Skessuhorn - 25.03.2020, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 13. tbl. 23. árg. 15. mars 2020 - kr. 950 í lausasölu
arionbanki.is
Núna getur þú sett þér markmið
í sparnaði í Arion appinu
Tíminn vinnur
með þér í sparnaði
Tilboð gildir út mars 2020
með sweet chili
Deep fried shrimp
with sweet chili
999 kr.
Ljómalind Sveitamarkaður,
Brúartorgi 4, Borgarnesi
Sími 437-1400,
Netfang: ljomalind@ljomalind.is
Bjóðum uppá
heimkeyrslu í
Borgarbyggð
Sími 437-1400
Hafið samband
á milli
12:00 og 17:00
HEIMSENT
OG TAKE AWAY
ást og friður
FRÍ HEIMSENDING
Breyttir opnunartímar:
Mán - mið: 11:30 - 14
Fim - fös: 11:30 - 21
Lau: 17 - 21
Sun: Lokað
Sími: 431- 4343
KJÖRIÐ FYRIR
EINSTAKLINGA
OG FYRIRTÆKI
Meira og minna allt líf og starf í landinu tekur mið af þeim aðstæðum sem uppi
eru hér á landi og víðs vegar um heimsbyggðina vegna kórónaveirunnar. Vegna
takmarkana á hvers kyns samkomuhaldi er skólahald á öllum skólastigum
skert. Börn eru því heima ýmist nokkra daga í viku eða jafnvel alla vikuna. For-
eldrar sinna þá leiðsögn og kennslu eftir atvikum. Í Skessuhorni í dag er púlsinn
tekinn á þessu tímabundna ástandi og meðal annars rætt við skólameistara
framhaldsskólanna, en einnig móður þriggja grunnskólabarna á Akranesi.
Þarna eru börnin á heimilinu; 8, 12 og 14 ára að sinna heimanámi sínu af
kostgæfni.
Ljósm. Helena Rós Sigurðardóttir.
Frá og með gærdeginum tóku
gildi hertar reglur hér á landi um
þann fjölda fólks sem koma má
saman vegna Covid-19 faraldurs-
ins. Nú er miðað við að mest tutt-
ugu megi vera í sama rými, en fyrri
reglur settu mörkin við hundrað.
Þá hefur sundlaugum, söfnum og
skemmtistöðum verið lokað og öll
starfsemi sem krefst nándar innan
tveggja metra er bönnuð. Þar und-
ir fellur til dæmis starfsemi snyrti-
stofa, rakarastofa og nuddstofa svo
dæmi séu tekin. Sundlaugum, lík-
amsræktarstöðvum, skemmtistöð-
um, spilakössum og söfnum er nú
lokað meðan á þessum takmörkun-
um stendur.
Takmörkun á skólahaldi verð-
ur óbreytt frá því á mánudaginn í
síðustu viku. Fylgja skal fjarlægð-
armörkum um tveggja metra fjar-
lægð milli einstaklinga eftir því sem
það á við og mögulegt er, einkum
gagnvart eldri börnum. Hertar
reglur hafa gríðarlega röskun í för
með sér og snerta þessar breytingar
nánast alla landsmenn. Börn mæta
ýmist fáa daga í skóla eða eru alfar-
ið heima. Framhaldsskóla- og há-
skólanemendur stunda nú námið
alfarið heima hjá sér og skólafólk
jafnt sem nemendur hafa verið fljót-
ir að tileinka sér þá tækni sem í boði
er til að gera samskipti sem greið-
ust. Rætt er við þrjá skólameistara á
Vesturlandi í blaðinu í dag.
Allar fjöldasamkomur þar sem
fleiri en 20 manns koma saman
eru óheimilar meðan takmörkun-
in er í gildi. Sama regla gildir um
vinnustaði og því þurfa fyrirtæki
og stofnanir að skipta starfsem-
inni upp í aðgreind rými. Á það við
hvort sem fólk kemur saman í opin-
berum rýmum eða einkarýmum.
Hvar sem fólk kemur saman og í
allri starfsemi skal tryggt að hægt sé
að hafa a.m.k. tvo metra á milli ein-
staklinga. Þessar takmarkanir eiga
einnig við um almenningssamkom-
ur og aðra sambærilega starfsemi.
Sérstakar reglur gilda þó áfram um
matvöruverslanir og lyfjaverslanir.
Þar verður heimilt að hafa allt að
100 manns inni í einu, að því gefnu
að hægt sé að halda a.m.k. tveggja
metra fjarlægð milli einstaklinga.
Covid-19 faraldurinn hefur nú
þegar haft fjölþætt áhrif á atvinnu-
líf. Nefna má að nú eru ferskfisk-
markaðir víða um heim lokaðir,
starfsemi flugfélaga er lítil sem eng-
in og uppsagnir þegar hafnar í þeim
geira og ferðaþjónustu almennt.
Bankar, hótel, stofnanir og einka-
fyrirtæki hafa víða tekið ákvörðun
um að loka meðan ástandið varir.
Stjórnvöld kynntu síðastliðinn
laugardag víðtækan aðgerðapakka
sem miðar að því að koma til móts
við gjörbreyttar aðstæður atvinnu-
lífs og heimila. Ítarlega er sagt frá
þeim aðgerðum í Skessuhorni í dag.
Þá er á næstu dögum að vænta að-
gerða af hálfu sveitarfélaga, en þau
líkt og ríkið verða að bregðast við
og koma til móts við atvinnulíf og
heimili til að draga megi sem mest
úr því efnahagslega áfalli sem þessi
heimsfaraldur er að leiða af sér. Sí-
fellt bætist í fjölda smitaðra hér á
landi. Þeir voru í gær orðnir á sjö-
unda hundrað á landinu öllu og þar
af nokkrir á Vesturlandi, en veiran
greindist fyrst í landshlutanum um
liðna helgi. Einn Íslendingur er nú
látinn vegna veirunnar.
Sjá nánar í fréttum á blaðsíðum
10-17.
mm
Breytt heimsmynd vegna veirufaraldurs