Bæjarins besta

Tölublað

Bæjarins besta - 02.12.1987, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 02.12.1987, Blaðsíða 8
8 Fiskvinnsla: BÆJARINS BESTA Lítill afli — lítil vinna NOKKUÐ hefur boríð á því í tali bæjarbúa að undanfömu að togararnir okkar selji bróður- partinn af afla sínum út í gámum og þar af leiðandi sé lítil vinna í húsunum hér. Til þess að for- vitnast um það hvað værí til í þessu snéram við okkur til Jó- hannesar G. Jónssonar forstjóra íshússfélags ísfirðinga með spurningar okkar. Hefur verið næg vinna að undanförnu? „Nei, það hefur ekki verið það. Pað hefur verið mjög úrtökusamt í haust. Togamir voru nú í slipp í september og október og fóru þá báðir erlendis. f’að hefur því verið frekar úrtökusamt í haust og síðan hefur þetta hjálpast að núna uppá síðkastið, það hefur verið mjög rýr afli, einstaklega rýr, miðað við undanfarin ár.“ Og hefur mikið veríð selt út? „Nei, það hefur nú ekki verið mikið selt út, það er er ekki hægt að segja það.“ Eru margir dagar þar sem ekki hefur veríð vinna í húsinu? „Já, það eru komnir einir tíu tólf dagar í það heila í haust.“ Eru fvrírsjáanlegt að þetta verði svona? SIEMENS Hinar fjölhæfu SIEMENS ELDAVÉLAR sameina tvær þekktar bökunaraðferðir: • með yfir- og undirhita • meö blæstri auk orkusparandi glóöar- steikingar með umloftun í lokuöum ofni. Vönduð og stílhrein v-þýsk gæðavara, sem tryggir áratuga.endingu. POLLINN HF. Aðalstræti 9 ísafirði | „Það veit náttúrulega enginn. i Pað fer nú eftir aflabrögðum. Miðað við það sem hefur verið undanfarin haust þá hefur kannski eitt skip verið að koma hér inn með á annaðhundrað og uppí tvö hundruð tonn eftir tæpa viku. Núna hafa þetta verið kannski sextíu sjötíu tonn og þaðan af minna. En hvernig er útlitið fram að jólum? „Það er ómögulegt að segja. Ef það verður þokkalegur afli þá verður næg vinna. En þetta hefur verið einstaklega tregt núna síðustu vikumar.“ Við höfðum einnig tal af Guð- mundi Guðmundssyni fram- kvæmdastjóra Hrannar HF. sem gerir út Guðbjörgu og spurðum hann hvernig málið snéri við þeim. „Pað er engin viss prósenta sem við seljum út hverju sinni. Pað fer eftir því hvað er mikill afli í skipunum. En það hefur verið óskaplega tregt núna allan nóvember. Það fer afli í húsið úr hverri veiðiferð. En það kom truflun á þetta þegar bæði skipin fóru í slipp. Pá varð fisklaust um tíma.“ Er mikill munur á verði hér heima og úti? „Já, það er mikill munur. Sér- staklega á lélegri fisktegundum, karfa og grálúðu. Já og það er alltaf, ef það eru góðar sölur þá er mikill munur á verði.“ Hveraig verður veiðunum hagað frain að áramótum? „Eg reikna með því að skipin hætti um 20. desember. Pað ætti að vera til nægilegur kvóti þangað til því aflinn hefur verið svo tregur. Það eru níutíu dagar á ári sem við verðum að Iiggja í landi af því að við eru á sóknarmarki, það náttúrulega dregur úr sókn- I inni.“ HÓTEL ÍSAFJÖRÐUR rcy m FORRETTIR: Koníaksbætt kjörsveppasúpa Ú Ú Laxasnittur m/rækjum FISKRÉTTUR: Gratineruð karfaflök m/rjómasósu KJÖTRÉTTIR: Hamborgarhryggur m/sykur- brúnuðum kartöflum Ú it Hreindýrasteik m/Waldorfsalati Ú •& ■& Nautalundir m/rauðvínssósu og bakaðri kartöflu EFTIRRÉTTUR: Púrtvínslegnar melónur m/rjómatoppi Salat fylgir öllum réttum. Laugardagur 5. des. kl. 15-17 Jólaglögg og piparkökur - kaffihlaðborð. Magnús Blöndal Jóhannsson leikur á píanóið og jazzistar koma í heim- sókn og taka nokkur létt lög. Kl. 20-22: Jazzhljómlist og píanóleikur. Kvöldverður framreiddur frá kl. 19. Sunnudagur: Kaffihlaðborð kl. 15-17. Jólaglögg og piparkökur. Magnús Blöndal Jóhannson leikur jólalög. Sunnudagskvöld: Gömlu dansarnir kl. 21-1. Silli og félagar sjá um fjörið Halldór hættir á Hhf Framhald af forsíðu stjórnar skýrslu þar sem lagðar eru fram tillögur um uppbyggingu þjónustu fyrir aldraða á Isafirði í framtíð- inni. TiIIögurnar taka til skipulagningar á heimilis- þjónustu, hjúkrunar-, elli- heimilis-, og íbúðamála og annarra þátta sem ástæða þótti til. Eitt af því sem þjónustuhópurinn leggur til er í sambandi við hagræð- ingu og stjórnun í yfirstjórn þjónustustofnananna hér í bæ. Er lagt til að stjórnir stofnananna verði samein- aðar í eina yfirstjórn sem þá geti haft samræmda yfirsýn með gangi mála hjá hverri stofnun fyrir sig. í öldrunarhópnum eru nú: Bergþóra Sigurðardóttir héraðslæknir, Guðrún Gísladóttir hjúkrunar- forstjóri, Guðrún Gunnars- dóttir hjúkrunarfræðingur með heimahjúkrun, Halldór Guðmundsson forstöðu- maður Hlífar, og Rannveig Einarsdóttir fclagsmála- stjóri. Hlutverk þjónustu- hópsins er að miðla heima- þjónustu til þeirra sem á henni þurfa að halda og að tryggja að þeir sem ekki geta lengur lifað eðlilegu heimlislífi þrátt fyrir heima- þjónustu fái vist á öldrunar- stofnun.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.