Skessuhorn - 25.03.2020, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 202022
Pennagrein
Fyrir um margt löngu síðan eign-
aðist ég blöðung um litun á trjá-
viði með vaxlitum. Mér fannst
þetta heillandi viðfangsefni og til-
valið að nota þessa liti við smíða-
kennsluna, orðinn langþreyttur á
alls konar málningarstússi með til-
heyrandi vandamálum, óþvegnum
penslum, blettum í fötum og ég
veit ekki hvað. Svo var lagt í hann,
ég byrjaði að fá lánaða Júmbó tréliti
hjá myndmenntarkennaranum og
gerði margar prufur og komst að
því að einna best væri að nota birki-
krossvið í verkefnið en það er einn-
ig hægt að lita allan ljósan við auð-
veldlega með trélitunum og jafnvel
dökkan við.
Ég byrjaði að nota 6mm kross-
við, í dag nota ég birkikrossvið frá
3mm upp í 12mm, 3mm krossvið-
urinn hentar einnig mjög vel mynd-
menntarkennslunni. Birkikrossvið-
ur er ekki bara birkikrossviður, til
þessa verks þarf hann að vera fyrsta
flokks en krossviður er flokkaður á
ákveðin hátt með bókstöfum A, B,
C. Oftar en ekki er önnur hlið plöt-
unnar verri en hin þá er hún við-
gerð (sponsuð) eða kvistótt. Það er
frekar sjaldgæft að fá plötur A báðu
megin. Stóru timbursalarnir hér á
landi selja birkikrossvið bæði vatns-
límdan og ekki, í stórum einingum.
Hentugast er að kaupa krossviðinn
í Handverkshúsinu sem selur plöt-
urnar niðursagaðar og alltaf hægt
að semja um sérsögun á þeim. Þetta
er rússneskur óvatnslímdur kross-
viður í háum gæðaflokki og kem-
ur frá seljanda í hæfilegu rakastigi
þannig að það er ekki að kvarnast
mikið úr honum við sögun.
Þegar vinna á úr efniviðnum er
best að saga hann niður með tifsög
með hæfilegu blaði með teknu til-
liti til þykktar efnisins. Best er að
nota tifsagarblöð sem saga jafnt
báðu megin þ.e. Reverse blöð.
Þriggja millimetra efninu hæfa vel
blöð frá Olson eins og Mach speed
no.3 og Crown no.2 eða Herkules
málmsagarblöð númer 4,0 en þau
eru ekki reverse og mjög viðkvæm.
Þegar platan er komin milli hand-
anna þarf að velja hvora hliðina á að
nota og pússa vel með fínum sand-
pappír t.d. númer 320 – 600. Þegar
búið er að pússa með grófari papp-
írnum þá er rétt að vökva flötinn
aðeins með vatni til að hann ýfi sig.
Eftir að hann er þornaður er farið
yfir hann með fínni sandpappír og
allt ryk blásið eða burstað vandlega
af. Þá er að spreyja þunnu lagi af
Fixatif yfir flötinn.
Það væri að æra óstöðugan hvaða
aðferð yrði valin við að koma sköp-
unarverkinu á flötinn áður en haf-
ist er handa með litunum en allt
er í boði, trélitirnir fara vel sam-
an á brennipennamyndum. Hvort
sem brennt er á við eða vatnslita-
pappír (300 gr. bómullarpappír) þá
er rétt að brenna með frekar lág-
um hita og pússa þá viðinn á eftir.
Nú er hægt að nota trélitina að vild
eins og vaxtréliti, pasteltréliti og
vatnsleysanlega tréliti á áhrifamik-
inn hátt. Olíupastel litir fara einn-
ig mjög vel á fletinum og dragast
vel til. Tálgaðir hlutir með frekar
sléttu yfirborði t.d. úr linditré taka
vel við olíupastellitum eftir hefð-
bundna grunnvinnu. Til að full-
gera myndverkið má nota góða
vatnsliti í hæfilegum styrk til að
fylla í þá fleti sem eru ekki litað-
ir fyrir með vaxlitunum t.d. bak-
grunn og ský svo eitthvað sé nefnt,
þá sefa vatnslitirnir ágætlega óhjá-
kvæmilega brunaslóð sem oft fylgir
brennipennavinnunni bæði á viðn-
um og vatnslitapappírnum og svo
er rétt að setja Fixatif yfir að lokum
til að binda litina.
Í mörgum skólum og á heimilum
safnast saman ógrynni af smá bút-
um af vaxlitum líklega oftast Cra-
yola litabútar. Þessa búta er auðvelt
að fullnýta á auðveldan hátt með
því að bræða þá og endurskapa,
bræða þá beint á myndflötinn hvort
sem hann er krossviður eða vatns-
litapappír, tálga þá eða ydda niður
í hæfilega búta eða litaspæni sem
komið er fyrir á myndfletinum og
bræddir þar niður í myndverkið eða
rífa þá niður með rifjárni og koma
þeim sömuleiðis fyrir á myndflet-
inum. Bræðslan getur farið fram á
margvíslegan hátt t.d. í bakarofni,
örbylgjuofni með straujárni (bök-
unarpappír ofan á) eða misstórum
gasloga en það sem best og auð-
veldast að nota fyrir nemendur er
lítill og nettur Proxxon hitablásari
sem er fljótvirkur og fæst í áður-
nefndu Handverkshúsi. Til varnar
því að litaspænirnir blásist í burtu
má leggja bökunarpappír yfir. Það
er auðvelt að bæta við litum eftir á
eins oft og þurfa þykir. Hitablás-
arann má nota til margra annarra
verka hvort sem er heimavið eða í
smíða- og myndmenntarstofunni
t.d. til að þurrka akrýlmálningu,
vatnslitaverk eða flýta fyrir lím-
ingu. Þetta er ótrúlega handhægt
verkfæri fyrir þá sem eru mikið
að mála smáhluti í mörgum litum,
eiginlega ómissandi. Það má einn-
ig nota litabútana eða spænina til
að fylla í útsagaða óróa. En þá eru
litabútarnir tálgaðir eða rifnir nið-
ur í útsagaða svæðið, svo er hitað
varlega, hægt er að velta hlutnum
til og frá, til að fylla upp í öll horn
og bugður, eins má færa aðeins til
með stórri stoppunál. Þá er auðvelt
að saga út einfaldan hlut t.d. lauf-
blað og raspa hressilega yfir það af
völdum litum og bræða svo. Sjálf-
sagt er að spreyja Fixatif yfir vax-
myndverkin.
Aðgát skal höfð: Það er hægt að
skaða sig á svo mörgu í ofangreind-
um ferlum og sum verkfærin eru
ekki boðleg ungum börnum. Það
er auðvelt að gleyma sér á góðri
stund, því er rétt að vera með pers-
ónuhlífar eins og öryggisgleraugu
þegar unnið er að listrænu hand-
verki.
Trausti Tryggvason
silfurskogar@simnet.is
Miðjumynd trélitir á birkikrossvið. Mynd eftir Kristínu nemanda við Laugargerðis-
skóla.
Skapað með tré- og vaxlitum
Trausti Tryggvason heima á verkstæðinu sínu. Ljósm. sá.
Fyllt með vaxi í útsagaða óróa.
Vax rifið niður og brætt á útsöguð birkilaufblöð.
Pastellitir dregnir til á 12 mm birkikrossvið.
Trélitir á birkikrossvið. Púsluspil eftir
Ernu nemanda í Laugargerðisskóla.
Trélitir á birkikrossvið. Púsluspil eftir
Björn nemenda við Laugargerðisskóla.