Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Nýjar umbúðir
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Hið stóra samhengi sögunnar, um-
hverfismál, traust fólks á meðal og
samskipti á viðsjárverðum tímum
kórónuveirunnar bar á góma í ræð-
um á Skáholtshátíð sem haldin var í
gær. Kristján Björnsson vígslu-
biskup og Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra fluttu hátíðarræður
dagsins, en fjölmenni var í Skálholti
í gær. Hátíðarmessa hófst á því að
prósessía kórs og hempuklædds
kennifólks gekk frá skólahúsi í
kirkju. Fremstar í flokki voru þær
María Rut Baldursdóttir, prestur á
Hornafirði, sem hér sést til vinstri,
og Aldís Rut Gísladóttir, prestur við
Langholtskirkju í Reykjavík.
Hinar stóru áskoranir samtímans
eru loftslagváin og tæknibylting þar
sem við færumst á ógnahraða inn í
nýjan heim og vélar taka ákvarðanir
fyrir okkur, stundum án þess að við
vitum það sjálf, sagði Katrín Jakobs-
dóttir í ávarpi sínu. Vék hún einnig
að vísindum og trausti á tímum
COVID-19 og sagði að jöfnuður og
traust ætti að ríkja á meðal fólks og
þar yrðu stjórnmálamenn að leggja
sitt af mörkum. sbs@mbl.is
Stóru mál samtímans áberandi í ræðum á Skálholtshátíð í gær
Prósessían
til kirkju
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Daginn eftir að öllum flugliðum
Icelandair Group var sagt upp hittust
samninganefndir Flugfreyjufélags
Íslands og Icelandair á fundi sátta-
semjara á laugardag þar sem úrslita-
tilraun var gerð til þess að skrifa und-
ir nýjan kjarasamning.
Samningurinn var undirritaður að-
faranótt sunnudags. Hann gildir út
september 2025 og byggir á sömu
forsendum og fyrri samningur sem
felldur var í atkvæðagreiðslu fé-
lagsmanna 8. júlí. Gerðar voru breyt-
ingar á tveimur atriðum sem hingað
til hafa verið ásteytingarsteinar. Er
þar um að ræða ákvæði um aukafrí-
dag eldri flugfreyja og svokallaða sex
daga reglu.
Í samtali við mbl.is sagðist Guð-
laug Líney Jóhannsdóttir, formaður
Flugfreyjufélagsins, vera bjartsýn á
að flugfreyjur myndu samþykkja
nýundirritaðan kjarasamning.
Atkvæðagreiðsla hefst á næstunni
og lýkur henni 27. júlí.
„Við erum mjög sátt og göngum
frá borði bjartsýn á að geta lagt
þetta fyrir félagsmenn okkar,“ sagði
Guðlaug og bætti því við að félagið
væri að mæta hagræðingarkröfu
flugfélagsins og styðja það í verki í
þeirri erfiðu stöðu sem það væri í.
„Flugfreyjufélagið er ekki með
miklar kröfur í þessum samningi.
Við erum að taka þátt í að aðstoða
félagið á þessum erfiðum tímum,“
sagði Guðlaug eftir undirritun
samnings.
Að sögn Boga Nils Bogasonar,
forstjóra Icelandair Group, er nýr
kjarasamningur í takt við það sem
félagið stefndi að. „Það voru
ákveðnir liðir sem voru skýrðir bet-
ur í þessum samningi. Hann byggir
að langmestu leyti á fyrri samningi
en auk þess kemur til viðbótarhag-
ræðing fyrir fyrirtækið,“ sagði Bogi
við mbl.is í fyrrinótt.
Spurður hvort félaginu hafi verið
bjargað með samningnum sagði
Bogi: „Þetta er mikilvægur þáttur í
þessari vegferð sem við erum í, að
koma félaginu í gegnum þennan
storm og klára þetta verkefni sem
við erum í, mjög mikilvægt, já.“
„Risastór orð látin falla“
Talvert hefur verið rætt um þær
uppsagnir sem Icelandair réðst í á
föstudag. Spurður hvers vegna ráð-
ist hafi verið í uppsagnir á þessum
tímapunkti í ljósi þess að kostur var
á að semja sagði Bogi: „Svona gerist
þetta bara. [Á föstudag] var ekki út-
lit fyrir að það væri möguleiki að
semja. Það hafði slitnað upp úr við-
ræðum en síðan fara aðilar að nálg-
ast aftur og svo þetta endar þetta
svona,“ sagði Bogi.
