Skessuhorn - 06.05.2020, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 6. MAí 2020 19
Síðastliðinn laugardag voru rétt 20
ár síðan fyrirtækið Klafi ehf. hóf
starfsemi á Grundartanga. Stofn-
endur og eigendur Klafa eru stór-
iðjufyrirtækin Norðurál og Elkem
ísland. Upphaflegt hlutverk fyrir-
tækisins var að sinna öllum flutn-
ingum fyrir fyrirtækin á Grundar-
tanga, þar með talið uppskipun og
útskipun, auk gámaflutninga og
annarra tilfallandi verkefna. Fyrir
nokkrum árum var ákveðið að sér-
hæfa fyrirtækið enn frekar þannig
að Klafi sæi einvörðungu um gáma-
flutninga á Grundartangasvæð-
inu. En við flutning gáma með að-
föng og framleiðsluvörur fyrirtækj-
anna eru mörg handtökin. Árlega
fara um höfnina 35 þúsund gámar.
Auk þess er fyrirtækið með samn-
ing við Faxaflóahafnir um móttöku
skipa og almenna þjónustu við þau.
Framkvæmdastjóri Klafa frá árinu
2003 er Smári Viðar Guðjónsson
véltæknifræðingur. Skessuhorn
kíkti í heimsókn í gærmorgun og
heyrði hljóðið í framkvæmdastjór-
anum, en lítið verður um hátíðar-
öld í tilefni afmælisins vegna tak-
markana á samkomuhaldi, þar til í
haust.
Öryggið á oddinn
„Vissulega eru það tímamót þegar
fyrirtæki ná tvítugsaldri og þess ber
að minnast. Við erum hér með vel
skilgreint fyrirtæki í góðum rekstri
sem alla tíð hefur verið í eigu sömu
aðila. Norðurál á 50% hlut og El-
kem ísland sömuleiðis. Stjórn fyrir-
tækisins tekur mið af eignarhaldinu
en hana skipa í dag eingöngu for-
stjórar þessara tveggja fyrirtækja.
Hér er því ekki flókið skipurit né
langar boðleiðir. Starfsmenn Klafa
eru nú átta talsins og við búum svo
vel að starfsmannavelta er afar lít-
il. Nokkrir starfsmanna okkar hafa
starfað hjá Klafa frá stofnun fyr-
irtækisins og höfðu þar áður ver-
ið starfandi í járnblendinu. Þetta
er öflugur mannskapur og traust-
ur, sem er afar mikilvægt í þunga-
flutningum eins og þeim sem við
sinnum. Öryggið er ætíð í fyrir-
rúmi. Síðan í október 2012 hefur
engin fjarvera verið vegna vinnu-
slysa,“ segir Smári og kveðst stolt-
ur af því.
Tæplega eitt skip
á dag að jafnaði
Á Grundartanga eru nú um 20 fyr-
irtæki starfandi og því eru mikl-
ir flutningar sem fara um höfnina;
stöðugur straumur stórgáma lyftara
og bílar aka milli gámastæðanna
á hafnarbakkanum og upp í verk-
smiðjurnar. Þegar staldrað var við í
gærmorgun var í gangi löndun úr
tveimur skipum, súráli var dælt í
lausu úr einu stærsta efnisflutninga-
skipi sem lagst hefur að Grundar-
tangabryggju og efninu dælt um
rör í efnistanka í landi. Þá var sam-
hliða því verið að landa gámum úr
skipi Eimskipafélagsins sem komið
var í fyrstu fyrir á hafnarbakkanum.
„í fyrra komu um 280 skip hingað.
Meðal fastra verkefna okkar er að
afgreiða í hverri viku tvö gámaskip
frá Eimskip og eitt frá Samskip.
Þessi skip eru að flytja aðföng og
hráefni frá útlöndum með viðkomu
í Sundahöfn og lesta fullunna vöru
til útflutnings. Til dæmis koma öll
rafskaut fyrir Norðurál með gáma-
skipum auk annarra rekstrarvara og
hráefnis. Skipin koma sömuleiðis
með tóma gáma en mestöll fram-
leiðsla stóriðjufyrirtækjanna er flutt
út í gámum. Á fyrstu árum Klafa
sá fyrirtækið einnig um afgreiðslu
á efnisflutningum í tankskipum,
en okkar starfsemi er nú nær ein-
vörðungu tengt gámunum. Þessu
var breytt upp úr 2007 að lokinni
stækkun Norðuráls. Þá urðu gáma-
flutningar svo fyrirferðarmiklir í
starfseminni að ákveðið var að sér-
hæfa Klafa í þeirri umsýslu. Auk
flutninga fyrir Norðurál og Elkem
sinnum við svo einnig gámaflutn-
ingum fyrir önnur fyrirtæki hér á
Grundartanga, svo sem Lífland, Al
og fleiri.“
Verið uppávið
Smári segir bankahrunið hafa reynst
Klafa erfitt. „Við fengum vissulega
okkar skerf af hruninu 2008 og af-
leiðingum þess. Þá var nýlega búið
að fjárfesta mikið í stærstu tækj-
unum hér á svæðinu sem vissulega
höfðu kostað sitt. Fyrir þeim kaup-
um höfðu verið tekið erlend lán sem
stökkbreyttust í hruni krónunn-
ar. Raunar var fyrirtækið um tíma
tæknilega gjaldþrota af þessum sök-
um en það fór þó allt vel að endingu.
Lánin voru dæmd ólögmæt og eftir
það tók reksturinn að batna og hef-
ur verið á beinu brautinni hjá okkur
undanfarin ár. Ég get stoltur sagt frá
því að síðastliðin þrjú ár höfum við
verið á lista Creditinfo fyrir framúr-
skarandi fyrirtæki í rekstri og ætlunin
er að halda okkur þar,“ segir hann.
Bjarnsýnn á framhaldið
Sjálfur er Smári Viðar borinn og
barnfæddur Skagamaður. Hann lærði
vélvirkjun og starfaði meðal ann-
ars hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi
og kenndi um tíma við Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Þá hélt hann utan
til náms og lærði véltæknifræði í
Odense í Danmörku. Árin 1987 til
2002 starfaði hann hjá Járnblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga, eins
og hún hét þá, en fór þá í nám í fyr-
irtækjarekstri til Noregs. Eftir heim-
komuna réði hann sig sem fram-
kvæmdastjóra Klafa og hefur gegnt
starfinu síðan. Hann kveðst ágæt-
lega bjartsýnn á rekstur Klafa, eða
svo lengi sem bæði fyrirtækin sem að
honum standa halda áfram starfsemi
á Grundartanga.
mm
Klafi á Grundartanga er tuttugu ára
„Okkar framtíð er björt svo lengi sem
bæði stjóriðjufyrirtækin verða hér“
Smári Guðjón Viðar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Klafa. Í baksýn sést í tvö skip sem verið var að landa úr í gærmorgun.