Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020
Óðinn Viðskiptablaðsins ræddiskattheimtu í liðinni viku og þá
hættu sem stafar af því þegar ein-
stök dægurmál verða til þess að
stjórnmálamenn tapa áttum og
heimta ofurskatta á
tilteknum sviðum
eða á tiltekinn hóp
sem sætir gagnrýni
af einhverjum
ástæðum.
Óðinn nefnirfranska lexíu
um þetta þegar sósí-
alistinn „François
Hollande, fyrrver-
andi forseti Frakka,
setti árið 2012 á 75%
hátekjuskatt á alla
þá sem höfðu meira
en eina milljón evra
(um 135 milljónir
króna) í laun á ári. Stjórnlagadóm-
stóll landsins lækkaði álagningu
skattsins í 50%, þar sem hann legðist
misjafnlega á fólk eftir fjölskyldu-
aðstæðum, en jafnframt leiddu skoð-
anakannanir í ljós að almenningur
var honum andstæður og þótti hann
jafnast eignaupptöku, sem myndi
hafa aðrar og verri afleiðingar en að
var stefnt.“
Óðinn bendir á að ofurskatturinnfranski hafi aðeins skilað broti
af þeim tekjum í ríkissjóð sem gert
hafi verið ráð fyrir. Þess vegna hafi
verið horfið frá þessum hátekju-
skatti og það hafi verið þáverandi
fjármálaráðherra, núverandi for-
seti, Emmanuel Macron, sem hafi
staðið fyrir því og lýst skattinum
með orðunum „Kúba án sólskins-
ins“.
Þessi vanhugsaði ofurskattur vareinn af nöglunum í pólitíska lík-
kistu Hollandes. Um leið hjálpaði af-
nám hans Macron, sem kemur ekki á
óvart því almenningur vill ekki of-
urskatta heldur almenna lága skatta
sem allir geta búið sæmilega við.
François
Hollande
Enginn kýs „Kúbu
án sólskinsins“
STAKSTEINAR
Emmanuel
Macron
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
R
GUNA
GÓÐAR
I
Grísk þjóðlagatónlist og í bland við
íslenska klassík fékk að njóta sín í
Skálholtskirkju í gær þegar hljóm-
sveitin Kimi steig á svið í sunnu-
dagsmessu. Hljómsveitina skipa
Jónas Ásgeirsson harmonikkuleik-
ari, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir
söngkona og Katerina Anagnos-
tidou slagverksleikari, en þau
kynntust í Kaupmannahöfn þar sem
þau hafa lagt stund á tónlistarnám.
Sveitin er á Íslandi í sumar og held-
ur tvenna tónleika í Skálholti á
föstudag og sunnudag. Því næst
liggur leiðin norður í land, á Siglu-
fjörð, Akureyri og Dalvík, áður en
hljómsveitin kemur til Reykjavíkur
og heldur tónleika í Dómkirkjunni.
Þótt tónlistin sé ekki trúarleg segir
Jónas að gaman sé að spila í
kirkjum. „Þetta er öðruvísi rými og
því fylgir mikill helgibragur og allt
annar hljómburður,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið. „Það
hefur áhrif á tónleikana.“
Kimi leikur aðallega samtíma-
tónlist en á tónleikunum sem fyrir-
hugaðir eru í Skálholti mun sveitin
spila frumsamin verk sem unnin
eru með tónskáldunum Gunnari
Karel Mássyni og Þórönnu Björns-
dóttur.
Tónaflóð í Skálholti
Morgunblaðið/hj
Tónlist Kimi í Skálholtskirkju í gær. Við altarið stendur vígslubiskupinn.
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Aldrei hefur reynt á lögmæti smálána
fyrir dómi. Þetta segir Vilhjálmur
Bjarnason, fyrrverandi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur ver-
ið með smálán til skoðunar frá árinu
2013 og segist aldrei hafa rekist á
dóm þar sem smálánafyrirtæki fer
með kröfu á hendur lántaka. Að sögn
Vilhjálms er ástæða þess sú að fyrir-
tækin treysti ekki eigin málstað
nægilega til að höfða mál. „Að mínu
viti er verið að beita lántakendur of-
beldi, sem hafa ekki forsendur til að
vita hvað þeir eru að gera,“ segir Vil-
hjálmur.
Hann segir að smálánafyrirtæki
komist upp með starfsemi sína á með-
an aðstandendur koma lántakendum,
sem lenda í vandræðum, til bjargar.
„Aðstandendur eiga ekki að leysa fólk
ur prísundinni,“ segir Vilhjálmur,
heldur eigi að láta á það reyna hvort
smálánafyrirtæki fari með málin fyrir
dóm.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segist undan-
farnar vikur hafa verið með mál nokk-
urra smálántaka til skoðunar, en
hann vekur athygli á málinu í færslu á
Facebook. Nú þegar hægst hafi um
hjá honum, eftir að þingstörfum lauk,
geti hann lagst almennilega yfir mál í
samstarfi við Vilhjálm.
„Þetta eru svo vond mál af því
þetta lánafyrirkomulag er að misnota
bágindi fólks,“ segir Ásmundur. Á
liðnum þingvetri lögðu þingmenn
Samfylkingarinnar fram frumvarp
sem ætlað var að koma böndum á
starfsemi smálánafyrirtækja, en það
hlaut ekki afgreiðslu. Ásmundur seg-
ist ekki geta svarað því til hvaða að-
gerða löggjafinn ætti að grípa, en
skoða þurfi allar hliðar málsins vand-
lega áður en ákvörðun er tekin.
„Aldrei reynt á lögmæti smálána“
Þingmaður segir smálánafyrirkomulagið nota sér bágindi lántaka