Skessuhorn - 06.05.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 19. tbl. 23. árg. 6. maí 2020 - kr. 950 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Tilboð gildir út maí 2020
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Bérnaise burger meal
1.890 kr.
Máltíð
Miklar breytingar hafa átt sér stað
hjá Markaðsstofu Vesturlands síð-
ustu daga. Upplýsingamiðstöð
ferðamála í Hyrnutorgi í Borg-
arnesi, sem þjónað hefur öllum
landshlutanum, hefur verið lok-
að og starfsmenn flust á skrifstofu
SSV við Bjarnabraut. Eðli máls-
ins samkvæmt hefur starfsemin því
breyst og snýst í dag um stefnu-
mótun ferðamála og uppbyggingu
Vesturlands sem áfangastaðar, frek-
ar en að sinna beinni upplýsinga-
gjöf til ferðamanna. Upplýsinga-
miðstöðvar eru nú reknar af sveit-
arfélögunum. „Nú þegar markaðs-
stofan er komin undir sama þak og
SSV mun samvinna aukast, sem
mun skila sér í betri þjónustu við
viðskiptavini þar sem breiður hóp-
ur fagfólks með þekkingu á öllu því
sem við kemur ferðaþjónustu mun
nú vinna saman,“ segir Páll S Bryn-
arsson, framkvæmdastjóri SSV.
Sökum Covid-19 ríkir mikil óvissa
í ferðaþjónustunni þessa dagana.
Margrét Björk Björnsdóttir, for-
stöðumaður Markaðsstofu Vestur-
lands, segir erfitt að átta sig á því
hvernig sumarið komi til með að
verða í vestlenskri ferðaþjónustu,
en beðið er eftir næstu leiðbein-
ingum sóttvarnalæknis til að hægt
verði að gera áætlanir fyrir sum-
arið. Nánar er rætt við Margréti
Björk um komandi ferðasumar á
blaðsíðu 12.
arg
Fullt á tjaldstæðinu í Stykkishólmi síðasta sumar. Ljósm. úr safni/sá
Breytingar í ferðaþjónustu
Síðastliðinn fimmtudag gaf Krist-
ján Þór Júlíusson sjávarútvegs-
ráðherra út reglugerð um stöðv-
un veiða á grásleppu á þessu fisk-
veiðiári. Ástæða þeirrar ákvörð-
unar var að fyrirséð var að veið-
arnar hefðu fljótlega nálgast ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar um
að heildarafli á þessu fiskveiðiári
verði ekki meiri en 4.646 tonn.
Grásleppuveiði í vor hefur ver-
ið betri við landið en elstu menn
muna. Þannig hafa til dæmis bátar
við norðaustanvert landið kom-
ið drekkhlaðnir að landi dag eft-
ir dag, jafnvel með yfir átta tonn
úr vitjun. Sú eina undantekning
er gerð á veiðistoppi nú að heim-
ilt verður eftir 20. maí að gefa út
leyfi til grásleppuveiða í allt að 15
daga til þeirra sem stunduðu grá-
sleppuveiðar árin 2018 eða 2019
á Breiðafirði, svæði 2, samkvæmt
leyfum sem tóku gildi 20. maí það
ár eða síðar.
Um liðna helgi voru grá-
sleppuveiðimenn á Snæfellsnesi
og Akranesi að taka upp netin.
Þeirra á meðal var Haraldur Jóns-
son á Inga Rúnari AK-35 sem hér
er að hífa frá borði síðustu tross-
urnar, en hann var með í sjó 7,5
kílómetra af netum og því þurfti
snör handtök að ná þeim ölllum
úr sjó með engum fyrirvara. Har-
aldur er líkt og aðrir grásleppu-
veiðimenn við vesturströndina
afar óhress með ákvörðun ráð-
herra. Hann segist þó hafa náð
16 tonnum úr sjó. Nú verður bát-
urinn búinn til strandveiða sem
máttu hefjast á mánudaginn.
Sjá nánar fréttir, greinar og við-
töl inni í blaðinu.
m.
Stopp
á grá-
sleppu-
veiðar
Við tökum vel
á móti þér
.com/skagafiskur
Fiskverslun
Kirkjubraut 40, Akranesi
Við opnum aftur með breyttum opnunartíma
arionbanki.is
Útibúið okkar í Borgarnesi opnar aftur þriðjudaginn 12. maí og verður opið alla virka daga
kl. 12.30–16.00 þar til nýjar leiðbeiningar um samkomur verða gefnar út.
Við hvetjum viðskiptavini til þess að nýta áfram stafrænar þjónustuleiðir bankans.
Þú �innur nánari upplýsingar og leiðbeiningar um notkun Arion appsins á
arionbanki.is/app. Þú getur líka haft samband við þjónustuverið í síma 444 7000.
Við leggjum enn áherslu á tímabókanir í útibúinu og hvetjum viðskiptavini til að bóka fund
með því að panta símtal á arionbanki.is. Við hringjum síðan til baka og festum tíma.
Þjónusta vegna bókaðra funda er frá 9–16 alla virka daga.