Bæjarins besta

Tölublað

Bæjarins besta - 30.12.1987, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 30.12.1987, Blaðsíða 5
BÆJARINS BESTA 5 Helgarferðir á Hótel Sögu Strax eftir áramót gefst lands- mönnum kostur á sérstökum helgarferðum með skemmti- kvöldi á Hótel Sögu. Það eru Flugleiðir, Hótel Saga, og veitinga- og ráðstefnufyrirtækið Gildi sem standa að þessum helgarferðum, sem hlotið hafa nafnið SÖGU-GILDI. í helgar- ferðunum SÖGU-GILDI geta gestir valið um 2-4 daga ferð. Fyrsti ferðadagur er fimmtudagur og síðasti ferðadagur er mánu- dagur. Tveggja nátta gisting, aðfaranætur laugardags og sunnudags eru þó fastir punktar í þessari dagsskrá þar sem skemmtun, kvöldverður og skemmtiatriði í Súlnasal verða á laugardagskvöldum. Boðið verður upp á tvenns konar skemmtidagsskrá. Annars vegar dagsskrá sem hlotið hefur nafnið Tekið á loft í Súlnasal. Þar mætir til leiks ein harðsnúnasta poppflugsveit landsins, sem verið hefur í forystu íslenska poppflugflotans síðasta mannsaldur. Flugstjórar verða þeir Maggi Kjartans, Rúnar Júl., Jóhann Helga, Hljómar, Júdas og fleiri réttindalausir áhugaflug- menn. Þetta verður flugferð til dægurlanda og þar verða heim- sóttar ýmsar þær minningar liðinna ára sem tengjast á ljúfan hátt mörgum helstu poppstjörn- um síðustu tveggja áratuga og vinsælustu lögum þeirra. Dags- skráin er sviðsett sem flugferð og gerist í flugstöð, í fríhöfn, og um borð í flugvél, á Saga-class að sjálfssögðu. Hins vegar er um að ræða söngleik sem frumsýndur verður laugardaginn 6. febrúar. f kynningu Hótels Sögu á þessum söngleik segir m.a.: Söguþráður- inn er örlagasaga hinnar íslensku popphetju sem þráir frægð og frama. Sígildar dægurperlur Magnúsar Eiríkssonar mynda rammann um söguna. Sögð er saga af ungum manni á þyrnum stráðri framabraut. Manni sem þráir að verða næturgali en verður nætur-galinn. "j.■ • -ies-i S : ivrssfi i% Ágætu bæjarbúar Innheimta ísafjarðarkaupstaðar óskar ykkur farsæls nýs árs. Ennfremur eru sérstakar þakkir til þeirra sem hafa staðið í skilum við bæjarsjóð. Þeir aðilar sem ekki hafa gert skil á sínum gjöldum til bæjarsjóðs eru hér með hvattir til að greiða skuldir sínar eða semja um þær fyrir áramót. Ella mega þeir búast við hertari innheimtuaðgerðum eftir áramót. Innheimtan verður opin miðvikudaginn 30. desember frá kl. 9 til 17 og á gamlársdag frá kl. 10 til 12. Dráttarvextir verða reiknaðir eftir lokun á gaml- ársdag. ATHUGIÐ: Dráttarvextir eru nú 4,1% á mánuði eða 49,2% á ári. Krafa frá bæjarbúum um að birta lista yfir þá aðila sem skulda bæjarsjóði er nú orðin mjög hávær. Með því að gera skil á skuldum sínum annað hvort með greiðslu eða samningi er hægt að gera slíka umræðu óþarfa. MEÐ KVEÐJU, Innheimta ísafjarðarkaupstaðar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.