Skessuhorn - 06.05.2020, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 6. MAí 2020 21
Góður gangur er í rekstri Skipa-
víkur í Stykkishólmi um þess-
ar mundir, ýmis verkefni í fullum
gangi og önnur í pípunum. „Núna
erum við með fimm húsbyggingar
í gangi eða alveg að hefjast hérna í
Hólminum,“ segir Sævar Harðar-
son, framkvæmdastjóri Skipavík-
ur, í samtali við Skessuhorn. „Við
erum að reisa parhús við Hjalla-
tanga, einbýlishús á Sæmundar-
reit og Ægisgötu og eina skemmu
uppi á Hamraendum. Vinna við
einbýlishúsið á Ægisgötu er lengst
komin, þar sem við erum bún-
ir að steypa upp húsið. Janúar og
febrúar hafa reyndar verið erfiðir
og ekkert hægt að steypa út af tí-
ðafari. En núna er það búið og við
erum líka búnir að reisa parhúsið
á Hjalltanganum, sem er úr timb-
ureiningum. Á hin húsin er komin
plata og sökklar,“ segir hann. „Síð-
an er framundan raðhússbygging
við Hjallatanga 1. Við byrjum á því
í lok þessa mánaðar þegar jarðvinna
og slíkt hefst,“ bætir hann við. All-
ar íbúðirnar í raðhúsinu eru seldar,
þó ekki sé byrjað að byggja húsið.
„Það er vöntun á húsnæði. Menn
eru bjartsýnir í Hólminum og pest-
in gengur yfir,“ segir Sævar.
Nóg framundan
í slippnum
Utan húsbygginga er verkefnastað-
an í slippnum góð að sögn Sævars.
„Það var rólegt í janúar og febrú-
ar út af tíðafari. Síðan þá hefur ræst
vel úr því og verður nóg að gera í
þessum hefðbundnu viðhaldsverk-
efnum, alls konar smærri verkefn-
um og málun á bátum. Það er ekk-
ert sérstaklega stórt verkefni fram-
undan,“ segir framkvæmdastjórinn
sem á jafnframt von á því að Skipa-
vík fari af krafti í sumarhúsabygg-
ingar í Arnarborgum, rétt utan
Stykkishólms. „Þar eigum við fimm
lóðir. Við fyllum þær nú ekki allar
í sumar en reiknum með að byggja
eitthvað. Það væri alveg í lófa lag-
ið fyrir félagasamtök að fjárfesta í
sumarhúsi í Hólminum núna,“ seg-
ir Sævar. „Síðan erum við með eina
parhúsalóð til viðbótar sem við
höfum orðið varir við áhuga á. Það
kæmi mér ekki á óvart að við færum
í að byggja þar líka áður en sumarið
er úti,“ bætir hann við.
„Gengið vel
undanfarin tíu ár“
Þess utan eru starfsmenn Skipavík-
ur að vinna á Dröngum á Skógar-
strönd og með fastan mannskap,
20 manna hóp, á Grundartanga við
álver Norðuráls. Þjónustan við ál-
verið hefur verið fastur liður í starfi
fyrirtækisins um margra ára skeið.
Verkefni Skipavíkur eru því margs
konar og framkvæmdastjórinn seg-
ist ekki hafa yfir neinu að kvarta.
„Það hefur bara gengið vel und-
anfarin ár og við erum þokkalega
brattir. Þetta snýst um að stíga var-
lega til jarðar og vera ekki að sperra
sig út af engu,“ segir hann. „Við
erum heppnir að því leyti að við
erum með dreifðan rekstur. Álver-
ið hefur til dæmis verið stór kúnni
hjá okkur í gegnum árin og nú er
þjónusta við laxeldið á Vestfjörðum
komin inn í gegnum slippinn. Svo
rekum við verslun, byggjum hús og
leigjum út húsnæði sem við eigum.
Við höfum þannig gætt okkar á því
að hafa ekki öll eggin í sömu körf-
unni,“ segir hann. „Enn fremur höf-
um við ekki ráðist í að byggja nein-
ar íbúðir nema vera búnir að selja
þær, eða hluta af þeim. Þannig höf-
um við alltaf unnið. Það gerði það
til dæmis að verkum að í hruninu
sátum við ekki uppi með miklar
eignir sem við gátum ekki selt. Við
höfum aldrei ráðist í að byggja bara
til að byggja og þykjast vera eitt-
hvað stórir. Það hefur reynst okk-
ur vel,“ segir hann. „Starfskraftur-
inn hefur líka verið flottur og stab-
íll í gegnum tíðina, það er lykillinn
að öllu saman. Og svo líka bara að
reyna að hafa gaman af hlutunum.
Hér er allt í fínum málum,“ segir
Sævar Harðarson að endingu.
kgk
Um 1500 tonnum af salti var land-
að í Stykkishólmshöfn föstudaginn
24. apríl síðastliðinn. Það voru BB
og synir sem önnuðust löndunina.
Að sögn Sævars Benediktssonar hjá
BB og sonum fer megnið af saltinu
til Þórsness en hluti annað. Um er
að ræða saltbirgðir út þetta ár og
fyrir upphaf þess næsta.
Þá var um 900 tonnum af áburði
landað í Stykkishólmi síðastlið-
inn fimmtudag, 31. apríl. Er það
óvenju mikið að sögn Sævars, en
BB og synir annast dreifingu hans
til bænda. Allur sá áburður sem
landað var í Hólminum þennan
dag fer til bænda á Snæfellsnesi.
Sævar segir að verið sé að dreifa
honum þessa dagana og býst við því
að farnar verði um 30 bílferðir með
áburð til bænda þetta vorið.
kgk Verið að landa salti í Stykkishólmi síðasta föstudaginn í apríl. Ljósm. sá.
Salti og
áburði landað
í Stykkishólmi
Sævar Harðarson, framkvæmdastjóri Skipavíkur. Ljósm. sá.
Fimm húsbyggingar í gangi eða að hefjast
Nóg að gera hjá Skipavík þessa dagana
Verkefnastaðan hjá Skipavík er góð um þessar mundir. Fimm húsbyggingar í
gangi eða um það bil að hefjast, auk annarra verkefna. Ljósm. sá.
Parhús úr timbureiningum við Hjallatanga. Húsið var reist á einum og hálfum degi í síðustu viku. Ljósm. aðsend.