Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 20

Morgunblaðið - 06.07.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 ✝ Sigurður Hilm-ar Guðjónsson (Siggi í Báru) fædd- ist í Sæbóli Sand- gerði 2. ágúst 1939. Hann lést 26. maí 2020 á sjúkrahúsi í Torrevieja á Spáni. Kjörforeldrar Sigurðar voru hjónin Guðjón Hansson, f. 15. nóv. 1909, d. 11. feb. 1994, og Ingveldur Einarsdóttir, f. 15. okt. 1912, d. 3. júl. 1979. Siggi kvæntist hinn 28. mars 1964 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sæunni H.B. Guðmunds- dóttur kjólameistara. Börn þeirra eru: 1) Guðjón Ingi, f. 19. apríl 1961, börn hans eru: Jóna Björk, f. 1980, móðir hennar er Gyða Viðarsdóttir, Axel Rúnar (stjúpsonur), f. 1981, Níels, f. 1984, og Guðjón Janus, f. 1987, móðir þeirra er Ósk Elísdóttir. 2) Gunnhildur Ása, f. 26. apríl 1962, gift Geir Sigurðssyni, börn hennar eru: Sigurður Hilmar, f. 1981, Sæunn Sigríður, f. 1982, Kamilla Ösp, f. 1989, Karen Eir, f. 1983, faðir þeirra er Guðjón Reynisson, og Þórl- indur, f. 1999, faðir hans var Jó- hann Þórlindsson. 3) Sævar, f. Siggi unni tónlist og var t.d. formaður Lúðrasveitar Sand- gerðis árin 1960-1969. Síðustu árin spilaði hann með Harm- onikkufélagi Selfoss. Siggi var virkur félagi í Lionsklúbbi Sandgerðis alla tíð frá árinu 1967. Hann vann að endurvakn- ingu björgunarsveitarinnar Sig- urvonar og var formaður henn- ar frá 1964-1989. Hann var í stjórn SVFÍ í 27 ár. Siggi var í byggingarnefnd Miðneshrepps frá 1962-1966, hann var svo byggingarfulltrúi þar frá 1968-1985. Hann sat í bæjarstjórn Sandgerðis í eitt kjörtímabil og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir bæj- arfélagið. Hann starfaði hjá ÍAV frá 1985 til aldamóta og vann þar við mælingar og sem yf- irmaður steypu- og ein- ingastöðvar. Eftir það vann hann hjá Keflavíkurverktökum til 2003. Hann teiknaði og byggði mörg íbúðarhús og sum- arhús ásamt því að teikna björg- unarskýli sem hann gaf björg- unarsveitum og byggð voru víða um land. Hann byggði margar flóknar byggingar, m.a. Ytri- Njarðvíkurkirkju. Siggi var áhugamaður um varðveislu gamalla muna og smíðaði t.d. líkön af gömlum húsum sem mörg hver eru horf- in. Sigurður verður jarðsunginn frá Sandgerðiskirkju (Safn- aðarheimilinu í Sandgerði) í dag, 6. júlí 2020, klukkan 13. 25. mars 1963, gift- ur Erlu Sigurjóns- dóttur, börn þeirra eru: Elva Kristín, f. 1991, Telma Lind, f. 1994, og Sædís Björg, f. 1996. 4) Sigurður, f. 25. mars 1963, giftur Jónu Bryndísi Páls- dóttur, börn þeirra eru: Ingveldur, f. 1982, Eydís, f. 1985, og Bjarni, f. 1985. Langafabörn Sigga í Báru eru orðin 28. Siggi lauk unglingaprófi úr Sandgerðisskóla. Ævistörf hans og áhugamál voru fjölbreytt og fór hann snemma að vinna á síld, reknetum og fleiru. Hann var í Knattspyrnufélaginu Reyni og fór með þeim í fyrstu keppn- isferð til Færeyja. Úr þessari ferð átti hann kærar minningar og vini. Árin 19601964 stundaði hann nám í húsasmíði í Iðnskól- anum í Reykjavík og var í læri hjá Þórarni Ólafssyni í Keflavík. Hann lauk sveinsprófi árið 1964. Árið 1965 stofnaði Siggi Hús og innréttingar hf. í Sandgerði ásamt Ólafi Gunnlaugssyni og Eðvald Bóassyni. Hann var í prófnefnd húsasmiða í 20 ár. Síminn hringdi og mér var til- kynnt að faðir minn þyrfti skyndilega að leggjast undir hættulega skurðaðgerð sem gæti farið á báða vegu. Mér var