Bæjarins besta - 30.12.1987, Síða 2
2
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi: H-PRENT sf.,
Suðurtanga 2, 400 Isafjörður. sími 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson. Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson,
Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Jakob Falur Garðarsson, sfmi 4570.
Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 201. Tekið á móti efni og auglýsingum í
ofangreindum símum.
Að rækta garðinn sinn
Sagt er að í gömlum Kínverskum skræðum sé þá speki
að finna. að vilji menn verða hamingjusamir skuli þeir
koma sér upp garði.
Ekki skal fullyrt að ráðið sé óbrigðult. Hitt vita þeir, er
revnt hafa, að dund í garðinum sínum gefur ómælda
ánægju, ekki síst þegar vel tekst til. En það er hægt að
„rækta garðinn sinn“ á svo margan hátt og án þess að
rótast í mold alla daga. Þannig má segja að sá maður
rækti vel garðinn sinn, sem með lífi sínu og starfi er
öðrum góð fyrirmynd. Manninum virðist eðlislægt að
huga að eigin skinni og til eru mörg hugtök yfir þann
eiginleika. Að vera trúr vfir eigum annara, því sem manni
er trúað fyrir, er dyggð.
Isafjörður hefur um Iangan aldur státað af gróskumiklu
og fjölbreyttu menningarlífi. Það lætur kunnuglega í
eyrum að nefna söng og tónlist, kóra og landsfrægan
tónlistarskóla og ekki má gleyma Litla Leikklúbbnum, að
ekki sé nú minnst á öll félögin og félagasamtökin og
klúbbana, sem vissulega eru menningarauki á sinn hátt.
Þá eru stöðugir listviðburðir í Slunkaríki orðnir samofnir
lista- og menningarlífi kaupstaðarins.
Það orð hefur lengst farið af Islendingum að þeir séu
bókaþjóð. Ótrúlegur fjöldi fólks á safn bóka. Hvergi í
heiminum eru bækur jafn mikið keyptar til gjafa og á
íslandi. Og trúlega hvergi jafn mikið lesnar. Almennings
bókasöfn eru víða og mörg mjög góð.
Nýverið samþykkti bæjarstjóm ísafjarðar að gamla
sjúkrahúsið á Isafirði skuli gert að safnahúsi, þegar
núverandi hlutverki þess er lokið. Þar munu verða til
húsa bókasafnið, héraðsskjalasafnið og Listasafn ísa-
fjarðar.
Samþykkt bæjarstjórnar ber að fagna. Bókasafnið
hefur um langan tíma búið við þröngan kost og er á
hrakhólum með geymslurými. Listasafnið á ekkert þak
yfir höfuðið. Almenningur hefur þó að nokkm getað
notið þeirra verka, sem eru í eigu þess, þar sem þeim
hefur verið dreift í opinberar stofnanir og fyrirtæki. Því
ber að halda áfram.
Húsakostur bókasafnsins hefur sniðið bókaverðinum
þröngan stakk. Fjárráð þess af skornum skammti. Þrátt
fyrir þessa annmarka hefur honum tekist smátt og smátt
að breyta því úr bókageymslu í safn, sem á margan hátt
er til fýrirmyndar. Það er því fagnaðarefni að áður
nefndum söfnum skuli ■ framtíðinni ætlaður samastaður í
gamla sjúkrahúsinu. Þar fá þau umgjörð við hæfi. Bóka-
safnið er vel ræktaður skiki í þeim garði menningar, sem
listir og bókmenntir eru. Það var svo sannarlega kominn
tími til að það fengi stærri reit til umráða. Og að fenginni
reynslu getum við verið óhrædd um, að hann fer ekki í
órækt.
s.h.
Húsakaupahappdrætti Alþýðuflokksins
á Vestfjörðum
Hinn 15. desember s.l. var dregið í Húsakaupahappdrætti Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum hjá bæjarfógetanum á ísafirði. Þar eð skil höfðu
ekki borist frá öllum söluaðilum voru númerin innsigluð. Á Þorláksmessu
voru vinningsnúmer kunngerð, en þegar innsigli voru rofin kom í ljós að
vinningar höfðu fallið á eftirtalda miða:
Nr. 402 Bifreið, Lancia.
Nr. 392 Reiðhjól, DBS.
Nr. 106 Bifreiðaútvarp.
Handhafar vinningsmiða geta snúið sér til Gests Halldórssonar, sími
94-3180 eða Sigurðar Jóhannssonar, sími 94-3503.
Happdrættisnefnd.