Skessuhorn - 25.03.2020, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 20202
Munum að vera dugleg að huga
að andlegri og líkamlegri heilsu á
meðan við erum mikið heima, en
í litlum samskiptum við fólk utan
fjölskyldunnar. Einangrunin getur
haft neikvæð áhrif til langs tíma og
verum því meðvituð um að hlúa að
okkur sjálfum og okkar nánustu.
Á morgun er spáð suðvestanátt
8-15 m/s og él, hvassast verður á
annesjum, en bjart norðaustan-
lands. Hiti um frostmark. Á föstu-
dag er útlit fyrir norðlæga átt 8-13
m/s og dálítil él, en lengst af létt-
skýjað syðst á landinu. Heldur kóln-
andi veður. Um helgina og fram á
mánudag er spáð vestanátt og dá-
lítilli slyddu á vestanverðu landinu
og síðar súldarlofti. Þurrt eystra og
hlýnar í veðri.
Í síðustu viku voru lesendur á vef
Skessuhorns spurðir hvort samko-
mubann hafi haft áhrif á þeirra
vinnu. 35% sögðu samkomubann-
ið hafa haft mikil áhrif, 27% hafa
ekki orðið fyrir neinum áhrifum í
vinnunni, 19% hafa orðið fyrir lítils-
háttar áhrifum, 17% svarenda eru
ekki í vinnu og 2% sögðust ekki
vita það ennþá.
Í næstu viku er spurt:
Með hverju viltu hjúpa
þinn snúð?
Heilbrigðisstarfsfólk, kennarar,
verslunarfólk og aðrir sem standa
vaktina til að öll nauðsynleg þjón-
usta haldist gangandi eru Vest-
lendingar vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Nýta tækifærið
til viðhalds
REYKHÓLAHR: Eftir að
samkomubann var sett á og
tilmælum beint til lands-
manna um tveggja metra fjar-
lægðarmörk, ákváðu stjórn-
endur Reykhólahrepps að loka
Grettislaug á Reykhólum, sem
og eldhúsi Reykhólaskóla. Þó
það sé ekki jákvætt út af fyr-
ir sig, gáfu aðstæður færi á
að ráðast í tímabært viðhald
og endurbætur, eins og fram
kemur á Reykhólavefnum.
Um liðna helgi höfðu innrétt-
ingarnar verið hreinsaðar út
úr búningsklefum sundlaug-
arinnar og sturtur fjarlægðar.
Einnig var búið að tæma eld-
hús Reykhólaskóla þar sem
unnið er að viðhaldi. -kgk
Fasteignavið-
skipti í febrúar
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 36 samningum um
húsnæði þinglýst í febrúr-
mánuði. Þar af voru 15 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, 17
samningar um eignir í sérbýli
og fjórir samningar um ann-
ars konar eignir. Heildarvelt-
an var 1.381 milljón króna og
meðalupphæð á samning 38,4
milljónir króna. Af þessum
36 viðskiptum með húsnæði
voru 20 samningar um eignir
á Akranesi. Þar af voru ellefu
samningar um eignir í fjölbýli
en níu samningar um eignir í
sérbýli. Heildarveltan var 912
milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning 45,6 milljónir
króna. -mm
Boðið í lóða-
hönnun
AKRANES: Tilboð í hönnun
lóða við Brekkubæjarskóla og
Grundaskóla á Akranesi voru
opnuð á síðasta fundi skipu-
lags- og umhverfisráðs. Tvær
landslagsarkitektastofur gerðu
tilboð í verkið. Landslag ehf.
bauð tæpar 10,8 milljónir með
virðisaukaskatti og Landmót-
un tæpar 14,8 milljónir með
virðisaukaskatti. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á tíu millj-
ónir króna. Ráðið lagði til að
samið yrði við lægstbjóðanda,
Landslag ehf.
-kgk
Veðurhorfur
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 7 0
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú
verið lögð fram drög að frumvarpi
til nýrra kosningalaga. Lagt er til að
lögin gildi um kosningar til Alþing-
is og sveitarstjórna, um framboð og
kjör forseta Íslands og um fram-
kvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
„Markmið frumvarpsins er að
styrkja lýðræði með því að viðhalda
trausti á framkvæmd kosninga og
tryggja að beinar, frjálsar og leyni-
legar kosningar séu haldnar reglu-
lega. Meginefni frumvarpsins lúta
að breyttri stjórnsýslu kosninga og
Margvíslegar breytingar lagðar til
á lögum um kosningar
einföldun regluverks,“ segir í til-
kynningu frá skrifstofu Alþingis.
Það var forseti Alþingis sem skip-
aði starfshópinn haustið 2018 og
skyldi hann kanna kosti þess að
setja heildarlöggjöf um framkvæmd
allra almennra kosninga og skoða
eftir því sem tími og aðstæður leyfa
kosti rafrænnar kjörskrár. Fjöl-
margar breytingar eru nú lagðar til
á lögum um kosningar. Helstu ný-
mæli sem frumvarpið felur í sér eru
eftirfarandi:
1. Einn lagabálkur mun gilda um
kosningar í stað fjögurra áður. Lög
um kosningar til Alþingis, lög um
kosningar til sveitarstjórna, lög um
framboð og kjör forseta Íslands og
lög um framkvæmd þjóðaratkvæða-
greiðslna falla brott.
