Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2020, Side 13
til að knúsa mann smá,“ segir hún.
„Moli stelur. Hann stelur öllu
sem er mjúkt og „fluffy“,“ segir
hún og nær í mjúka sokka sem
hann kom nýlega með heim og
sýnir blaðamanni.
Fullur poki af
tuskudýrum
„Fyrir nokkrum árum var hann
alltaf að koma heim með tuskudýr.
Og einu sinni peysu. Bekkjarsystir
sonar míns kom í heimsókn og
kannaðist við nokkur tuskudýr, en
þau búa hér rétt hjá. Þar hafði
hann þá farið inn og náð í leik-
föngin. Svo leggur hann þau við
matarskálina,“ segir hún.
„Stúlkan fékk með sér heim
fullan poka af tuskudýrum, það
var komið svo mikið sem hafði
safnast yfir veturinn,“ segir hún
og hlær.
Grísahnakkasneiðar, kjúk-
lingur og fiskur
„Svo í vetur byrjaði hann að koma
heim með sokka og húfur og einn
morgun kom hann með frottebelti
af slopp. Svo hefur hann líka kom-
ið heim með blöðrur sem farið er
að leka úr. Örugglega úr afmæl-
um. Honum tekst að troða þeim
inn um gluggann. Svo hefur hann
komið heim með mat.“
Hvernig mat?
„Grísahnakkasneiðar. Fisk.
Kjúklingabringur. Hann nær í það
væntanlega heima hjá einhverjum,
óeldað,“ segir hún og segist halda
að fólk sé þá að affrysta mat fyrir
kvöldið.
„Um daginn héldum við að
hann væri orðinn veikur því
hann var alveg hættur að éta
matinn sinn. En svo fundum við
hálfétið fiskstykki undir komm-
óðu inni í einu herberginu,“ segir
hún og hlær.
„Hann veiðir líka fugla og kem-
ur með þá lifandi inn. Svo hagar
hann sér stundum eins og hundur
og nær í bolta sem við köstum.
Hann er algjör Moli.“
Moli er um níu ára. Viðættleiddum hann úrKattholti árið 2013.
Hann fannst úti. Við ætluðum
að fá okkur kettling og fórum í
Kattholt og hann gjörsamlega
smjaðraði sig inn á okkur. Þá var
hann talinn tveggja ára,“ segir
Fanný B. Miiller Jóhanns-
dóttir.
„Moli er rosalegt kelidýr, al-
gjör kelirófa og liggur iðulega á
maganum á mér eða manninum
mínum, en hann velur frekar
manninn ef hann er heima. Hann
setur svo aðra loppuna í hálsakot
Fanný segir Mola
vera algjört keli-
dýr og mikinn
grallaraspóa.
MOLI
Stelur öllu sem
er „fluffy“
Moli kemur heim með mjúka hluti
eins og sokka og tuskudýr en einn-
ig óeldaðan mat nágrannanna.
14.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Hair Volume
– fyrir líflegra hár
Hair Volume inniheldur jurtir og
bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir
hárið og getur gert það
líflegra og fallegra.
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að
taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa
aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir
og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að
taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal
Kisan Ísa er mikill safnari.
Hún dregur inn rusl, föt
og grillaðar kótilettur.
hús. Yfir húsgögnin, meðal annars
tausófa. Maðurinn minn hljóp um alla
íbúð á eftir henni á meðan ég var að
deyja úr hlátri. Það voru hvít katta-
fótspor úti um allt. Þetta var eins og í
teiknimynd.“