Bæjarins besta - 30.12.1987, Qupperneq 16
Benni Vagn ÍS 96 siglir inn í höfnina á Flateyri.
Flateyri:
Nýr bátur í flotann
Nýr bátur bættist í flota
Flateyringa nú fyrir jól. Báturinn
kom nánar tiltekið þann 18.
desember. Flefur honum verið
gefið nafnið Benni Vagn og ber
hann einkennisstafina ÍS 96.
Benni Vagn var keyptur til
Flateyrar frá Stykkishólmi þar
sem hann bar nafnið Ársæll SFI
88. Það er útgerðarfélagið Eyri hf
sem er eigandi bátsins en að því
standa þeir Guðmundur Thor-
oddsen, Magnús Benediktsson.
Hjálmar Sigurðsson og Guðjón
Guðmundsson.
Báturinn verður gerður út á
línu frá áramótum og er reiknað
með að uppistaða aflans fari í
frystingu. Skipstjóri á Benna
Vagni verður Hjálmar Sigurðs-
son.
Rafmagnslaust við Urðar-
veg á Aðfangadagskvöld
Jólin eru oft kölluð hátíð Ijós-
sins. í nútímaþjóðfélagi notumst
við aðallega við rafmagnsljós
þannig að á jólunum er rafmagns-
notkun í hámarki. En hvernig
gekk að veita rafmagninu til
notenda þess á veitusvæði Orku-
bús Vestfjarða yfir hátíðina?
Jakob Olafsson deildarstjóri hjá
Orkubúi Vestfjarða sagði að það
hefði gengið ágætlega fyrir utan
það að bilun varð í strengjum á
Urðarvegi. Pað varð þess valdandi
að rafmagnslaust var frá húsi
númer 33 og innúr frá kl. 15,30 og
fram undir miðnætti. Jakob sagði
að þetta væri eina bilunin sem
orðið hefði á veitusvæðinu og að
öðru leiti hefði gengið mjög vel.
,,Frekar erilsöm jól“
- segir lögreglan á Isafírði
Jólin fóru nokkuð friðsamlega
fram að sögn lögreglunnar. Hvorki
nieira né minna að gera en búist
hafði verið við. Helst bar það til
tíðinda að nokkur órói var í
bænum aðfaranótt sunnudagsins,
talsverð drykkja og læti samfara
því. Eitthvað var um rúðubrot og
ölvunarakstur og virtist sem svo að
stressið hafi verið að fá útrás eins
og lögreglan orðaði það. Þá sagði
lögreglan að það virtist sem fólk
hafi verið búið að bíða eftir
þessum degi til þess að geta slett úr
klaufunum.
Ur umferðinni er það helst að
frétta að tvær bílveltur urðu um
jólin, önnur á aðfangadag en hin
síðar, ekið var á ljósastaur og
eitthvað var um ölvunarakstur eins
og fyrr segir. í stuttu máli sagt
voru þetta frekar erilsöm jól sagði
lögreglan að lokum.
Hér má sjá Amór Jónatansson umdæmisstjóra Flugleiða afhenda
Belindu farseðilinn sem hún fékk í verðlaun. Hlynur Snorrason lög-
regluþjónn fylgist vel með.
Verðlaun veitt í jólagetraun
unga fólksins
Umferðafræðsla lögreglunnar
og Umferðarráðs hefur verið
fastur liður í skólahaldi grunn-
skólanna undanfarin ár. Há-
punktur hverju sinni er árleg
jólagetraun sem allt unga fólkið
tekur þátt í. Veittur er mikill
fjöldi viðurkenninga og ein aðal-
verlaun sem eru dregin út.
Fyrir þessi jól var þátttakan mikil
og góð og fékk hátt á annað
hundrað ungra vegfarenda við-
urkenningu frá lögreglunni sem
keyrt var heim til viðkomandi.
Á Þorláksmessu var síðan stóri
vinningurinn afhentur. Sá heppni
að þessu sinni var Belinda Yr
Hilmarsdóttir frá Súðavík.
Belinda fékk í verðlaun hvorki
meira né minna en farseðil frá
Flugleiðum til Reykjavíkur og
aftur til baka.