Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.05.2020, Blaðsíða 20
Í Vestmannaeyjum er að finna mikla golf- sögu á íslenskan mælikvarða. Völlurinn í Eyjum hefur vissa sérstöðu vegna um- hverfisins en einnig vegna þess að sumt úr upphaflegri hönnun vallarins hefur haldið sér. „Golfklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður árið 1938, sem gerir hann að einum elsta golf- klúbbi landsins. Völlurinn er í stórbrotinni náttúru við Atlantshafið inni í Herjólfsdal. 18 holu völlurinn var tekinn í notkun árið 1993, en Íslandsmótið í golfi hefur verið haldið í fjögur skipti í Vestmannaeyjum frá þeim tíma. Golfvöllurinn hefur að geyma elstu flatir Íslands á fyrri 9 holunum, en þær eru við Herjólfsdal. Upplifun margra kylfinga er ógleymanleg vegna umhverfisins, en vindáttir geta til dæmis breyst í einu og sama högginu vegna fjallanna,“ segir Rúnar Gauti Gunn- arsson hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Hverjir eru hápunktarnir í starfinu hjá GV? „Mörg stór mót fara fram hjá GV ár hvert, má þar helst nefna Sjómannamót Ísfélags Vestmannaeyja og Icelandair Volcano Open. Ávallt er mikill áhugi fyrir fyrrgreindum mót- um og full skráning ár eftir ár. Sjómannamót- ið fer fram hinn 5. júní í ár en Volcano Open verður haldið dagana 3. til 4. júlí. Glæsilegir vinningar eru í boði í báðum mótum og er matur og drykkur í boði að loknum báðum mótum. Volcano Open fer fram yfir gos- lokahelgina og er um að gera að spila golf og njóta annarrar skemmtunar í Eyjum á þeim tíma. Vert er að benda á að nánast alltaf eru laus- ir rástímar hjá GV, en það eru mikil forrétt- indi fyrir kylfinga að geta bókað tíma hvenær sem er og ekki með löngum fyrirvara. Því er tilvalið að fara í golfferð til Eyja í sumar og njóta þess að spila einn flottasta golfvöll landsins. Herjólfur siglir alla daga á milli 7 og 23 en einnig erum við með golftilboð í sam- starfi við Hótel Vestmannaeyjar, hægt er skoða þau á miðlum GV.“ Kraftur í starfinu Að sögn Rúnars hefur æfingaaðstaðan í Eyj- um batnað til muna á umliðnum árum. „Æfingaaðstaða Golfklúbbsins hefur verið á uppleið undanfarin ár. Æfingaskýlið býður upp á aðstöðu til að slá golfbolta allan ársins hring en inni í skýlinu er einnig hægt að slá í net ef ekki viðrar vel. Klúbburinn fjárfesti í TrackMan-golfhermi árið 2017 og hefur notk- un hans aukist verulega með hverju ári. Á áætlun er einnig að setja upp púttaðstöðu á efstu hæð skálans, en það myndi gera kylf- ingum í Eyjum kleift að æfa bæði vipp og pútt allt árið um kring. Kylfingar á öllum aldri æfa golf hjá GV. Karl Haraldsson, PGA-golfkennari, er með hópa hjá sér í kennslu, allt frá 5 ára aldri og upp í eldri borgara. Ungir iðkendur hafa náð langt í íþróttinni undanfarin ár, en það má sjá í gengi þeirra í mótaröðum GSÍ. Mikil aukn- ing hefur verið í þátttöku yngri kylfinga frá okkur á Áskorenda- og unglingamótaröðinni og hafa sumir þeirra náð á verðlaunapall. Einnig hafa fremstu unglingar okkar skrifað undir samninga hjá bandarískum háskólum. Fullorðinssveitin okkar vann á síðastliðnu sumri 2. deildina í sveitakeppninni og stefnum við hátt á komandi sumri. Þakka má velgengni undanfarinna ára góðu og uppbyggilegu barna- og unglingastarfi hjá golfkennurunum okkar,“ segir Rúnar Gauti Gunnarsson. Golfiðkun í einstakri náttúru Golfklúbbur Vestmannaeyja tekur vel á móti þér í sumar líkt og undanfarin ár. Ljósmynd/GV Afrekshópur Golfklúbbs Vestmannaeyja á heimavellinum glæsilega í Herjólfsdal. 20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020 ÖLL BESTU MERKIN Í GOLFINU... Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík | verslun@orninngolf.is | Sími 577 2525 Af hverju fóruð þið að æfa golf? Hjalti: Af því að pabbi minn og Pamela systir mín stunduðu golf. Pamela: Af því að pabbi var í golfi. Hvað hafið þið æft lengi? Hjalti: Ég byrjaði á heilsársæfingum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur vorið 2015 þegar ég var fimm ára. Fyrir það hafði ég farið með pabba og Pamelu systur minni í golf. Pamela: Ég byrjaði í heilsársæfingum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur vorið 2015 þegar ég var sex ára. Fyrir það hafði ég farið með pabba í golf og líka Hjalta bróður mínum. Hvaða högg finnst þér skemmtilegast að æfa? Hjalti: Mér finnst mjög gaman að slá með dræver og 5-járninu því þegar ég hitti vel er það góð tilfinning. Pamela: Mér finnst skemmtilegast að slá með dræver og 52 gráðu wedge. Í hverju þurfið þið helst að bæta ykkur í golfinu? Hjalti: Í stutta spilinu. Pamela: Í stutta spilinu. Uppáhaldskylfan í pokanum? Hjalti: Dræverinn því með honum slæ ég lengst. Pamela: Dræverinn, hún slær lengst og er allt öðruvísi en hinar kylfurnar. Hvenær náðuð þið fyrst að fara undir 100 högga hring? Hjalti: Árið 2018 í júlí í Grafarholtinu á meistaramóti GR þegar ég fór á 87 högg- um. Pamela: Árið 2018 í júlí í Grafarholtinu á meistaramóti GR þegar ég fór á 92 högg- um. Besta skorið á18 holu hring? Hjalti: 70 högg í Grafarholtinu sem er einn undir pari. Pamela: 71 högg á Highlands Reserve- golfvellinum sem er par vallarins. Hver er fyrirmyndin í golfinu? Hjalti: Rory McIlroy því hann slær svo langt. Pamela: Annika Sörenstam því hún hef- ur farið 18 holur á 59 höggum. Hvað ráðleggið þið krökkum sem langar að æfa golf? Hjalti: Bæði krakkarnir og þjálfararnir eru skemmtilegir og við gerum skemmtilega hluti á æfingum og því eiga krakkar að vera óhræddir að mæta og prófa og leika sér. Svo er skemmti- legast að keppa og það er fullt af mót- um til að keppa í. Pamela: Ekki vera feimin við að mæta. Bara mæta og hitta krakkana og þjálf- arana, það er bara gaman að æfa, mikið fjör, og líka að keppa. Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR Ljósmynd/GR Systkinin Hjalti Kristján Hjaltason 10 ára og Pamela Ósk Hjaltadóttir 11 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.