Morgunblaðið - 20.07.2020, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
Elsku afi Addi.
Þegar við hugsum
um þig færist yfir
okkur ró. Nærvera
þín var svo góð,
örugg. Það var sér-
stök yfirvegun sem fylgdi þér.
Þú varst afar fróður og við trúð-
um öllu sem þú sagðir. Allar sög-
urnar þínar og minningar frá ævi
þinni sem þú mundir upp á ná-
kvæma dagsetningu, veðurfar og
jafnvel tíma. Okkur leiddist aldr-
ei að sitja í eldhúsinu með ykkur
ömmu, við hlustuðum með að-
dáun á allar sögurnar þínar, allt
frá hetjudáðum til hversdags-
leikans. Allt var það jafn merki-
legt.
Þegar aðrir fjölskyldumeðlim-
ir kepptust við að tala sem mest
og hæst hélst þú alltaf þínu
striki, enda hlustuðu allir þegar
þú tókst til máls. Okkur fannst
alltaf svo merkilegt hversu
sterkur og kraftmikill þú varst.
Fimleikahetja og glímukappi.
Við dáðumst að sögunum frá því
þú varst að kenna í Framhalds-
skólanum á Laugum og vannst
alla í því að ganga á höndum upp
stigana. Við rembdumst líka við
að reyna að flagga eins og þú
gast enn gert kominn á sjötugs-
aldurinn og stólatrikkið fræga,
þetta hljómuðu allt eins og ýktar
hetjusögur en við trúðum þeim
samt.
Arngrímur
Geirsson
✝ Arngrímurfæddist 29. maí
1937. Hann lést 6.
júlí 2020. Útförin
fór fram 17. júlí
2020.
Það voru þó ekki
kraftar þínir eða
íþróttaafrek sem
okkur þótti tilkomu-
mest heldur var það
hversu góður þú
varst, hlýr og
traustur. Þú sýndir
okkar afrekum mik-
inn áhuga, fylgdist
vel með og varst
með á hreinu hvern-
ig okkur gekk. Ein-
staka brosið þitt, hestaferðirnar,
svörtu klossarnir, ljóðin, vísurn-
ar, danssporin, þorrablótin,
laufabrauðsdagarnir, jólaboðin,
reykti silungurinn …
En sérstaklega samband ykk-
ar ömmu. Hversu ástfanginn þú
varst af ömmu. Eins og þú sagðir
sjálfur: ástin sem alla tíð var
sterk og mikil varð meiri með ár-
unum sem þið áttuð saman. Sam-
band ykkar var einstakt, fallegt,
fullt af virðingu og vináttu. Það
er dýrmætt að hafa slíkar fyrir-
myndir í okkar lífi.
Takk fyrir allt, elsku afi. Við
söknum þín sárt en vitum að þú
fylgist áfram vel með okkur. Við
erum þakklát og stolt af því að
vera barnabörnin þín. Við höfum
lært svo mikið af þér og munum
reyna að taka þig til fyrirmyndar
í lífsins glímum.
Týnt hef ég hnífi mínum
troðið af mér skó
hallast ég á hestinum
en ríða verð ég þó.
(höf. ókunnur)
Elskum þig.
Arna Benný, Gígja Val-
gerður og Freyþór Hrafn.
✝ Jónasína Þór-ey Guðnadótt-
ir fæddist á Ísa-
firði 25. október
1935. Hún lést á
Droplaugarstöðum
30. júní 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Guðni
Marinó Bjarnason,
f. 27.3. 1881, d.
17.2. 1958, og
Ragnheiður Jónas-
dóttir, f. 28.4. 1904, d. 22.5.
1991. Jónasína eignaðist þrjú
börn: Guðnýju sem lést ung-
barn. Soninn Guðna Ragnar
Ólafsson, f. 6.9. 1963, d. 23.9.
1997. Faðir Guðna var Ólafur
Magnússon. Jónasína giftist
31.7. 1965 Sigurði Tómassyni,
f. 18.8 1933, d. 20.4. 1976.
Þeirra sonur er Njörður, f.
4.9. 1966, hann er búsettur í
Reykjavík. Synir Guðna eru
Björn Húnbogi og
Guðni Hávarður.
Birna Björns-
dóttir, barnsmóðir
Guðna, átti fyrir
börnin Sigrúnu og
og Kolbjörn og
eru synir Sigrún-
ar þeir Matthías
Leó og Björn
Bóas, kær
langömmubörn
Jónasínu.