Að sögn Drífu Snædal, forseta
ASÍ, voru „risastór orð látin falla á
föstudaginn, um að sniðganga við-
semjendur sína, og það er mikið
áhyggjuefni ef það á að fara að beita
slíkum kröfum á vinnumarkaði.“
„Við vorum líka tilbúin að bregð-
ast mjög harkalega við, enda var
fullt tilefni til þess,“ bætti hún við.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir deiluna hafa verið
komna á mjög óheppilegan stað og í
harðan hnút, en hún átti í samskipt-
um við Aðalstein Leifsson ríkissátta-
semjara í tengslum við fund félag-
anna tveggja á laugardagskvöld.
„Þessar lyktir eru auðvitað
ánægjulegar enda er það þannig að
svona deilur á að leysa við samn-
ingsborðið. Þess vegna var mjög
mikilvægt að deilendur brugðust við
því þegar ríkissáttasemjari boðaði
þau til fundar í gær og gerðu þessa
úrslitatilraun,“ sagði Katrín.
Mættu hagræðingarkröfu Icelandair
Morgunblaðið/Snorri Másson
Kjarasamningar Bogi Nils Bogason gat andað léttar um helgina eftir að
samningar Icelandair Group við Flugfreyjufélag Íslands voru undirritaðir.
Guðlaug Líney segist bjartsýn á að flugfreyjur samþykki nýjan samning Bogi segir viðbótarhag-
ræðingu fyrir Icelandair hafa náðst Deilan var komin á óheppilegan stað segir forsætisráðherra
Andrés Magnús-
son hefur verið
ráðinn fulltrúi rit-
stjóra við
Morgunblaðið frá
og með deginum í
dag.
Andrés hóf
störf í blaða-
mennsku hjá
Morgunblaðinu
árið 1986 en hélt
síðar til Pressunnar, Eintaks og síð-
ar DV, auk þess sem hann var leið-
beinandi hjá Prenttæknistofnun.
Auk hefðbundinnar blaðamennsku
fékk hann snemma áhuga á tölvu- og
tæknihlið útgáfustarfsemi og var
frumkvöðull í tölvugrafík og skjá-
umbroti fjölmiðla. Hann var einn
stofnenda Kjarnorku, eins af fyrstu
veffyrirtækjum á Íslandi, en hóf aft-
ur störf á Morgunblaðinu árið 1996 á
nýstofnaðri netdeild Morgunblaðs-
ins og tók þátt í undirbúningi og
uppsetningu fréttavefjar Morgun-
blaðsins, mbl.is, sem hefur verið
mest sótti fréttavefur landsins frá
fyrsta degi. Um aldamót réðist hann
til Íslenskrar erfðagreiningar og
fékkst þar við vefþróun, m.a. við
gerð Íslendingabókar. Hann sneri
aftur í blaðamennsku árið 2005 við
stofnun Blaðsins en réðist til Við-
skiptablaðsins 2007, þar sem hann
hefur verið við störf síðan, nú síðast
sem ritstjórnarfulltrúi, en þar hefur
hann m.a. ritað vikulega fjölmiðla-
gagnrýni.
Andrés hefur verið búsettur á
Englandi undanfarinn áratug en
flutti aftur til Íslands í upphafi mán-
aðar. Hann er 55 ára gamall, sonur
Magnúsar Þórðarsonar og Áslaugar
Ragnars, sem bæði voru blaðamenn
á Morgunblaðinu, en eru nú látin.
Hann er kvæntur Auðnu Hödd
Jónatansdóttur blaðamanni og eiga
þau sex börn.
Morgunblaðið býður hann vel-
kominn til starfa enn á ný.
Andrés Magnússon
ráðinn fulltrúi ritstjóra
Hóf störf í blaðamennsku hjá Morgunblaðinu árið 1986
Andrés
Magnússon
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.