Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 10

Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Flest í náttúrunni leitar jafn- vægis og óværur aðlagast að- stæðum. Lifur sem nú leita á birk- ið eru vissulega hvimleiðar, hægja á vexti og skaða ásýnd skóganna. En í ljósi reynslu okkar af öðrum plágum tel ég ástæðu- laust að hafa miklar áhyggjur af þessum óvelkomna gesti, sem sennilegt er að missi þróttinn þegar fram líða stundir,“ segir Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri hjá Skógræktinni. Síðustu sumur hefur birki- kemba gerst aðsópsmikil á birki- trjám, fyrst á sunnanverðu land- inu og nú víðar um landið. Fyrst varð lirfu þessarar vart í Hvera- gerði árið 2005; en þetta eru agnarsmá fiðrildi sem verpa í laufblöðum og sækja sér í þau næringu. Af þeim sökum verða blöðin brún og uppétin að inn- anverðu. Birkiþéla sem hagar sé með líku lagi og birkikemban, þó síðar á sumrin, nam svo land fyrir örfáum árum og er ekki síður til ama og skaða, að sögn Hreins. Lifrur halda lífi yfir vetur „Mér finnst sennilegast að þessar lífverur hafi hingað komið með innfluttum plöntum, trjákurli eða í gróðurmold. Birkikemban, þélan og aðrar maðkaplágur hafa eflst síðustu árin sem ég tel meðal annars stafa af loftslagsbreyt- ingum. Sumrin eru hlý og veturn- ir ekki jafn kaldir og áður var. Lirfurnar ná því frekar en ella að halda lífi yfir veturinn,“ segir Hreinn og heldur áfram: „Auðvitað er engin leið að segja neitt til um framhaldið. Mögulegt er að náttúrulegir óvin- ir úr lífríkinu komi fram og hægi á útbreiðslu og fjölda maðka. Fyr- ir rúmum áratug gerðu ryð- sveppir usla í ösp og gjávíði, sem víða var í skjólbeltum. Víða var gripið til þess að fjarlægja víðinn, en þau belti sem eftir voru losn- uðu við sveppinn fyrir löngu og dafna vel. Við skulum því ekki flana að neinu. En vissulega er birkið ljótt á að líta víða núna, svo sem í nágrenni höfuðborgarinnar og víða á suðvesturhorninu, auk þess að ummerki um kembur eru farin að sjást víða svo sem í Þjórs- árdal, Þórsmörk, Borgarfirði og í Kjarnaskógi við Akureyri. Sér- fræðingar Skógræktarinnar á Mógilsá munu fylgjast vel með framvindunni og lirfurnar og líf- ferlar þeirra eru til rannsóknar.“ Afurðir og tekjur aukast Líðandi sumar hefur verið hlýtt og gróskumikið. Á Suður- landi, þar sem Hreinn hefur að- setur, eru á annað hundrað bænd- ur að taka þátt í bændaskógrækt sem í nokkrum mæli er nú farinn að skila afurðum og þar með tekjum. Þær munu aukast á kom- andi árum og þar með verður skógrækt orðinn gildur þáttur í landbúnaði og þá er allt landið undir. Sömuleiðis eru talsverðar nytjar í þjóðskógunum svo sem í Haukadal í Biskupstungum. Grisj- unarviður þaðan er eftirsóttur bæði sem kurl í brennsluofna stóriðjunnar sem og til sögunar í timburvinnslu. Ónefnt er þá gildi skógræktar við kolefnisbindingu sem er mótleikur við hlýnun and- rúmsloftsins. „Verkefnin á sviði skógrækt- ar og landgræðslu sem nú er unn- ið hér á landi eru spennandi og skipta framtíðina miklu,“ segir Hreinn. Í því samhengi tiltekur hann Hekluskóga, en þeir munu spanna um 1% af flatarmáli lands- ins eða 100 þúsund hektara. Und- ir eru svæði frá Hellu á Rangár- völlum, Landsveit, í Þjórsárdal og allt inn fyrir Sigöldu. Í sumar hef- ur mikið verið unnið á Árskóga- svæði austan Sultartangavirkjun- ar. Stefnt er að því að í framtíðinni nái birkiskógar inn fyrir Sigöldu, svæði sem í dag eru auðnin ein enda á áhrifasvæði Heklu, hins máttuga eldfjalls á Suðurlandi. Galdur í lundum „Galdurinn við