brugð- ið því hann hafði alltaf verið svo hraustur og hvergi kennt sér meins. Því var ég viss um að þessi aðgerð færi nú vel. Það var því erfitt að trúa því þegar að fréttin barst um að hann hefði ekki lifað aðgerðina af. Pabbi var ástríkur faðir, vildi öllum vel, hann var ósérhlífinn við að hjálpa öðrum og gefa góð ráð. Hann var mikill viskubrunn- ur og góður kennari, það var allt- af hægt að leita til hans með ýmis vandamál, hann gat alltaf fundið lausn á málunum. Pabbi vann mikið og var mikið í félagsmálum, en hann hafði alla tíð tíma fyrir okkur systkinin þegar við þörfnuðumst þess. Með honum voru uppeldisárin ljúf og árin sem komu þar á eftir enn ljúfari. Hann gaf okkur systkin- unum gott veganesti inn í fram- tíðina og við munum búa að þeim alla tíð. Hann kenndi okkur að meta tónslistina og tónlistin sem fylgdi honum alla tíð var svo töfrandi, yndisleg og gefandi. Margar bernskuminningar eru um þegar fólk var að koma heim með hljóðfæri sín og fá að spila undir með honum og svo sungu móðir mín og systir raddað undir. Við ferðuðumst mikið saman um landið, hvort sem var um há- lendið eða með ströndum þess. Við ferðuðumst einnig mikið er- lendis og mínar skemmtilegustu ferðaminningar eru með foreldr- um mínum. Við unnum einnig mikið saman, hann kenndi mér að smíða og snemma treysti hann mér fyrir vandasömum smíða- verkefnum, sem var ómetanlegt. Við áttum mörg sameiginleg áhugamál sem ég hefði svo mikið viljað stunda áfram með honum, en fráfall hans undirstrikar hversu dýrmætt það er að njóta líðandi stundar og gefa okkur meiri tíma fyrir okkur sjálf. Pabbi fór alltaf sínar eigin leið- ir og ruddi í burt mótbárum um að eitt og annað væri ekki hægt. Hann sýndi aftur og aftur fram á að með útsjómarsemi og sam- heldni var hægt að gera stórvirki og þannig vannst hvert þrekvirk- ið á fætur öðru. Hann var óhræddur við að framkvæma það sem hann ætlaði sér og tókst það vel. Hann langaði t.d að eignast skútu og sigla henni til Græn- lands, þá bara smíðaði hann sér skútu (40 fet), því miður varð aldrei úr því að hann færi á henni til Grænlands, en skútan var mikil listasmíði og sigldi afar vel. Pabbi hafði mikinn áhuga á björgunarmálum og ungur að ár- um tók hann við formennsku björgunarsveitarinnar Sigurvon- ar og með hans forystu og hjálp góðra björgunarseitarmanna sem höfðu trú á honum og með aðstoð sjómanna sjálfra, varð björgunarsveitin ein besta og fullkomnasta sjóbjörgunarsveitin á landinu, björgunarsveit sem bjargað hefur mörgum mannslíf- um. Pabbi átti stóran þátt í til- komu björgunarbáta og skipa Slysavarnafélagsins sem í dag eru staðsett í flestum sjávar- byggðum. Hann talaði einnig mikið fyrir björgunarþyrlum í hvern landsfjórðung og upp- byggingu forvarna í björgunar- málum fyrir sjómenn. Það var á brattann að sækja, í þessum mál- um en með seiglunni urðu margir sigrar. Elsku pabbi, ég hef fylgt þér í 57 ár og á með þér svo margar ómetanlegar minningar sem ekki er hægt að telja upp hér, en minningarnar um þig munu lifa. Ég bið guð almáttugan að leiða þig í ljós sitt og umvefja þig ást og kærleika. Það er gott til þess að vita að þegar minn tími kem- ur, þá ert þú til staðar til að taka á móti mér. Sigurður Sigurðsson. Elsku pabbi minn, það er svo erfitt að kyngja því að við fáum ekki að sjá þig aftur. Þú sem varst svo hress og kátur. Mikið eigum