Bæjarins besta - 30.12.1987, Blaðsíða 10
10
BÆJARINS BESTA
Farsími í
verdlaun
Eflaust muna flestir eftir stóru
sjávarútvegssýningunni sem
haldin var í Laugardagshöllinni
dagana 19-23 september. Par var
mikið um að vera eins og til-
hlýðilegt þykir á sýningu sem
þessari.
Mörg fyrirtækjanna sem sýndu
á sýningunni voru með hinar
ýmsu getraunir í gangi sem
snérust um það sem viðkomandi
var að sýna og selja. Fyrirtækið
Radíomiðun var eitt þeirrá fyrir-
tækja sem hafði getraun í gangi á
sýningunni. Margir tóku þátt í
getrauninni enda vegleg verlaun í
boði eða farsími af gerðinni
DANCALL.
Pegar dregið var í getrauninni
nú fyrir stuttu kom upp nafn
Elíasar Ketilssonar. Elías er sjó-
maður frá Bolungarvík og á
myndinni hér með má sjá Elías
taka við farsímanum úr hendi
Kristjáns Gíslasonar hjá Radíó-
miðun.
Yfirlýsing vegna fréttar í
Vestfirska fréttablaðinu
Vegna þeirrar fréttar sem
birtist í 47. tbl. Vestfirska
fréttablaðsins þann 4. desember
s.l. um að ég undirritaður væri
ráðinn til starfa sem „byggingar-
stjóri“ við framkvæmdir við nýja
fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði vil
ég að það komi skýrt fram að
þessi frétt blaðsins er röng, og
mun væntanlega leiðrétt í næsta
tölublaði sem kemur út 7. janúar
n.k.
Pessi yfirlýsing mín er gerð nú
þar sem umbeðin leiðrétting
hefur fallið niður í þeim tveimur
blöðum Vestfirska fréttablaðsins
sem út hafa komið síðan.
Hnífsdal 28.12.1987
Guðm. H. Ingólfsson.
Guðmundur
í sjúkrahúsið
Guðmundur H. Ingólfsson
hefur verið ráðinn sem nokkurs-
konar byggingarstjóri að fram-
kvæmdum við byggingu nýja
fjórðungssjúkrahússins á ísa-
firði, samkvæmt samþykkt síð-
asta fundar stjórnar sjúkra-
hússins. Verður Guðmundur
ráðinn að jöfnu hjá byggingar-
nefnd sjúkrahússins og Fram-
kvæmdadeild Innkaupa-t> tn
unar ríkisins.
Trölladansleikur
í Dalnum
Nýtt ár gengur í garð á mið-
nætti annað kvöld. Þá eru margir
sem bregða undir sig betri
fætinum og bruna á áramótaball.
Eitt ball verður haldið nú um
áramótin þar sem aldurstakmark
verður aðeins 16 ár. Það verður
haldið í félagsheimilinu Hnífsdal.
Það eru þeir félagar Kristinn Þ.
Jónsson og Stefán Pétursson sem
halda ballið, og er þetta annað
árið í röð sem þeir halda svona
ball.
Ballið kalla þeir TRÖLLA-
DANSLEIK og segja þeir að
gestir megi eiga von á hinum
ólíklegustu uppákomum, svo sem
vali á best klædda manni kvölds-
ins, dansfrík kvöldsins o.s.frv..
Ps. Bara að muna eftir nafn-
skírteinunum.
Isafjarðarkaupstaður
Húsnæði óskast
Bæjarsjóður ísafjarðar óskar að taka á
leigu 3-4 herbergja íbúð.
Upplýsingar gefur undirritaður á
bæjarskrifstofunni eða í síma 3722.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Sendum starfsmönnum okkar og viðskipta-
vinum hugheilar nýársóskir.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Steypustöðin DYN hf.
Þingeyri
íbúð óskast
Sölumaður af suðurlandi óskar eftir her-
bergi eða lítilli íbúð til leigu í Hnífsdal eða
á ísafirði.
Góð greiðsla í boði.
Upplýsingar í síma 99-5659.