Hekluskóga er að gróðursetja birki í lundi. Birkið byrjar að mynda frærekla eftir 5-10 ár og sáir sér síðan um nærliggjandi svæði. Núna er trjá- gróður í sumum lundum kominn vel á legg og þar sjáum við að- ferðafræðina virka,“ segir Hreinn. „Svo gróðursetjum við líka eins og enginn sé morg- undagurinn, í ár um 600 þúsund plöntur og verðum að langt fram á haust. Þarna vinnur líka vel með okkur að uppgræðsla með áburði eða lúpínu hefur víða stöðvað sand- og vikurfok og bundið og byggt upp jarðveg svo annar gróður nær þar að skjóta rótum. Þetta er mikilvæg reynsla sem nýtist í sambærilegum skóg- ræktarverkefnum sem eru fram- undan, svo sem við Þorlákshöfn og á Hólasandi norður í Þing- eyjarsýslum.“ Öflugt starf hjá skógræktarfólki en lirfuplága í birkinu setur strik í reikninginn Sumarið hlýtt og gróskumikið  Hreinn Óskarsson er frá Sel- fossi og fæddist þar árið 1971. Stúdent frá F.Su. og auk kandí- datsprófi í skógfræði frá Land- búnaðarháskólanum í Kaup- mannahöfn árið 1997 og doktorsprófi í skógfræði frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2011 með sérstakri áherslu á næringarfræði trjáplantna.  Hefur unnið að skógrækt og skyldum verkefnum síðan á unglingsárum. Var um langt árabil skógarvörður Skógrækt- arinnar á Suðurlandi og verk- efnisstjóri við ræktun Heklu- skóga. Er nú sviðsstjóri þjóðskóga á landsvísu hjá Skógræktinni. Hver er hann? Ljósmynd/Brynja Hrafnkelsdóttir Birkikemba Laufin skipta lit af völdum lirfunnar, þessarar óværu sem hefur orðið vart við í birkiskógum fyrst sunnanlands og nú æ víðar. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ræktunarmaður Uppgræðsla með áburði eða lúpínu hefur víða stöðvað sand- og vikurfok og bundið jarðveginn, segir Hreinn í viðtalinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fljótshlíð Víða á Suðurlandi hafa verið ræktaðir upp stórir og afar fal- legir skógar, svo sem í Fljótshlíðinni í landi Tungu og Tumastaða. Áskell Þórisson, fyrrverandi rit- stjóri og blaðamaður, verður með ljósmyndasýningu í Gallerý Grá- steini, Skólavörðustíg 4, í Reykjavík, frá 23. júlí til 3. ágúst. Sýningin er opin daglega frá 11 til 18. Árum saman hefur Áskell einbeitt sér að því að mynda það smáa og lit- ríka í náttúrunni og styrkir síðan liti og form í myndvinnsluforritum. Myndirnar á sýningunni eru af ýms- um stærðum. Þær eru prentaðar á striga og þandar á blindramma. Sýning Ljósmyndir Áskels Þóris- sonar verða í Gallerý Grásteini. Hið smáa og litríka í náttúrunni  Áskell Þórisson sýnir myndir sínar Sýkla- og veirufræðideild Landspít- alans sá um greiningu allra sýna sem tekin voru við landamæri Ís- lands í gær og hefur nú tekið við því hlutverki sem Íslensk erfða- greining hefur haft með höndum hingað til. ÍE, með forstjórann Kára Stefánsson í broddi fylkingar, tilkynnti með viku fyrirvara í upp- hafi mánaðar að fyrirtækið hygðist hætta að greina sýni á landamær- um Íslands 14. júlí. Sú áætlun tafð- ist um fimm daga en er nú komin í gagnið. Að sögn Karls G. Krist- inssonar, yfirlæknis á Sýkla- og veirufræðideild, gekk greining sýna vel í gær. Segir hann afkastaget- una vera um 2.000 sýni á dag og að hún hafi verið aukin með því að setja fimm sýni saman í safnsýni og þau greind á þann hátt. Þörf hafi verið á því í ljósi þess að skim- unaraðgerðir á Keflavíkurflugvelli hafi verið komnar að þolmörkum. Þó sé von á nýju einangrunartæki um mánaðamótin sem eigi að auka afkastagetuna enn frekar. Landspít- alinn tekinn við af ÍE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.