Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 1
M Á N U D A G U R 6. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 157. tölublað 108. árgangur
KEPPA UM
NÝSKÖPUNAR-
FYRIRTÆKI
FYRSTA LIÐIÐ
FRÁ ÁRINU
2008
FRÆÐSLA MIKIL-
VÆGUR ÞÁTTUR
Í ÞJÓÐGARÐINUM
REKNIR AF VELLI 26 VATNAJÖKULL 10VIÐSKIPTI 12
Ljósmynd/Bjarni F. Einarsson
Minjar Eldri skálinn á Stöðvarfirði gæti
verið forn útstöð frá Norður-Noregi.
Bjarni F. Einarsson fornleifa-
fræðingur og hans fólk hafa verið
við uppgröft á Stöðvarfirði í fimm
ár og rannsakað þar hús og gripi
sem Bjarni fann árið 2007. Bjarni
segir æ fleira koma í ljós, en fjöldi
gripa hefur fundist við rannsóknina
auk húsa og telur Bjarni eldri skál-
ann, sem talinn er frá því um 800,
vera útstöð frá Norður-Noregi það-
an sem fólk hafi ferðast og haft
sumardvöl á Íslandi og nýtt sér auð-
lindir sjávarins, fisk, hval og sel.
Fréttirnar af nýju landi hafi svo
farið um Skandinavíu og fólk komið
þaðan til Íslands í leit að betra lífi,
ekki bara á flótta undan Haraldi
hárfagra. »6
Eldri skálinn á
Stöðvarfirði talinn
frá því um 800
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við höfum ekki lagt mat á hversu
stór hluti krafnanna kann að tapast.
Það má hins vegar búast við því að
það tapist einhverjir peningar,“ seg-
ir Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri, spurður um svokall-
aðan ferðaábyrgðasjóð. Ferðamála-
stofu hefur verið falið að reka sjóð-
inn, en úr honum eiga
ferðaskrifstofur að geta sótt um lán
til að endurgreiða viðskiptavinum
pakkaferðir sem niður féllu af óvið-
ráðanlegum aðstæðum. Eiga endur-
greiðslurnar við fyrir ferðir sem
áætlaðar voru á tímabilinu 12. mars
til 31. júlí en fella þurfti niður vegna
faraldurs.
Eftirlit með nýtingu lánanna
Verði heimild sjóðsins nýtt til fulls
er ráðgert að umfang lánanna verði
um 4,5 milljarðar króna. Að sögn
Skarphéðins ná lögin til 15-20 þús-
und ferða, en engin veð liggja að baki
lánunum. Verði ferðaskrifstofur, er
nýtt hafa úrræðið, gjaldþrota á
ferðaábyrgðasjóður kröfu í trygg-
ingar fyrirtækjanna. Ljóst er að
þrátt fyrir það kunna fjármunir að
tapast enda stendur ferðaþjónustan
hér á landi nú höllum fæti.
„Ferðaþjónustan stendur mjög
illa þannig að það má búast við að
eitthvað tapist. Það verður þó haft
eftirlit með því að lánið skili sér til
neytenda, til að tryggt sé að það
verði ekki notað í eitthvað annað,“
segir Skarphéðinn og bætir við að
umrædd ferðaþjónustufyrirtæki
þurfi að uppfylla lágmarksviðmið um
ríkisstyrki til að geta fengið lán úr
sjóðnum. Ekki sé ljóst hversu mörg
fyrirtæki falli þar undir.
Spurð um málið segir Þórdís Kol-
brún R. Gylfadóttir ferðamálaráð-
herra að lánin feli í sér vissa áhættu
eins og önnur lán sem veitt séu í
ríkjandi ástandi. Þó eigi ferða-
ábyrgðasjóður kröfu í tryggingafé
viðkomandi ferðaskrifstofa.
„Ég myndi ekki segja að um víkj-
andi lán sé að ræða þótt þetta séu
ekki veðlán. Í lögunum er kveðið á
um að sjóðurinn öðlist kröfu í trygg-
ingafé ferðaskrifstofu og í tilviki
gjaldþrotaskipta kröfu samkvæmt
112. gr. gjaldþrotaskiptalaga. Vissu-
lega er þó einhver áhætta fólgin í
þessum lánum eins og öllum lánum
sem veitt eru núna í því ástandi sem
hefur skapast vegna veirunnar.“
Ríkissjóður geti tapað fjár-
munum vegna ferðalána
Reiknað með 4,5 milljörðum til íslenskra ferðaskrifstofa 15-20 þúsund ferðir
„Ég stend enn í fæturna,“ segir Dóra Ólafsdóttir,
sem fagnar 108 afmæli sínu í dag. Hún er elsti
núlifandi Íslendingurinn, fædd 6. júlí árið 1912 í
Sigtúnum á Kljáströnd í Grýtubakkahreppi,
næstelst átta barna þeirra hjóna Ólafs Gunnars-
sonar útgerðarmanns og Önnu Maríu Vigfús-
dóttur húsfreyju. Dóra á eina systur á lífi, Þóru
Soffíu, 89 ára, sem býr í Reykjavík. Dóra dvelur
á hjúkrunarheimilinu Skjóli og þangað kom Dav-
íð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, færandi
hendi um helgina með blómvönd til Dóru og til-
kynnti henni jafnframt að hér eftir fengi hún
Moggann frítt. Hún er elsti áskrifandi blaðsins
og hefur verið dyggur lesandi til fjölda ára. Hún
les mikið, bæði bækur og blöð, og fylgist vel með
þjóðmálum. „Ég var einmitt að lesa Staksteina
þegar þið komuð, og mér líkaði það vel,“ sagði
Dóra við Davíð.
Alls eru nú 60 Íslendingar 100 ára og eldri, og
hafa aldrei verið fleiri, að sögn Jónasar Ragn-
arssonar, sem sér um vefinn Langlífi. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Dóra Ólafsdóttir 108 ára í dag, elst Íslendinga
Kjarasamn-
ingar leik- og
grunnskólakenn-
ara og Sambands
íslenskra sveitar-
félaga hafa nú
verið lausir í
rúmt ár. Dag-
legir fundir eru
milli samninga-
nefnda, en Þor-
gerður Laufey
Diðriksdóttir, formaður Félags
grunnskólakennara, segir allt kapp
lagt á að ljúka viðræðum fyrir
haustið. Óvenjulegt sé að fundað sé
um hásumar, en það skýrist af
óvenjulegum aðstæðum í samfélag-
inu. »2
Allt kapp lagt á að
semja fyrir haustið
Þorgerður Laufey
Diðriksdóttir
Vilhjálmur
Bjarnason, fyrr-
verandi þing-
maður Sjálfstæð-
isflokksins, segir
að aldrei hafi
reynt á lögmæti
smálána fyrir
dómi. Hann hvet-
ur fólk til að
greiða ekki smá-
lánaskuldir ætt-
ingja heldur láta á það reyna hvort
fyrirtæki treysti sér til að sækja
mál, en það efast hann um. Laga-
breytingar þurfi ekki til, enda eigi
núverandi löggjöf að taka á lánum
þar sem lánveitandi nýtir sér neyð
og bágindi lántaka. Að mati Vil-
hjálms eru smálántakendur, sem
ekki hafi forsendur til að vita hvað
þeir eru að gera, beittir ofbeldi. »8
Aldrei hafi reynt á
lögmæti smálána
Vilhjálmur
Bjarnason