Morgunblaðið - 06.07.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 06.07.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2020 Reiðtúr Ungir knapar nýttu góða veðrið á sunnanverðu landinu í gær og héldu saman í reiðtúr. Fremstur í flokki var reyndur knapi en honum fylgdi fjöldi ungra og efnilegra reiðmanna. Eggert Vel er þekkt hvernig van- hugsuð innviðaverkefni koma sveitarfélögum og jafnvel heilu ríkjunum í langvarandi fjárhags- vandræði þar sem viðvarandi keðjuverkun leiðir til stigvaxandi útgjalda og hærri skatta. Borg- arlínuhugmynd meirihlutans í Reykjavík hefur flest einkenni slíkra verkefna. Málið hefur verið sett á oddinn oftar en einu sinni í kosningabaráttu. Ekkert útlit var fyrir að borgaryfirvöldum tækist að koma íbúunum í þau vandræði sem verk- efnið mun valda. Svo gerðust þau undur að rík- isstjórnin lét plata sig til að fjármagna aðal- kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík. Kosningar 2018 Á auglýsingaskiltum um alla borg birtust myndir af borgarstjóranum yfir orðunum „Borgarlína“ eða „Miklubraut í stokk“. Á þessu var hamrað á vefsíðum og í auglýsingatímum annarra fjölmiðla. Þessi herferð var skondin í ljósi þess að sömu áform höfðu verið kynnt áð- ur af þeim sem stjórna „skýjaborginni Reykja- vík“. Hún var líka sérkennileg í ljósi þess að borgin hafði verið rekin með viðvarandi halla á góðæristímum, hafði vart fjárhagslega burði til að hirða rusl og reiddi sig á ríkisaðstoð við rekstur þeirra almenningssamgangna sem fyr- ir voru. Ráðherrarnir og sáttmálinn Þá var settur saman svokallaður samgöngu- sáttmáli höfuðborgarsvæðisins. Með sam- komulaginu féllst ríkið á að stofna sérstakt opinbert hlutafélag, nýtt ríki í ríkinu með ótrú- leg völd, sem hefði það hlutverk að gera kosn- ingaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík að veruleika. Í því skyni myndi ríkið leggja til verðmætar eignir, Keldnalandið og jafnvel Ís- landsbanka, og leggja ný gjöld á almenning. Gjöldin voru réttilega skírð tafagjöld en líklega töldu einhverjir auglýsingamenn nafngiftina of lýsandi og tafagjöldin voru endurskírð „flýti- gjöld“. Ríkið tók að sér að standa undir megninu af kostnaðinum (75%) en sveit- arfélög á höfuðborgarsvæðinu áttu að sjá um rest. Stjórnendur Reykjavíkur, sem er komin í miklar fjárhagskröggur eins og fyrr greinir, vissu í hvað stefndi um leið og ríkisstjórnin var lent í netinu. Fulltrúi borgarinnar sendi því ráðherra bréf þar sem hún fór fram á að fá að leggja nýja skatta eða gjöld á íbúana til að standa undir sínum litla hluta (um 15%) af framkvæmdum vegna Borgarlínu. Hafandi gert sér grein fyrir því hver réði för létu borgaryfirvöld sér ekki nægja að biðja um heimildina heldur skrifuðu drög að lagagreinum ásamt greinargerð fyrir ríkisvaldið. Tvöfalt kerfi og framkvæmdastopp Markmiðið með þessu öllu er að koma á tvö- földu kerfi almenningssamgangna á höfuð- borgarsvæðinu. Núverandi kerfi gengur illa. Aðeins um þriðjungur tekna Strætó kemur frá farþegum, restin frá skattgreiðendum. Fyrir áratug var gert undarlegt samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaganna um svokallað framkvæmdastopp. Gegn því að engar meiri- háttar úrbætur yrðu gerðar í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu á kostnað ríkisins skyldi ríkið styrkja almenningssamgöngur um millj- arð á ári. Ríkið borgaði sem sagt fyrir að komið yrði í veg fyrir að ráðist yrði í nauðsynlegar úrbætur. Þetta merkilega samkomulag átti að skila því að nýting almenningssamgangna færi úr 4% í 8%. Nú liggur fyrir að árangurinn varð enginn. Umferðarteppur hafa reyndar aukist til muna vegna framkvæmdastoppsins (sem er árangur í huga sumra) en nýtingarhlutfall strætó er enn 4%. Hvað gerði svo núverandi ríkisstjórn þegar hún sá að verkefnið hafði ekki skilað neinum árangri á áratug? Að sjálfsögðu ákvað hún að framlengja, nema nú til 12 ára. Til viðbótar var svo skrifað undir samkomulag þar sem ríkinu var allranáðarsamlegast heimilað að ráðast í ákveðnar samgönguúrbætur sem höfðu beðið