Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 27
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Slagurinn um sæti í Meistaradeild
Evrópu og Evrópudeild UEFA verð-
ur geysiharður í síðustu fimm um-
ferðum ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu, miðað við þá stöðu sem
nú er í deildinni.
Liverpool er eina liðið sem hefur
tryggt sér Meistaradeildarsæti, sem
enskur meistari. Manchester City
væri allajafna komið með níu fingur
á annað sætið en þar sem félagið er
komið í tveggja ára Evrópubann
bendir allt til þess að fimmta sætið,
þar sem Manchester United situr
eftir 5:2-sigur á Bournemouth á
laugardaginn, verði fjórða og síðasta
Meistaradeildarsæti Englands. Ekki
nema Alþjóðaíþróttadómstóllinn taki
áfrýjun City til greina.
Þrjú ensk lið fara í Evrópudeild-
ina, bikarmeistararnir og liðið í
fimmta og sjötta sæti, en vegna City-
málsins, og vegna þess að þau fjögur
lið sem eftir eru í bikarnum eru öll í
sjö efstu sætum deildarinnar, bendir
allt til þess að áttunda sætið, þar sem
Sheffield United situr nú, verði Evr-
ópusæti.
Viðureign Tottenham og Everton í
kvöld er lykilleikur fyrir bæði lið í
þeirri baráttu en sigurliðið kemst í
áttunda eða níunda sæti. Reyndar
má segja að lið allt niður í fjórtánda
sæti geti enn gert sér vonir um að ná
áttunda sætinu með góðum enda-
spretti.
Mason Greenwood (2), Marcus
Rashford, Anthony Martial og Bruno
Fernandes skoruðu fyrir Manchest-
er United í 5:2-sigrinum á Bourne-
mouth.
Jamie Vardy skoraði tvö marka
Leicester í 3:0-sigri á Crystal Palace.
Fyrra markið var hans 100. mark í
úrvalsdeildinni.
Olivier Giroud, Willian og Ross
Barkley skoruðu fyrir Chelsea í 3:0-
sigri á Watford í fyrrakvöld.
Sadio Mané og Curtis Jones
tryggðu Liverpool sigur á Aston
Villa á Anfield, 2:0, í gær með mörk-
um á síðustu 20 mínútunum.
Che Adams tryggði Southampt-
on óvæntan sigur á Manchester City,
1:0, í gærkvöld þegar hann lyfti bolt-
anum glæsilega yfir Ederson í marki
City af hátt í 40 metra færi.
Jóhann Berg Guðmundsson
fékk loksins að stíga inn á völlinn í
gær eftir langvarandi meiðsli og kom
við sögu hjá Burnley í fyrsta sinn í
hálft ár, eða síðan 4. janúar. Það var
þó stutt gaman, honum var skipt
inná í lok uppbótartímans þegar
Burnley og Sheffield United skildu
jöfn, 1:1, í gær og leikurinn var flaut-
aður af nánast strax eftir skipt-
inguna. En hann gæti spilað meira
gegn West Ham á miðvikudaginn.
Mikill Evrópuslagur fram undan
Baráttan farin að snúast um fimmta
og áttunda sæti úrvalsdeildarinnar
AFP
Sigurmark Leikmenn Southampton fagna Che Adams eftir að hann skoraði
sigurmarkið gegn Manchester City með skoti af fjörutíu metra færi.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Birkir Bjarnason og félagar í
Brescia eygja enn von um að halda
sæti sínu í ítölsku A-deildinni í knatt-
spyrnu. Þeir sigruðu Hellas Verona 2:0
í gærkvöld, komust með því úr botn-
sætinu og eru nú sex stigum frá því að
sleppa úr fallsæti þegar átta umferð-
um er ólokið. Birkir lék fyrstu 83 mín-
útur leiksins.
