Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 13
Karlmaður sem handtekinn var á
laugardag og yfirheyrður vegna elds
sem kviknaði í dómkirkju í borginni
Nantes í Frakklandi um nóttina var
látinn laus í gærkvöldi.
Maðurinn starfaði sem sjálfboða-
liði í kirkjunni og sá meðal annars
um að ganga frá og loka henni á
föstudagskvöld. Saksóknarar stað-
festu í gærkvöldi að maðurinn hefði
verið látinn laus og sætti ekki ákæru.
Tilkynning um eld í dómkirkjunni
barst skömmu fyrir klukkan átta á
laugardagsmorgun að frönskum
tíma. Slökkviliðsmönnum tókst að
koma í veg fyrir stórtjón en orgel
kirkjunnar, sem er frá 17. öld, er
gerónýtt. Grunur leikur á að kveikt
hafi verið í kirkjunni því eldur logaði
á þremur stöðum í byggingunni þeg-
ar slökkviliðsmenn komu á vettvang.
Byrjað var að byggja dómkirkjuna
í Nantes á fimmtándu öld en hún var
ekki fullbyggð fyrr en um aldamótin
1900. Hún hefur tvívegis áður
skemmst í eldi, síðast árið 1972 og
tók 13 ár að gera við skemmdirnar
sem þá urðu.
Starfsmaður dóm-
kirkju látinn laus
Grunur um íkveikju í Nantes í Frakklandi
AFP
Slökkvistarf Slökkviliðsmenn við dómkirkjuna í Nantes á laugardag.
50
70
90
Fólksfjöldi jarðarinnar gæti náð 8,8 milljörðum árið 2100 samkvæmt spám
Lífslíkur, í árum
Frjósemistíðni,
fjöldi barna á hverja konu
1990
3,12 2,37 1,87 1,66
2017 2050 2100
1990 2017 2050 2100
Hvernig fólksfjöldinn gæti breyst, talið í milljónum manna
Fólksfjöldaspár
Heimild: The Lancet
Norður-Afríka
og Mið-Austurlönd
Afríka
sunnan Sahara
Asía
Rómanska Ameríka
og Karíbahaf
Eyjaálfa
Evrópa
Bandaríkin
og Kanada 3.077,6
82,9
80,9
79
Konur
Karlar
76,5
7,64 milljarðar
8,79 milljarðar
árið 2100
árið 2017
Heimurinn
3.071,2
978,2
560,5
641,7
379,9
1.026
Heimurinn
í heild
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ný rannsókn, sem birtist í hinu virta
læknatímariti The Lancet á miðviku-
daginn, vakti töluverða athygli, en
þar var spáð að 8,8 milljarðar manna
myndu búa á jörðinni árið 2100, eða
um tveimur milljörðum færra en nú-
verandi spár Sameinuðu þjóðanna
gera ráð fyrir.
Í rannsókn The Lancet, sem náði
til nær allra ríkja heims, var mann-
fjöldaþróun næstu áratuga skoðuð út
frá þáttum eins og frjósemistíðni og
aldursdreifingu mannfjöldans, en í
mörgum ríkjum er meðalaldur fólks
að verða sífellt hærri.
Á sama tíma gerir spáin ráð fyrir
að fæðingartíðnin í 183 af 195 ríkjum
heims muni ekki vera næg til þess að
viðhalda mannfjölda ríkjanna án til-
komu innflytjenda. Þar af verða um
tuttugu ríki, á borð við Japan, Taí-
land, Spán, Ítalíu, Portúgal, Suður-
Kóreu og Pólland, þar sem mann-
fjöldinn mun fækka um að minnsta
kosti helming. Gangi spárnar eftir
mun mannfjöldinn í Kína þróast eftir
svipuðum línum, en þær gera ráð fyr-
ir að í stað um 1,4 milljarða manna
verði Kínverjar einungis um 730
milljónir árið 2100.
Á sama tíma mun mannfjöldinn í
ríkjum Afríku sunnan Sahara-eyði-
merkurinnar þrefaldast gangi spárn-
ar eftir, og fara úr um milljarði manna
upp í um þrjá milljarða. Samkvæmt
þeim spám verður mannfjöldinn í
Nígeríu um 790 milljónir manna árið
2100, sem myndi gera ríkið hið næst-
fjölmennasta í heimi á eftir Indlandi,
með um 1,1 milljarð manna.
Breytt aldursdreifing
En fólksfjöldatölurnar segja bara
hálfa söguna, þar sem aldurssam-
setning ríkjanna mun einnig breyt-
ast töluvert á næstu áttatíu árum,
gangi niðurstöður rannsóknarinnar
eftir.
Þannig er gert ráð fyrir að börnum
undir fimm ára aldri muni fækka úr
681 milljón árið 2017 í 401 milljón árið
2001. Á sama tíma verður meira en
fjórðungur allra jarðarbúa yfir 65 ára
aldri árið 2100, eða um 2,37 milljarðar
manns. Þar af verða 866 milljónir yfir
áttræðu, en þeir eru í dag um 140
milljónir.