við eftir að sakna þín. Á milli okkar ríkti einstakt samband og ég gat leitað til þín með allt hvort sem það voru ást- armál, landflutningar, húsakaup, vinnutengt eða fjölskyldutengt – þú áttir ráð við öllu! Þér fannst ekkert sem mér datt í hug vit- laust og gafst þér alltaf tíma til að setjast niður með mér og gefa mér ráð. Eins ef ég var í fram- kvæmdum þá varst þú alltaf mættur að hjálpa, smíða eða gera við gróðurhús, innrétta búð eða gera eitthvað heima hjá mér, þá komstu með verkfærin þín og ég er þér svo þakklát. Þú elskaðir að vera með okkur fjölskyldunni þinni og við elskuð- um að vera með þér. Alls staðar varstu hrókur alls fagnaðar og dróst upp harmonikkuna við hvert tækifæri. Þú stofnaðir með mér, bræðrunum og vinum okkar marga dúetta, kvartetta og kóra enda varstu svo ótrúlega flinkur að útsetja, radda og stjórna. Svo varstu með eindæmum handlag- inn, það lék einhvern veginn allt í höndunum á þér hvort sem það var venjuleg skrift (en þú hafðir þá fallegustu rithönd sem ég hef séð), skrautskrift, húsasmíði, módelsmíði, hönnun eða hvað sem var og ekki klikkaði heldur stærðfræðin ef eitthvað þurfti að reikna út. Þú varst svo mikil fyr- irmynd okkar allra og deildir kunnáttu þinni til okkar barna, barnabarna og víðar, það voru t.d. ekki fáir smiðirnir sem lærðu hjá þér og eru það allt afburða- smiðir í dag. Þú varst besti pabbi og tengdapabbi sem hægt er að hugsa sér. Ég er svo ánægð að hafa gefið þér alnafna sem ber nafn þitt með stolti, já börnin duttu í lukkupottinn að fá þig sem afa og langafa. Við vorum búin að plana hell- ing sem við áttum eftir að gera saman, sérstaklega í tengslum við Spán þar sem við vorum búin að kaupa okkur íbúðir í sama kjarna en nú verður þú bara með okkur í hjartanu. Ég er og verð alltaf þakklát fyrir að hafa átt þig elsku pabbi minn og sendi þér faðmlag í draumalandið. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Þín dóttir, Gunnhildur Ása. Elsku elsku afi minn, núna þegar ég skrifa þetta þá er ég að horfa á ljósmynd af okkur saman í London. Í þessari ferð vorum við bara tveir og við kynnumst annarri hlið hvor á öðrum. Í raun vorum við ekki afi og barnabarn í þessari ferð heldur tveir vinir. Þessi ljósmynd gerir svo mikið fyrir mig, hún gerir mig svo stolt- an af því að heita Sigurður Hilm- ar, hún gerir mig svo stoltan af því að hafa átt þig sem afa og hún gerir mig svo stoltan af því að ég hafi líka getað kennt þér ýmis- legt. Eitt sem ég sagði þér aldrei úr ferðinni var hversu nálægt því ég var að gefast upp á hjólabátn- um og það eftir nokkrar mínútur. Ég náði aldrei almennilegum takti og alltaf þegar ég leit á þig þá blést þú ekki úr nös. Eftir tíu mínútur var ég að fara að gráta ég var svo þreyttur. En sem bet- ur fer þá allt í einu datt ég í takt við þig og vatnið og þetta var ekkert mál eftir það og áttum við yndislegar klukkustundir á vatn- inu. Ég var að vísu eins og karfi ég sólbrann svo illa, en það var allt þess virði. Í gegnum tíðina þá hefur þú verið frábær afi og gert allt sem afar eiga að gera og meira til. Ég var lánsamur að fá að flytja inn til þín og ömmu sem unglingur og það mótaði mig mikið. Ég er ekki viss um að ég hafi nokkurn tím- ann þakkað þér fyrir það að taka mig inn á heimilið ykkar en von- andi sýndi ég það í verki. Að eiga afa sem kennir manni eins mikið og þú gerðir er ómetanlegt