Bæjarins besta - 02.12.1987, Side 14
BÆJARINS BESTA
Björk spókar sig á Schwabentorplatz (í Freiburg).
14
varmáli. Ég gæti ekki hugsað
mér að búa þar sem engin fjöll
eru, en ég sakna sjávarins
ekkert, ég verð bara sjóveik af
að horfa út á haf.“
Þjóðverjar eru almennt
þekktir fyrir að vilja ekki tala
við útlendinga á öðru máli en
sínu eigin. Við spyrjum Björk
hvernig þýskan gangi ...
,,Mér dettur bara í hug það
sem fyrsti þýskukennarinn
minn í MÍ, Cristina Carlsson,
sagði um manninn sinn:
,,Hann Grettir kcmur smám
saman.“ Eins er það með
þýskuna mína, hún kemur
smátt og smátt.“
Hefurðu alltaf stefnt að pí-
anónámi, eða hefur eitthvert
annað nám komið til greina?
,,Ef ég væri ekki í tónlist,
þá væri ég sjálfsagt í cinhverju
starfi sem tengist börnum, eða
í kennslu af einhverju tagi.
Mér fellur best að vinna með
börnum og unglingum og með
því að gerast píanókennari
sameina ég þessi þrjú áhuga-
mál mín: Börn, kennslu og
tónlist. Annars þakka ég
Ragnari H. Ragnar fyrir að ég
sé í tónlistarnámi yfir höfuð,
hann kenndi mér að meta
tónlist og skilja hana og hvatti
mig til að halda áfram. For-
eldrar mínir sáu líka um að ég
fengi nógu mikla tónlistarnær-
ingu sem krakki (hins vegar
var ég alltaf svo horuð) og það
hefur verið til píanó á mínu
heimili frá því ég fæddist. Þeg-
ar ég fór út fyrir dyr í fyrsta
skipti á ævinni, var það til að
fara út í ísafjarðarkirkju og
kaupa píanógarm af Jónasi
heitnum Tómassyni. Mamma
blessunin lét sig hafa það að
klofa snjóskafla í skafrenningi
til að verða ekki af kaupun-
um, en þurfti þó ekki að
skakklappast heim með pí-
anóið á bakinu ...
En að öllu gamni slepptu,
þá fór ég að spyrja sjálfa mig
að því, þegar ég kom til
Reykjavíkur í nám, hvort
þetta væri virkilega það sem
mig langaði til að læra eða
hvort ég væri að þessu vegna
utanaðkomandi þrýstings. Ég
komst að því, að þrátt fyrir að
mig langi til að læra margt
annað, þá er það tónlistin sem
heillar mig mest.“
Hvað býstu við að vera lengi
í ,,útlegðinni“?
,,Já, það er nú það. Ætli ég
komi ekki til baka þegar ég er
búin að fá nóg af námi og
flakki. Þó mér þyki nú ósköp
vænt um ísland, þá var ég
komin með útþrá þegar
skólanum lauk í vor og það
hafa allir gott af því að hleypa
heimdraganum ef möguleiki
er á. Hér læri ég ekki bara að
ýta á þetta svarta og hvíta,
heldur kynnist ég öðru landi
og annarri þjóð. Ég sé líka
nýjar hliðar á sjálfri mér og
gildismat mitt breytist. Þú
þekkir nefnilega ekki þitt eig-
ið land nema að hafa eitthvað
annað til samanburðar, ekki
satt?“
Þá er það hin sígilda spurn-
ing Björk: Eitthvað að lokum?
,,Berðu kveðju mína til
fólksins og fjallanna."
Og þá er þessari kveðju
komið á framfæri við lesendur
BB.
Frúarkjólar
Vorum að fá frúarkjóla
dress, blússur, peysur o.m.fl.
Ath! Brevttur oDnunartími:
Mán.-fim. kl. 9-12 og 13-18
Föstudaga kl. 9-12 og 13-20
Lau. 5. des. . . . . . . opið til kl. 16
Lau. 12. des. . . . . . opið til kl. 18
Lau. 19. des. . . . . . opið til kl. 22
Þorláksmessa . . . . opið til kl. 23
Aðfangadagur . . . . opið til kl. 12
Sími 4024