2. Stjórnsýsla kosningamála
verður einfölduð og samræmd og
einum aðila, landskjörstjórn, fal-
ið skýrt samræmingar- og yfir-
stjórnarhlutverk. Yfirkjörstjórnir
kjördæma verða lagðar niður og
landskjörstjórn tekur við hlutverki
Hæstaréttar við forsetakjör.
3. Yfirstjórn kosningamála verð-
ur færð frá dómsmálaráðuneyti
til sjálfstæðrar stjórnsýslunefndar
(landskjörstjórnar) sem, auk þess
að bera ábyrgð á framkvæmd kosn-
inga, sinnir viðvarandi verkefnum
milli kosninga. Komið verður á fót
úrskurðarnefnd kosningamála sem
tekur til úrskurðar ýmsar kærur á
þessu sviði, m.a. um lögmæti for-
setakjörs, sveitarstjórnarkosninga
og þjóðaratkvæðagreiðslna.
4. Miðlæg vinnsla kjörskrár mun
fara fram hjá Þjóðskrá Íslands og
rafræn kjörskrá verður meginregla.
Stjórnmálasamtök og frambjóð-
endur í forsetakjöri munu geta ósk-
að eftir rafrænum aðgangi að kjör-
skrá.
5. Atkvæðagreiðsla utan kjör-
fundar mun ekki geta hafist fyrr
en öll framboð hafa komið fram og
heimilað verður að viðhafa bréf-
kosningu þegar greidd eru atkvæði
utan kjörfundar. Henni lýkur er-
lendis daginn fyrir kjördag og kl. 17
innan lands á kjördag. Framkvæmd
atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
verður einfölduð sem og utanum-
hald kjörstjóra.
6. Kjósandi mun eingöngu geta
greitt atkvæði einu sinni í hverjum
kosningum; annað hvort utan kjör-
fundar eða á kjörfundi.
7. Kosningaathöfnin verður ein-
faldari og öruggari með því að
kjörstjórn stimplar kjörseðil áður
en kjósandi leggur hann í atkvæða-
kassa. Ekki verði haldið sérstakt
bókhald eða uppgjör um fjölda not-
aðra og ónotaðra kjörseðla.
8. Talning mun fara fram á kjör-
stöðum í því skyni að einfalda taln-
ingu og auka öryggi í meðferð at-
kvæða.
9. Öllum sem þess þurfa verður
heimilað að fá aðstoð við kosningar
hvort sem er vegna fötlunar, veik-
inda, elli eða af öðrum ástæðum.
10. Kosningaréttur þeirra sem
búsettir eru erlendis verður rýmk-
aður verulega í alþingiskosning-
um, forsetakjöri og þjóðaratkvæða-
greiðslum. Fólk mun geta kosið í
16 ár eftir að það flytur lögheimili
sitt af landinu, í stað átta ára nú, en
á móti er lagt til að rétturinn falli
niður að þeim tíma liðnum. Rétt-
urinn endurnýjast aftur við flutning
lögheimilis til landsins.
11. Útgáfu kjörbréfa verður
hætt.
Umsagnir um frumvarpið þurfa
að hafa borist lagaskrifstofu Al-
þingis í síðasta lagi 8. apríl næst-
komandi. Að loknu samráðsferli
mun starfshópurinn fara yfir at-
hugasemdir sem berast og í kjöl-
farið skila forseta Alþingis fullbúnu
frumvarpi. mm
Föstudaginn 20. mars var Borg-
nesingurinn og heiðursmaðurinn
Guðmundur Ingimundarson bor-
inn til moldar. Guðmundur fæddist
í Borgarnesi, ólst þar upp og starf-
aði þar alla sína ævi. Hann starfaði
innan skátahreyfingarinnar, innan
Umf. Skallagríms og var þar for-
maður um skeið. Guðmundur sat í
hreppsnefnd Borgarneshrepps fyr-
ir Framsóknarflokkinn og var odd-
viti hreppsnefndar um árabil, sat í
stjórn Kaupfélags Borgfirðinga, var
einn af stofnendum Lionsklúbbs
Borgarness, sat í stjórn Vírnets hf,
Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð-
ar og fleiri samtaka og félaga.
Guðmundur hóf störf sín fyrir
Kaupfélagið í nýlenduvöruversl-
un þess. Hann lærði bakaraiðn og
vann síðan við þá iðn í Bakaríi KB
í 21 ár. Árið 1964 tók Guðmundur
við Esso í Borgarnesi, sem seinna
varð Hyrnan, og gegndi því starfi
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir. Guðmundur var sam-
vinnumaður og vann fyrir Kaup-
félag Borgfirðinga lengur en nokk-
ur annar, eða samtals í 44 ár. Guð-
mundur var heiðraður á aðalfundi
KB árið 2018 fyrir störf sín og
stuðning við Kaupfélagið en hann
var aðalfulltrúi Borgarnesdeildar
KB á aðalfundum félagsins í liðlega
60 ár. Hann var félagsmálamað-
ur af bestu gerð, vann fyrir heild-
ina og samfélagið, hans hagsmunir
biðu betri tíma, eins og hann sagði
stundum. Kaupfélag Borgfirðinga
vottar minningu Guðmundar virð-
ingu sína og þakkar af alhug störf
hans fyrir Kaupfélagið og samfé-
lagið.
Við sendum aðstandendum hans
hugheilar samúðarkveðjur.
Sveinn Hallgrímsson
og Guðrún Sigurjónsdóttir
Höf. eru fyrrverandi og
núverandi formaður stjórnar
Kaupfélags Borgfirðinga.
Minning
Guðmundur Ingimundarson