og yrði það allt of löng upptalning að lista það upp hér. Ef það er eitt sem ég hins vegar vona að ég geti gert eins og þú þá er það að knúsa fólk jafn hlýtt og innilega og þú gerðir alltaf. Að deyja er hluti af lífinu, en að sætta sig við dauðann er eitt- hvað sem ekki er hægt að kenna og hver og einn þarf að tækla á sinn hátt. Það er rosalega erfitt að hugsa til þess að ég muni ekki hitta þig aftur þegar ég kem upp í Bárugerði, það er erfitt að hugsa til þess að símanúmerið þitt mun ekki birtast aftur á skjá- inn hjá mér og svekkjandi að geta ekki fengið fleiri góð ráð hjá þér eða rætt um tíðarandann við þig. Ég á samt skemmtilegustu minningu sem hægt er að hugsa sér, síðast þegar við hittumst þá varstu á leið til Spánar og ég fékk þitt hlýja afa-knús og koss á kinnina sem ég finn enn þá fyrir. Sú tilfinning mun aldrei hverfa, ég elska þig elsku, elsku afi minn og viltu skila kveðju til Jenna afa fyrir mig. Sigurður Hilmar Guðjónsson. Elsku afi, nú er komið að kveðjustundinni þótt ég hefði viljað hafa þig lengur hér hjá okkur og eiga með þér fleiri sam- verustundir. Þó að stundir okkar hafi verið margar í gegnum árin þá hefði ég viljað hafa þær fleiri, því öll sækjumst við í það sem er gott og jákvætt. Þú hefur alltaf verið eitt af því jákvæða og góða í mínu lífi. Þegar ég hugsa til baka um all- ar þær minningar sem ég er svo heppin að eiga um þig, þá fyllist ég svo miklu þakklæti að hafa átt svo yndislegan afa. Það eru for- réttindi að hafa fengið að alast upp í næsta húsi við þig og ömmu og getað skottast yfir til ykkar hvenær sem er. Að fara yfir til ykkar á að- fangadagskvöld eftir að hafa opn- að allar gjafirnar var alltaf svo gaman. Jólaboðin þar sem við krakkarnir fengum að njóta okk- ar með ýmsum uppátækjum, eins og að halda tónleika fyrir ykkur fullorðna fólkið og spila með ykk- ur langt fram á nótt. Mínar uppá- halds minningar eru þó úr sum- arbústaðnum. Að koma í heimsókn til ykkar ömmu í bú- staðinn hefur alltaf verið ævin- týri út af fyrir sig. Einn ævin- týraheimur sem innihélt fullt af leikjum, harmónikkuspili, söng og góðum félagsskap. Þú og amma hafið alltaf boðið okkur velkomin með opinn faðminn og gefið ykkur tíma til að spjalla og gefa ykkur að okkur. Einnig varst þú alltaf til í leik og sprell með okkur þegar við barnabörn- in vorum krakkar og ekki minnk- aði það eftir að við urðum full- orðin. Mér er mjög minnisstæð ferðin okkar saman til Noregs sumarið 2018. Sú ferð einkennd- ist af skemmtun og hlátri frá upphafi til enda, með fjallgöng- um, vísnagerð og afa„gilli“. Afa- „gill“ var eitt af því allra besta og munum við systurnar sakna þess að geta ekki sest hjá þér og óskað eftir „gilli“. Þessi samvera með ykkur ömmu hefur skipt mig svo miklu máli að ég hef sjálf lagt mikla áherslu á að gefa mér alltaf tíma til að leika við börnin mín og nýta hvert tækifæri til að hafa gaman. Elsku afi, þú átt stóran sess í hjarta mér og mun ég varðveita hann vel og halda minningunni um þig á lofti. Þín verður sárt saknað. Er vorið hlær og fagrar grundir gróa og geislar himins leika’ um hæð og mó, er syngur „dírrin dí“ í lofti lóa og ljóssins englar dansa um strönd og sjó. Við komum, elsku afi, til að kveðja með ástarþökk og bænarljóð á vör. Þín æðsta sæla var að gefa og gleðja, og góðir englar voru í þinni för. (H.P.) Ingveldur Sigurðardóttir. Þegar