Morgunblaðið - 20.07.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.07.2020, Qupperneq 11
Morgunblaðið/sisi Grjóthrúgurnar sem sturtað var á grasbletti við Eiðsgranda fyrr í sumar hafa að vonum vakið mikla athygli. Formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur upp- lýsti í viðtali hér í blaðinu að verið væri að búa til eins konar „strand- garð“ og myndu grjóthrúgurnar gegna lykilhlutverki þegar kæmi að því að rækta upp strandplöntur á borð við melgresi, sæhvönn, fjörukál, blálilju og baldursbrá. Þá myndu hrúgurnar skapa svæði sem krefðust minni umhirðu og sem þyrftu ekki grasslátt. Svo virðist sem náttúran hafi tekið fram fyrir hendur borgaryfirvalda því sjálfs- prottið gras hefur fest rætur í grjótinu eins og sjá má. Áður hefur Morgunblaðið greint frá því að veðurfræðingur hafi áhyggjur af því að hrúgurnar fjúki í vetur. Ítrekað gerir vestanátt á svæðinu þar sem hrúgurnar standa við Eiðs- granda. Þar er vindur oft um og yf- ir 20 m/s og getur grjót farið af stað við slík skilyrði. Gras skýt- ur rótum á nýjasta verkinu FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Settir voru sendar á fimm helsingja í Skaftafellssýslum við fuglamerk- ingar um miðjan mánuðinn. Er þetta í fyrsta skipti sem GSM/GPS- sendar eru settir á helsingja hér á landi. Hægt verður að fylgjast ná- kvæmlega með ferðum fuglanna, meðal annars hvort þeir fara mikið inn á ræktarlönd bænda. Helsingjar byrjuðu að verpa hér á landi fyrir aldamót. Þeir voru nú merktir í fjórða sinn á Suður- og Suðausturlandi í samvinnu Verkís og Náttúrustofu Suðausturlands, undir stjórn Arnórs Þóris Sigfús- sonar, dýravistfræðings hjá Verkís. Merktir voru 360 fuglar á þremur dögum. Fyrst 160 helsingjar við Hólmsá á Álftaversafrétti í Vestur- Skaftafellssýslu og síðan 200 fuglar á hefðbundnum slóðum helsingja- merkinganna við Jökulsárlón og víðar á Breiðamerkursandi. Gáfu sendi í afmælisgjöf Fylgst hefur verið með ferðum heiðagæsa og grágæsa með því að festa senda á þær. Helsingjar eru minni fuglar, en Arnór segir að nú hafi fengist minni sendar sem hægt er að nota á þá. Senda þeir upplýs- ingar í gegnum símkerfi tvisvar á sólarhring. GSM-sendarnir eru nokkuð dýrir, kosta um 270 þúsund hver, en Arnór og náttúrustofan hafa fengið fyrirtæki og einstak- linga til að styrkja kaup á þeim. Meðal annars styrktu Sveitarfélagið Hornafjörður og Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu kaup á sitt- hvorum sendinum. Þá má nefna að vinir veiðimannsins og fuglaáhuga- mannsins Guðmundar Tryggva Sig- urðssonar söfnuðu fyrir einum sendi sem þeir gáfu í nafni hans í tilefni af sextugsafmæli hans. Gassinn sem ber sendinn fékk að sjálfsögðu nafn hans, heitir Guðmundur Tryggvi. Arnór Þórir segir að hægt verði að fylgjast með hvernig helsingjar nýta beitiland og hvort þeir fari mikið inn á ræktarlönd bænda. „Komið hefur í ljós að heiðagæs og grágæs hegða sér á ólíkan hátt. Grágæsin heldur sig mikið á sama svæði en heiðagæsin fer víðar. Verður gaman að sjá hvernig hels- ingjar hegða sér,“ segir Arnór. Helsingjar eru enn í sárum og halda sig á svipuðum slóðum en Arnór á von á því að þeir fari að hreyfa sig í byrjun ágúst. Fylgst með Guðmundi Tryggva  Sendar settir á helsingja í Skaftafellssýslum Ljósmyndir/Arnór Þórir Sigfússon Nafnar Guðmundur Tryggvi Sigurðsson veiðimaður með nafna sinn, Guðmund Tryggva, sem sleppt var með sendi á Álftaversafrétti. Merkingar Náttúrufræðingar og sjálfboðaliðar smala helsingjum í sárum inn í netgirðingu til þess að hægt sé að taka fuglana og merkja. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Von er á ýmsum káltegundum og nýuppteknum íslenskum gulrótum í verslanir nú í vikunni. Bætist kálið við nýjar íslenskar kartöflur sem þegar hafa rutt sér til rúms í versl- unum í sumar. Sölufélag garðyrkjumanna hefur verið að fá nýskorið kál síðustu daga en í litlu magni, eiginlega sýnishorn, að sögn Guðna H. Kristinssonar, framkvæmdastjóra afurðasviðs SFG. „Það gerist mikið í þessu í vikunni og þeirri næstu og vonandi verður allt komið á fullt fyrstu vikuna í ágúst,“ segir Guðni. Hann á við uppskeru af spergil- káli, blómkáli, hvítkáli og kínakáli. Þá reiknar hann með að fá ný- uppteknar gulrætur á næstunni. Ágæt skilyrði hafa verið til úti- ræktunar á grænmeti í sumar og er það að koma á markað á svip- uðum tíma og vant er. Grænmetis- dagatalið stenst því nokkurn veg- inn þetta árið. Nokkuð er síðan fyrstu íslensku kartöflurnar komu á markað og hefur SFG sótt kart- öflur til bænda á hverjum virkum degi í rúma viku. Það eru þó aðeins fljótsprottin afbrigði enn sem kom- ið er, til dæmis premier. Guðni á von á því að fá gullauga og rauðar íslenskar eftir þessa viku og jafnvel fyrr. Eru að bæta við sig Af grænmeti sem ræktað er í gróðurhúsum er það að frétta að nú berst töluvert af tómötum á markað og nóg af gúrkum og nokk- uð af papriku en megnið af papriku sem landsmenn neyta er þó flutt inn. Nokkrir garðyrkjubændur eru að stækka gróðurhús sín svo að von er á aukinni framleiðslu í vetur eða á næsta ári. Guðni segir að sár- lega hafi vantað tómata á mark- aðinn. Ekki sé sama vöntun á gúrk- um en nokkuð hefur verið flutt út af þeim og býst Guðni við því að það muni aukast. Þá er svigrúm til að auka framleiðslu á papriku. Íslenskt blómkál og hvítkál á markað Blómkál Garðyrkjubændur eru nú að hefja uppskerustörf.  Grænmetisdagatalið hjá garðyrkjubændum stenst nokkurn veginn í ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.