Hinn 18 ára gamli Andri Fannar
Baldursson kom inná sem varamaður
á 88. mínútu hjá Bologna sem vann
óvæntan útisigur á Inter Mílanó, 2:1, í
gær í ítölsku A-deildinni. Tíu leikmenn
Bologna jöfnuðu metin og Musa Barr-
row skoraði sigurmarkið eftir að jafn-
að hafði verið í liðunum á ný með öðr-
um brottrekstri. Bologna er í 9. sæti.
Emil Hallfreðsson og félagar í Pad-
ova komust í gærkvöld í sextán liða úr-
slit umspilsins um sæti í ítölsku B-
deildinni í knattspyrnu. Þeir unnu Fe-
ralpisaló á heimavelli 1:0 og Emil
spilaði allan leikinn. Alls eru 25 lið að
leika um tvö sæti í B-deildinni.
Eiður Aron Sigurbjörnsson, mið-
vörður knattspyrnuliðs Vals sem
meiddist á ökkla í leiknum gegn KR í
fyrstu umferð Íslandsmótsins, reiknar
með að verða klár í næsta leik. Hann
sagðist við mbl.is í gær vonast til þess
að spila gegn Víkingum á miðvikudag-
inn. „Ég tel að ég sé klár í 90 mínútur
eins og staðan er í dag,“ sagði Eiður
Aron.
Sigvaldi Eggertsson er genginn til
liðs við úrvalsdeildarlið ÍR í körfu-
knattleik og mun hann leika með lið-
inu á komandi leiktíð. Sigvaldi hefur
leikið með Obradorio á Spáni undan-
farin tvö tímabil, en hann lék með
Fjölni í 1. deildinni veturinn 2017-18
þar sem hann var stigahæsti Íslend-
ingurinn í deildinni með 19 stig að
meðaltali.
Stórveldin í þýska fótboltanum
fögnuðu sigrum í bikarkeppninni þar í
landi um helgina. Robert Lewand-
owski skoraði tvö mörk fyrir Bayern
München sem vann Leverkusen 4:2 í
úrslitaleiknum í karla-
flokki sem fram fór í
Berlín. Í kvennaflokki
varð Wolfsburg bik-
armeistari eftir víta-
spyrnukeppni gegn
Essen en liðin gerðu
3:3-jafntefli í úr-
slitaleiknum í
kvöld. Eftir leik-
inn fögnuðu
leikmenn
Wolfsburg
með því að
veifa treyju
Söru Bjarkar
Gunn-
arsdóttur sem
gat ekki leikið
með þeim því
hún gekk til liðs
við Evr-
ópumeistara
Lyon um mán-
aðamótin.
Eitt
ogannað
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – Þróttur R ................ 19.15
Origo-völlur: Valur – Stjarnan ............ 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Fagverksv.: Afturelding – Haukar ..... 19.15
Í KVÖLD!
Glódís Perla Viggósdóttir var valin
maður leiksins hjá Svíþjóðarmeist-
urum Rosengård eftir að hún
tryggði þeim útisigur á Kristian-
stad, 1:0, í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á laugardaginn. Sigur-
markið skoraði Glódís með skalla
eftir hornspyrnu á 43. mínútu og
meistararnir hafa þar með unnið
tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu.
Svava Rós Guðmundsdóttir lék
seinni hálfleikinn með Kristianstad
og gerði oft usla í vörn Rosengård
en lið hennar hefur tapað tveimur
fyrstu leikjum sínum.
Best og skoraði
sigurmarkið
Ljósmynd/FC Rosengård
Lykilhlutverk Glódís Perla Viggós-
dóttir skoraði sigurmarkið.
Arnór Sigurðsson landsliðsmaður í
knattspyrnu skoraði fyrir CSKA
Moskva í öruggum sigri á Akhmat
Grozní, 4:0, á laugardaginn. Leikið
var á heimavelli Akhmat í Grozní,
höfuðstað sjálfstjórnarlýðveldisins
Téténíu í Kákasusfjöllunum. Arnór
lék í 70 mínútur, var skipt af velli
stuttu eftir að hann kom CSKA í 3:0
með fallegu skoti, og Hörður Björg-
vin Magnússon lék allan leikinn í
vörn Moskvuliðsins. CSKA er í 5.
sæti og er nánast öruggt með Evr-
ópusæti þegar fjórum umferðum er
ólokið í Rússlandi.