ég hugsa um þig, elsku afi, þá sé ég þig fyrir mér með op- inn arminn, með stút á munni og svo tekur þú þéttingsfast utan um mig og faðmar mig lengi. Þetta voru bestu faðmlögin. Ég elskaði líka alltaf rakspíralyktina sem fylgdi mér restina af deg- inum, afalyktin, besta lykt í heimi. Ef ég fann hana einhvers staðar fékk ég oft „flashback“ í sumarbústaðinn því þar angaði afalyktin alltaf þegar ég kom í heimsókn. Þær eru svo minnisstæðar heimsóknirnar til ykkar ömmu, bæði í Báru og í bústaðinn. Þar eru margar af mínum bestu æskuminningum. Heimsóknirnar í bústaðinn um páskana og á sumrin, og í Báru um jólin og áramótin. Ég man einu sinni ein áramótin þegar ég var unglingur, þá fékk ég tvo bjóra frá afa og ömmu. Ég var greinilega eitt- hvað fljót að drekka þá og það var gert dálítið grín að því. Þá settist afi niður við hliðina á mér og sagði: „Þegar maður er að drekka þá verður maður alltaf að fara varlega, maður vill ekki drekka of mikið og vera sér til skammar og öðrum til leiðinda.“ Þetta var ein af mörgum ráðlegg- ingum sem ég fékk frá afa, en þessi setning hefur alltaf setið fast á bak við eyrað og hef ég allt- af reynt að fara eftir henni (þótt mér hafi stundum mistekist að standa við það). Ég mun aldrei gleyma hlátr- inum þínum og ég heyri oft í hon- um í huganum. Þú hlóst alltaf að mér ef ég var að reyna að vera fyndin og þú hefur alltaf stutt mig í því sem ég geri. Þú virtist alltaf vera stoltur af mér, sama hvað ég var að gera. Þú sýndir mér og fjölskyldu minni alltaf svo mikinn áhuga og fékkst mig til að finna fyrir stolti. Ég sakna þín svo mikið afi, þú áttir aldrei að fara svona snöggt. Þú áttir að sjá mig útskrifast úr hjúkrunarfræð- inni og fagna áfanganum með mér. En þú munt alltaf lifa í hjarta mínu og þótt þú sést ekki með mér í persónu þá vil ég trúa því að þú sért með mér í anda. Eydís Sigurðardóttir. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Við systkinin þökkum Sigga samfylgdina með okkur í öll þessi ár og biðjum góðan Guð að gefa þér elsku Sæa og fjölskyldunni styrk í sorginni Kolbrún, Svanhvít, Herbert, Jóna, Guðmundur, Óskar og Dagbjört. Svo óvænt og án fyrirvara ert þú fallinn frá kæri vinur og fé- lagi. Við höfum átt samleið allt frá barnæsku, tengdir fjölskyldu- böndum og mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar í æsku. Þú varst eins og segull, til þín í Báru- gerði sótti ég í leik. Það eru ógleymanlegar minningarnar sem streyma fram, ég man bílana sem við smíðuðum og lékum með í malargryfjunni fyrir ofan Báru- gerði, flugvélina sem við smíðuð- um og settum upp á hól, hreyfill- inn var spaði úr vindmyllu og fauk út í loftið í rokinu, hænsn- anetið sem var gluggi á stjórn- klefa „flugvélarinnar“ bjargaði okkur þar. Við smíðuðum báta og kajaka og sigldum á Bæjarsker- stjörninni, man daginn sem Sigurður Hilmar Guðjónsson ✝ Ástkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, amma, afi, systkini, frændi, frænka og vinir, FINNUR EINARSSON og JÓHANNA SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR létust 28. júní. Útför þeirra fer fram frá Lindakirkju fimmtudaginn 9. júlí klukkan 13.. Heiðrún Finnsdóttir Þórður Matthíasson Eysteinn Finnsson Sigrún Júlía Finnsdóttir Sigurður Fannar Finnsson Aþena Katrín Þórðardóttir Matthías Tristan Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.