Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 12

Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þau tíðindi komu eins og köld gusa inn í þýska fjármálageirann um miðj- an júní að 1,9 milljarða evra vantaði í efnahagsreikning fjártæknifyrir- tækisins Wirecard. Þetta unga félag hafði náð miklum hæðum og varð á endanum svo verðmætt að árið 2018 var það tekið inn í DAX-30 vísitöluna í stað Commerzbank. Áður en upp komst um meiriháttar misferli innan félagsins var markaðsvirði Wirecard hærra en virði Deutsche Bank, og skrifaðist það ekki síst á ævintýraleg- an vöxt í Asíu sem reyndist síðan byggja að stórum hluta á sýndarvið- skiptum. Svindlið hjá Wirecard hvíldi að töluverðu leyti á fölsuðum gögnum sem áttu að sýna himinháar innistæð- ur hjá bönkum á Filippseyjum. Þá hafa endurskoðendur fyrirtækisins verið harðlega gagnrýndir fyrir að hafa ekki komist miklu fyrr að hinu sanna, auk þess að stjórnvöld þykja hafa sofið á verðinum enda liðin fimm ár síðan Financial Times fjallaði um að eitthvað væri bogið við viðskipta- módel og bókhaldsaðferðir fyrir- tækisins, en tveimur árum síðar birti þýska viðskiptatímaritið Manager Magazin grein í svipuðum dúr. Rannsókn stendur enn yfir og mörgum spurningum er ósvarað. Má þó reikna með að Wirecard-hneykslið muni hafa áhrif á þýska fjármálaeftir- litsgeirann og mögulega valda breyt- ingum sem nái til allrar álfunnar. Mátti snemma heyra raddir sem ótt- uðust að fall Wirecard kynni meðal annars að knýja stjórnvöld í Evrópu til að draga úr því svigrúmi sem fjár- tæknifyrirtækjum hefur verið veitt á undanförnum árum til að auðvelda þeim að þróa nýjar lausnir, laus við margar þær íþyngjandi reglur sem hefðbundin fjármálafyrirtæki þurfa að fylgja. Að ganga of langt veldur líka tjóni Gunnlaugur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Fjártækniklasans, seg- ir að gæta þurfi að því að stjórnvöld bregðist ekki of harkalega við. Frá sjónarhóli embættismanna og kjör- inna fulltrúa geti verið æskilegast að ganga of langt frekar en of skammt. „Enda myndu þau líta mjög illa út ef annað sambærilegt mál kæmi upp þrátt fyrir breytingar á regluverkinu. Að ganga of langt væri samt alveg jafn alvarleg mistök og að setja of vægar reglur, þó að tjónið komi ekki í ljós með sama hætti.“ Gunnlaugur minnir jafnframt á að það sem klikkaði í tilviki Wirecard hafi ekki haft neitt með fjártækni að gera heldur hafi endurskoðendurnir brugðist skyldum sínum og óprúttnir aðilar villt um fyrir þeim. Fjártækni- lausnir Wirecard voru ekki notaðar til að féfletta nokkurn mann heldur bendir flest til að hefðbundið skjala- fals og viðskiptaflækjur hafi verið helstu verkfæri höfuðpauranna í svindlinu: „Endurskoðendurnir brugðust þegar kom að mjög veigamiklum þáttum sem er samt ekkert mál að leysa með fjártækni. Það sem ætti að skoða er ekki hvort fjártæknifyrir- tækjum hafi verið veitt of mikið svig- rúm heldur mun frekar hvernig endurskoðendur geti bætt störf sín og hvernig megi nota fjártæknilausnir til að auðvelda störf þeirra, auka gagnsæi og gera alls kyns fjármála- starfsemi öruggari,“ segir hann. „Og jafnvel ef útkoman verður sú að stjórnvöld hér og þar leggja nýjar kvaðir á fjártæknifyrirtæki á stöðug framþróun sér stað og greinin er vís til að finna góðar lausnir þrátt fyrir slíkar hindranir.“ Bálkakeðja gæti leyst vandann Sveinn Valfells, framkvæmdastjóri Monerium, tekur í sama streng og segir Wirecard-hneykslið einkum snúa að því að endurskoðendur og eft- irlitsaðilar í Þýskalandi hafi brugðist seint við umfjöllun og ábendingum um meint brot Wirecard. Því miður komi mál af svipuðum toga upp af og til, s.s. Enron-hneykslið og fjárfest- ingasvindl Bernie Madoff, og gefi til- efni til að skoða betri leiðir til að gera hlutina. „Ég vil benda á bálkakeðju- tæknina í því sambandi því hún býður upp á mikið gagnsæi og gerir mörg- um aðilum kleift að halda utan um upplýsingarnar í sameiginlegum dreifðum gagnagrunni. Með þess háttar kerfi væri mun erfiðara að skálda í eyðurnar eins og Wirecard virðist hafa gert,“ segir hann. „Bálka- keðjulausn sem heldur utan um fjár- hag fyrirtækja eins og Wirecard og getur veitt ólíkum aðilum aðgang að upplýsingum fjármálafyrirtækja, og t.d. gætu almenningur og fjárfestar séð reksturinn í megindráttum á með- an eftirlitsaðilar og endurskoðendur gætu fengið að kafa dýpra.