Skessuhorn - 06.05.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 6. MAí 202026
Hvaða íþrótt þykir þér
skemmtilegust?
Spurning
vikunnar
(Spurt í gegnum netið)
Eysteinn Ari Róbertsson, 9 ára,
Borgarnesi
„Skotbolti.“
Sighvatur Óli Þorsteinsson, 9
ára, Borgarnesi
„Skotbolti.“
Karín Ósk Ívarsdóttir, 10 ára,
Borgarnesi
„Körfubolti og fótbolti, bæði
jafn skemmtilegt.“
Guðrún Birgitta Kjartansdótt-
ir, 10 ára, Borgarnesi
„Fótbolti.“
Su
do
ku
Hafþór Júlíus Björnsson aflrauna-
maður lyfti á laugardaginn 501
kílói í réttstöðulyftu sem er mesta
þyngd sem nokkur maður hefur
lyft í slíkri aflraun. Lyftan verður
þó ekki viðurkennt sem heimsmet
hjá Alþjóða kraftlyftingasamband-
inu þar sem Hafþór keppir ekki
samkvæmt reglum sambandsins.
Gildandi heimsmet á íþróttamað-
ur íslands 2019, Júlían K Jóhann-
esson, en metið setti hann í nóvem-
ber á síðasta ári á móti í Dubai þeg-
ar hann lyfti 405,5 kg. Fyrra óop-
inbera heimsmetið í réttstöðulyftu
átti enski aflraunamaðurinn Ed-
die Hall, en það var slétt 500 kíló
sem hann lyfti árið 2016. Eddie og
Hafþór Júlíus hafa oft verið þátt-
takendur í keppninni um sterkasti
maður heims.
mm
Sundlaugar og önnur íþróttamann-
virki í Borgarbyggð hafa verið lok-
uð frá 23. mars síðastliðinn og hafa
íbúar í sveitarfélaginu þurft að
sætta sig við að komast ekki í al-
menningslaugar og almennt fært
alla hreyfingu undir beran him-
inn. Ingunn Jóhannesdóttir, for-
stöðumaður íþróttamannvirkja hjá
sveitarfélaginu, segir þó að búið sé
að nýta tímann vel í lokununum til
ýmissa framkvæmda. Til dæmis er
búið að setja hita við sundlaugar-
bakkann á Varmalandi. í íþrótta-
húsinu á Kleppjárnsreykjum er
verið að skipta um gólfefni bæði í
klefum og á gangi. Stærstu fram-
kvæmdirnar hafa hins vegar átt sér
stað í íþróttamiðstöðinni í Borgar-
nesi. „Píparar og rafvirkjar eru bún-
ir að taka allt í gegn í kjallaranum,“
segir Ingunn, en framkvæmdir hóf-
ust skömmu eftir lokun vegna Co-
vid-19. „Það er búið að laga margt
sem hefur verið að bila að undan-
förnu. Einnig er verið að laga ofna-
kerfi og loftræstikerfin í öllu hús-
inu,“ bætir hún við. Að auki segir
Ingunn að búið sé að dytta að ýmsu
öðru, eins og reyndar oft er gert á
vorin, til dæmis að þrífa, mála og
bóna gólf.
Vikuna 11.-15. maí fá grunn-
skólanemendur aftur aðgang að
íþróttahúsinu ásamt því að skipu-
lagðar æfingar hjá ungmennafélag-
inu geta farið fram í salnum, en
með takmörkunum. Einungis fjór-
um verður heimilt að vera í salnum
í einu. Ekki er komin föst dagsetn-
ing hvenær sundlaugar verða opn-
aðar almenningi, en tilkynnt verður
nánar um það í lok maí.
glh
Verið er að setja hita við sundlaugar-
bakkann á Varmalandi.
Ljósm. Ingunn Jóhannesdóttir.
Ýmsar framkvæmdir við sundlaugar og
íþróttamannvirki í Borgarbyggð
Pottasvæðið í sundlauginni í Borgarnesi hefur fengið mikla aðhlynningu síðustu
daga.
Tíminn er vel nýttur á meðan lokanir
hafa staðið yfir.
Skjámynd af lyftunni, sem sýnd var í beinni útsendingu.
Lyfti 501 kílói í réttstöðulyftu