árum eða áratugum saman gegn því að greiða lausnargjald í formi fjármögnunar Borgarlínu. Tilgangur Borgarlínu Hinar langþráðu úrbætur á vegakerfinu og Borgarlínan haldast þó ekki í hendur. Því einn af helstu kostum Borgarlínunnar mun vera sá að þrengja að annarri umferð. Það er gert með því að taka tvær akreinar (eina í hvora átt) af nokkrum helstu samgönguæðum höfuðborg- arsvæðisins. Einnig með því að fækka bíla- stæðum og veita Borgarlínunni forgang á öll- um ljósum og koma þannig í veg fyrir langþráðar endurbætur á stýringu umferðar- ljósa. Gerð er ágæt grein fyrir þessu í skýrslu danska ráðgjafarfyrirtækisins COWI. Fyrir- tækið kom auga á þá augljósu staðreynd að eðli Reykjavíkur og nýtingarhlutfall almennings- samgangna leyfði ekki dýrt verkefni eins og Borgarlínunna. Því var útskýrt að það þyrfti að þrengja að annarri umferð, fækka bílastæðum o.s.frv. til að neyða fólk í strætó. Reyndar not- uðu skýrsluhöfundar ekki orðið „neyða“ en í frumvörpum vegna málsins er ekki dregin dul á að markmið stefnunnar sé „neyslustýring“. Þingið stimplar Eftir samskipti sín við ríkisstjórnina töldu borgaryfirvöld greinilega að afgreiðsla þings- ins væri bara formsatriði því þegar hefur tals- verður fjöldi fólks verið ráðinn til að vinna að verkefninu, ófáar glærukynningar verið birtar, sérstök sýning sett upp í Ráðhúsinu og hönnun sætanna sem eiga að vera í biðskýlunum kynnt. Þótt búið sé að hanna sætin í biðskýlin er allt á huldu um kostnaðinn við verkefnið. Ekki liggur einu sinni fyrir hvernig ríki og borg ætla að haga hinni nýju gjaldtöku til að standa straum af framkvæmdakostnaðinum. Því hefur verið hent fram að framkvæmdin muni kosta um 80 milljarða króna (meira en tvöfalda kostnaðaráætlun Sundabrautar) en þar er byggt á erlendum áætlunum fyrir slík verkefni sem nánast undantekningarlaust hafa farið úr böndunum og jafnvel reynst fræg vandræða- verkefni. Dettur einhverjum í hug að í Reykja- vík muni kostnaðaráætlun standast betur? Rekstraráætlunin er týnd Undarlegast af öllu er þó að ekki skuli liggja fyrir rekstraráætlun fyrir þetta risastóra verkefni. Hvernig getur það gerst að ríkið samþykki að selja verðmætar eignir almenn- ings og leggja á nýja skatta til að fjármagna verkefni sem enginn virðist hafa hugmynd um hvað muni kosta að reka? Þó vitum við að til stendur að reka tvöfalt strætisvagnakerfi. Hefðbundnir vagnar varða reknir áfram og kostnaðurinn við þá, eina og sér, mun aukast þegar Borgarlínan bætist við (um a.m.k. tvo milljarða á ári) en kostnaðurinn við Borgarlín- una sjálfa bætist þar ofan á. Dettur ein- hverjum í hug að borgaryfirvöld muni ekki láta ríkið og skattgreiðendur bera rekstrarkostn- aðinn til framtíðar? Áformin lýsa tilraun til að ráðast í „sam- félagsverkfræði“ án tillits til þarfa eða vilja borgarbúa. Afleiðingin verður sú að íbúar höf- uðborgarsvæðisins munu þurfa að borga meira fyrir að sitja lengur fastir í umferðinni. Málinu er ekki lokið Við þinglok tókst þingmönnum Miðflokks- ins, með erfiðismunum, að koma inn nokkrum fyrirvörum við verkefnið. Þeir varða m.a. kostnað, tryggingar varðandi Sundabraut og aðrar samgöngubætur, skipulagsmál Keldna- landsins, nýtt sjúkrahús og hömlur á hið nýja opinbera hlutafélag. Fyrst og fremst eru breytingarnar til þess fallnar að styrkja stöðu stjórnvalda og kjós- enda framtíðarinnar og auka líkurnar á að hægt verði að losna úr þessu óheillaverkefni, greiða fyrir umferð og reka almennings- samgöngur sem virka. Það mun hins vegar ekki gerast af sjálfu sér. Saga málsins og ann- arra sambærilegra til þessa sýnir að erfitt muni reynast að stoppa kerfið þegar það er bú- ið að leggja línuna. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson »Hvernig getur það gerst að ríkið samþykki að selja verðmætar eignir almennings og leggja á nýja skatta til að fjármagna verkefni sem eng- inn virðist hafa hugmynd um hvað muni kosta að reka? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Nýtt eilífðarvandamamál

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.