“ Sveinn á ekki von á því að brugðist verði við falli Wirecard með því að þrengja verulega að fjártæknigeiran- um en hann segir að sama skapi brýnt að vönduð og opin umræða fari fram um að betrumbæta jafnvægi á milli eftirlits, öryggis og gagnsæis, og geti fjártæknilausnir eins og bálkakeðjur nýst í því samhengi. Tækifæri til að efla fjártækni frekar en íþyngja greininni AFP Ógagnsæi Það sem klikkaði hjá Wirecard sneri að hefðbundinni starfsemi banka og endurskoðunarfyrirtækja.  Fall Wirecard gæti leitt til þess að svigrúm fjártæknifyrirtækja minnki  Meintar viðskiptabrellur fyrirtækisins höfðu þó lítið með fjártækni að gera Gunnlaugur Jónsson Sveinn Valfells 20. júlí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 140.27 Sterlingspund 175.95 Kanadadalur 103.29 Dönsk króna 21.517 Norsk króna 15.115 Sænsk króna 15.509 Svissn. franki 149.02 Japanskt jen 1.3092 SDR 194.75 Evra 160.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.0859 Hrávöruverð Gull 1802.9 ($/únsa) Ál 1651.0 ($/tonn) LME Hráolía 43.4 ($/fatið) Brent ● Bandaríska af- þreyingarveldið Disney hefur ákveðið að draga úr auglýsinga- kaupum hjá Face- book og bætist þannig við stóran hóp heimsþekktra fyrirtækja sem vilja þrýsta á samfélagsmiðilinn vinsæla að leggja harðar að sér við að hamla út- breiðslu hatursorðræðu og annars óæskilegs efnis. Wall Street Journal greinir frá þessu og segir útreikninga markaðsrannsóknafyrirtækisins Pathmatics benda til að Disney hafi ver- ið stærsti kaupandi auglýsinga á Fa- cebook á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á síðasta ári var Disney annar stærsti viðskiptavinur Facebook á eftir Home Depot. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa dregið úr viðskiptum sínum við Face- book í mótmælaskyni má nefna Uni- lever, Starbucks, Verizon og bílafram- leiðandann Ford. Disney tilkynnti ekki formlega um þvingunaraðgerðir sínar heldur breytti auglýsingakaupum sín- um svo lítið bæri á. ai@mbl.is Disney þrýstir á Facebook Mikki Mús ● Gjá virðist hafa myndast á milli „sparsamari“ að- ildarríkja ESB og þeirra sem væru líklegri til að njóta góðs af fyrirhug- uðum aðgerðum til að örva hagkerfi álfunnar. Fundur leiðtoga ríkjanna hófst á föstudag og stóð enn yfir á sunnudag vegna deilna um hvernig útfæra skyldi örv- unarpakkann og hve stór hann mætti vera. FT segir viðræðurnar líka hafa strandað á þeirri tillögu Hollendinga að til að geta notið góðs af örvunar- aðgerðum þurfi ríki að geta sýnt að þau virði lög og reglur. Virðist Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverja- lands, hafa tekið þetta til sín og sakar hann hinn hollenska starfsbróður sinn, Mark Rutte, um að leggja fæð á sig per- sónulega og á Ungverjaland. Hafa ESB-ríkin skipst í ólíkar fylk- ingar þar sem Austurríki, Svíþjóð, Dan- mörk og Holland standa saman og vilja útdeila lægri upphæð, en Ítalía, Spánn og bandamenn þeirra vilja rausnarlegar aðgerðir. Þá hefur Ungverjaland stuðn- ing Póllands í deilunni við Holland. Fréttaskýrendur segja fund helgar- innar geta markað kaflaskil í sögu evr- ópskrar samvinnu og að það verði talið veikleikamerki fyrir álfuna ef ekki takist að finna farsæla lausn. Þær tillögur sem leiðtogar ESB- ríkjanna ræddu um helgina eru afrakst- ur margra mánaða vinnu sérfræðinga í Brussel og myndu m.a. fela í sér þá ný- breytni að leyfa ESB að taka risaupp- hæðir að láni á mörkuðum. Einnig eru til umræðu drög að næstu langtíma- fjárhagsáætlun ESB. ai@mbl.is Leiðtogar Evrópu deila um örvunarpakka Patt Merkel hefur reynt að finna lausn. STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.