Arnór skoraði í
Kákasusfjöllum
Ljósmynd/CSKA Moskva
CSKA Arnór Sigurðsson skoraði sitt
fjórða mark á tímabilinu.
Grindvíkingar unnu á laugardag
sinn annan sigur í fyrstu þremur
umferðum 1. deildar karla í fót-
bolta, Lengjudeildarinnar, þegar
þeir sigruðu nýliðana í Vestra, 3:2,
á Ísafirði. Stefán Ingi Sigurðarson
og Gunnar Þorsteinsson komu
Grindavík í 2:0 en Sigurður Grétar
Benónýsson og Rafael Navarro
jöfnuðu fyrir Vestra. Alexander
Veigar Þórarinsson skoraði sigur-
mark Grindvíkinga á 87. mínútu.
Vestramenn hafa ekki unnið leik
enn sem komið er og sækja Þór
heim til Akureyrar á miðvikudag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurmark Alexander Veigar
Þórarinsson skoraði undir lokin.
Annar sigur
Grindvíkinga
Real Madrid tók eitt skref enn í átt að
spænska meistaratitlinum í knatt-
spyrnu í gær með því að sigra Athle-
tic Bilbao 1:0 á útivelli. Sergio Ramos
skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu.
Real er áfram fjórum stigum á undan
Barcelona þegar fjórar umferðir eru
eftir, og dugar auk þess að liðin endi
jöfn að stigum. Barcelona vann Vill-
arreal á útivelli, 4:1, þar sem Luis
Suárez, Antoine Griezmann og Ansu
Fali skoruðu, auk sjálfsmarks. Suá-
rez varð með markinu jafnframt í
3.-4. sæti yfir markahæstu menn
Barcelona í sögunni.
Meistaratitillinn
í augsýn Real
AFP
Sigur Sergio Ramos og Rodrygo
fagna marki Real gegn Bilbao.
Hólmbert Aron Friðjónsson er orð-
inn fjórði markahæsti leikmaður
norsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu eftir sex umferðir. Hann skor-
aði bæði mörk nýliða Aalesund sem
gerðu jafntefli, 2:2, við Vålerenga í
Ósló á laugardaginn og er kominn
með fjögur mörk. Þó hefur Hólmbert
aðeins spilað fjóra leiki af sex og verið
tvisvar í byrjunarliði Aalesund í þess-
um sex umferðum.
Davíð Kristján Ólafsson lagði upp
fyrra markið fyrir Hólmbert í leikn-
um en þriðji Íslendingurinn í liðinu,
Daníel Leó Grétarsson, er frá keppni
vegna meiðsla sem stendur.
Matthías Vilhjálmsson hjá Våler-
enga er líka ofarlega á markalistanum
með þrjú mörk en hann lagði upp
fyrra mark Óslóarliðsins í leiknum.
Alfons Sampsted er á miklu flugi
með liði Bodö/Glimt sem fer á kostum
í hverjum leiknum á fætur öðrum.
Bodö/Glimt burstaði Brann 5:0 í gær
og hefur unnið alla sex leikina með
markatölunni 24:6. Alfons hefur spil-
að sem hægri bakvörður í öllum leikj-
unum en hann kom til liðsins frá
Norrköping í vetur. Ef svo heldur
fram sem horfir verða lið hans og
meistarar Molde í sérflokki í deildinni
í ár.
Hólmbert skorar mörk
og Alfons er á flugi
Ljósmynd/Aalesund
Mark Hólmbert Aron Friðjónsson fagnar marki gegn Vålerenga.