íþróttinni. Stelpurnar okkar hafa allar æft nokkrar íþróttagreinar, bæði einstaklings- og hópíþróttir. Það sem við erum sammála um er að fjölbreytni sé mikilvæg í vali á íþróttum og sé af hinu góða. Ef krakkar æfa fleiri en eina grein er hins vegar mikilvægt að keppnistímabil skarist ekki, þ.e.a.s. sumar og vetur,“ segir Tinna. Golfið styrkir og eflir „Tinna og Valtýr eiga heiðurinn af því að hafa ýtt okkur af stað í golfið. Þau byrjuðu á að gefa mér, Nínu ömmu, 10 tíma golfnámskeið (hjá David í GR) í afmælisgjöf þegar ég varð 55 ára og kom Sveinn með mér á námskeiðið. Síðan fékk Sveinn golfgræjur frá þeim í afmælisgjöf þegar hann varð sextugur og hvöttu þau aðra í fjölskyldunni til að bæta við. Fyrstu árin gekk þetta ansi skrykkjótt og okkur fór lítið fram í þessari erfiðu íþrótt. Það var ekki fyrr en við fórum í golfskóla úti á Ballena vorið 2010 að eitt- hvað fór að gerast,“ segir „amman“, Jónína Margrét Guðnadóttir, himinlifandi yfir því að hafa kynnst golfinu. „Það er óendanlega skemmtilegt að hafa kynnst þessari íþrótt og fundið aftur gömlu gleðina frá bernskuárunum við að vera úti að leika sér og gleyma öllu öðru á meðan. Ég sem aldrei stundaði neinar íþróttir á yngri árum. Golfið styrkir mann og eflir líkamlega. Auk þess veitir það svo mikla ánægju, bæði þegar við hjónin spilum bara tvö og við vini okkar og jafn- aldra. Svo ekki sé talað um þegar við spilum við krakkana okkar og barnabörnin. Að eiga þetta sameiginlega áhugamál hefur tvímælalaust fært okkur meira saman. Það er endalaus uppspretta umræðna um sportið sjálft og allt sem því fylgir. Jafnvel þótt við spilum ekki mjög oft saman nú orðið þegar yngsta kynslóðin er upptekin í keppni allt sumarið og foreldrarnir fylgja þeim eftir um allt land. En þegar það gerist er óskap- lega gefandi að vera með börnunum sínum eða barnabörnum að leika sér í golfi. Við njótum þá líka góðs af og fáum margs konar heilræði til að bæta spilið,“ segir Jónína en þeim hjónum líkar vel að spila golf í hlýju loftslagi. „Við höfum farið nokkrum sinnum til Spánar og þykir yndislegt að spila þar í hitanum. Eina slíka ferð fórum með Tinnu, Valtý og stelpunum sem voru í æfingaferð með GR og það var alveg einstök upplifun. Hér heima erum við langmest á Korpu en þar fyrir utan er Hamarsvöllur við Borgarnes í sérstöku uppáhaldi,“ segir Jónína Margrét. Ljósmynd/GR Systurnar þrjár ásamt móður sinni, ömmu og afa en faðir þeirra tók myndina. Gleði bernskuáranna kom í leitirnar á golfvellinum Margar kynslóðir geta stundað golfíþróttina saman. Þar er engu logið. Sveinn Snæland........................forgjöf 22,1 Jónína Margrét Guðnadóttir....forgjöf 34,3 Valtýr Guðmundsson................forgjöf 13,0 Tinna Kristín Snæland............. forgjöf 13,2 Ásdís Valtýsdótti....................... forgjöf 4,0 Nína Margrét Valtýsdóttir......... forgjöf 3.0 Ágústa María Valtýsdóttir...........forgjöf 33 Fjölskyldan Af hverju fórstu að æfa golf? Ég fór að æfa golf vegna þess að pabbi var í golfi og mér fannst það spennandi. Prófaði að slá með honum og eftir það fór ég á námskeið og síðan að æfa. Hvað hefurðu æft lengi? Ég byrjaði í golfi sumarið 2014 eftir golfnámskeið í ágúst 2013. Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa? Mér finnst skemmtilegast að æfa 20-60 metra högg. Í hverju þarftu að bæta þig? Ég þarf að bæta mig í löngum járnahöggum. Uppáhaldskylfan í pokanum? Uppáhaldskylfan mín er 56° wedge-inn. [Fley- gjárn]. Hvenær náðir þú fyrst að fara undir 100 högg á hring? Það var sumarið 2016 á Víkurvelli í Stykkishólmi. Hvert er besta skorið þitt á 18 holu hring? Ég spilaði á 75 höggum á bláum teigum í holu- keppni í Grindavík 2019 og á 77 höggum á gulum teigum í Brautarholti 2018. Hver er fyrirmynd í golfinu? Rory McIlroy. Vegna þess að hann er þrautseigur, þolinmóður og gefst ekki upp. Hvað ráðleggur þú krökkum sem langar að æfa golf? Ég ráðlegg þeim að fara í nokkur skipti að slá með fjölskyldu eða vinum, vera þolinmóð og hafa gam- an. Ljósmynd/GR Halldór Viðar Gunnarsson 14 ára Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.