Fyrirséð er að þessar breytingar
munu hafa gríðarleg áhrif á þau sam-
félög þar sem þeirra verður mest
vart, sér í lagi þar sem færri verða á
vinnualdri til þess að borga skatta og
halda þannig uppi hagvexti og þjón-
ustustigi hins opinbera.
Í Kína er til dæmis gert ráð fyrir að
um 350 milljónir manna verði á vinnu-
aldri árið 2100, en þeir eru nú um 950
milljónir. Á Indlandi mun fólki á
vinnualdri fækka úr um 762 milljón-
um manna, sem nú er, niður í 578
milljónir.
Ekki verða þó öll ríki fyrir barðinu
á þessari þróun, en rannsóknin gerir
ráð fyrir að í Nígeríu muni fólki á
vinnualdri fjölga úr 86 milljónum nú
og upp í rúmlega 450 milljónir manna
árið 2100.
Mikil áhrif á efnahaginn
Í rannsókninni er aftur reynt að
færa þessar breytingar á vinnuafla
ríkjanna yfir á hver líkleg þjóðar-
framleiðsla þeirra verði, og má búast
við nokkrum sviptingum.
Þannig hefur verið gert ráð fyrir að
þjóðarframleiðsla Kínverja muni taka
fram úr Bandaríkjamönnum á þessari
öld, og rannsóknin segir að það verði
raunin um árið 2035. Aftur á móti
þýði mannfjöldaþróunin að Kínverjar
muni aftur falla niður í annað sætið
árið 2098, og Bandaríkin þá aftur ná
forystunni sem stærsta hagkerfi
heims.
Í spálíkaninu er einnig gert ráð fyr-
ir að þjóðarframleiðsla Indverja muni
gera Indland að þriðja stærsta hag-
kerfi heimsins, en Japan, sem nú situr
í þriðja sæti, detti niður í það fjórða
fyrir árið 2100. Þýskaland, Frakkland
og Bretland fylgja svo í humátt á
eftir, en spárnar gera ráð fyrir að
þessi ríki verði áfram meðal tíu
stærstu hagkerfa heims.
Brasilía og Rússland, sem nú sitja í
áttunda og tíunda sæti, munu hins
vegar bæði gefa eftir á þeim lista og
enda í 13. og 14. sæti árið 2100, á sama
tíma og því er spáð að Nígería verði
með níunda stærsta hagkerfi heims-
ins árið 2100.
Og hvaða áhrif gæti þessi þróun
haft á alþjóðamál? Í rannsókninni er
nefnt að sumir sagnfræðingar séu á
þeirri skoðun að stærð tiltekins hag-
kerfis geti verið beintengd því hversu
mikil völd viðkomandi ríki hefur á al-
þjóðavettvangi. Höfundar rannsókn-
arinnar benda hins vegar á að þjóð-
arframleiðsla segi ekki alla söguna,
þótt hún hafi vissulega mikið að segja.
Hitt virðist þó víst að gangi allar
spár hennar eftir verði nokkuð um
sviptingar á alþjóðavettvangi og ríki
eins og Nígería og Indland muni jafn-
vel geta keppt við Bandaríkin og Kína
um áhrif og ítök í heiminum.
Spáð fyrir um sviptingar
Nýleg spá um mannfjöldaþróun í heiminum vekur athygli Breytt aldurs-
samsetning ríkjanna endurspeglast í efnahag Mun fleiri yfir áttræðu árið 2100
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
Ung kona lést þegar bátur lenti á
ísjaka og sökk úti fyrir Nuuk á
Grænlandi á laugardagskvöld. Sjö
voru í bátnum og voru allir fluttir á
sjúkrahús. Grunur leikur á að þeir
sem stjórnuðu bátnum hafi verið
undir áhrifum áfengis.
Fram kemur á fréttavefnum Ser-
mitsiaq að báturinn hafi verið á
mikilli ferð þegar hann lenti á jak-
anum.
Haft er eftir lögreglu að ekki
liggi ljóst fyrir hver stjórnaði bátn-
um þegar slysið varð en tekin hafi
verið blóðprufa úr tveimur ein-
staklingum sem séu grunaðir um að
hafa stýrt bátnum og verið undir
áhrifum áfengis. Hafi þeir verið
ákærðir fyrir manndráp af gáleysi.
GRÆNLAND
Ljósmynd/Ingvar Örn Ingvarsson
Grænland Frá Nuuk á Grænlandi.
Kona lést þegar
bátur rakst á ísjaka
Þriggja manna
fjölskylda, sem
kom með flugvél
til Færeyja á
laugardag,
reyndist smituð
af kórónuveir-
unni.
Fram kemur á
vef færeyska út-
varpsins að fólk-
ið, sem ekki er
frá Færeyjum, hafi verið sett í ein-
angrun og smitrakning sé hafin.
Á þriðja hundrað þúsund nýrra
tilfella kórónuveiru greinast nú
daglega á heimsvísu. Alls hafa rúm-
lega 14,5 milljónir manna um allan
heim greinst með kórónuveiruna,
flestir í Bandaríkjunum eða um 3,9
milljónir. Nærri 607 þúsund manns
hafa látist af völdum veirunnar en
nærri 8,7 milljónir hafa náð sér.
FÆREYJAR
Þrír greindust með
kórónuveirusmit
Skimað fyrir
kórónuveiru
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is