Jónasína lauk Samvinnu-
skólanum í Reykjavík 1953,
síðan námi við Hjúkrunar-
kvennaskóla Íslands 1958 og
seinna framhaldsnámi við
Röntgendeild Landspítalans.
Starfsvettvangur hennar inn-
an hjúkrunar varð fjöl-
breyttur en síðast starfaði
hún á Eir, hjúkrunarheimili.
Útför hennar fór fram í
kyrrþey að hennar ósk.
Nú hefur hún Sína, okkar
kæra hollsystir kvatt þessa til-
vist. Við minnumst þess dags
þegar við hittumst, tilbúnar og
spenntar að takast á við nýja
tilveru sem var nám í hjúkrun
við Hjúkrunarkvennaskóla Ís-
lands árið 1955. Sá skóli var
þriggja ára/heilsársheimavista-
skóli með stuttum sumarfríum,
auk forskóla. Í byrjun var
heimavistin á þriðju hæð Land-
spítala og vorum við minnst
tvær, allt upp til fjórar í her-
bergi sem hafði þau áhrif að
margar okkar tengdust sterk-
um vináttuböndum. Í hjúkrun-
arnámi þessa skóla var ekki til
siðs að tala um bekkjarfélaga
heldur vorum við hollsystur, og
er okkur öllum sérlega kært
enn þann dag í dag. Sína var fé-
lagslynd og hafði mörg áhuga-
mál og tók þátt í hinum ýmsu
félögum og var m.a. félags-
starfið í Fella– og Hólakirkju
henni mjög mikilvægt. Sína
kom víða við á sínum starfsferli
og hafði ánægu af fjölbreyttum
starfsvettvangi innan hjúkrunar
og starfaði víðsvegar um landið
að sinni hjúkrun. Lífið fór ekki
ætíð mjúkum höndum um hana
Sínu en hún tókst ætíð á við
erfiðleikana á sinn hátt og gafst
ekki upp við að gera líf sitt og
sinna sem best hún gat. Á
seinni árum átti hún einnig við
að stríða heilsubrest en hún lét
það ekki aftra sér frá því að
ferðast og taka þátt í ýmsum
góðum samverustundum með
vinum eins og okkur holl-
systrum sínum og má þar nefna
mánaðarlegar samverustundir
okkar til fjölda ára, þar sem oft
er glatt á hjalla og skiptar skoð-
anir um hin ýmsu málefni og lét
Sína sitt ekki þar eftir liggja.
Við kveðjum hana með þessari
bæn.
Nú legg ég augun aftur
ó, guð þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mér að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt
(Sveinbjörn Egilsson)
Innilegustu samúðarkveðjur
til fjölskyldunnar frá hollsystr-
um hennar.
Fyrir hönd hollsystra:
Bjarney Tryggvadóttir,
Ólöf Hafliðadóttir og
Sólveig Guðlaugsdóttir.
Jónasína Þórey
Guðnadóttir
Vinkona kvödd
Það birtir að vori,
hvert blómstur nú
vaknar
og bráðum mun sólin reka myrkrið á
flótta
en hjarta mitt grætur og hugurinn
saknar
því höndin er köld og mín sál fyllist
ótta.
Þá man ég hlýju orðin þín, mildina
þína
og mannkærleikann, sem fyllti þitt
hjarta.
Ég brosi gegnum tárin, brátt mun sorg-
in dvína
og bjartar nætur vorsins lýsa myrkrið
svarta.
Við sjáumst ekki aftur, söngur þinn er
hljóður
en sálir okkar mætast í ljósinu’eins og
fyrrum.
Tíminn sem við áttum var tær hreinn
og góður
Valgerður
Marinósdóttir
✝ ValgerðurMarinósdóttir
fæddist 1. júní
1951. Hún lést 23.
júní 2020.
Útför Valgerðar
fór fram í kyrrþey.
tryggðaböndin ofin á
ljúfum stundum
kyrrum.
(Rut Gunnarsdóttir)
„Trúr vinur er öruggt
athvarf og auðugur er
sá sem finnur hann.“
(Sírak)
Nú er elsku Val-
gerður farin frá okk-
ur. Á einu og hálfu
ári hafa tvær úr hópi
okkar æskuvinkvenna kvatt. Við
þökkum Valgerði okkar gjöful og
ljúf kynni og tryggðabönd frá
unga aldri, æskuárin okkar góðu
á Akranesi og samverustundir
alla tíð. Við héldum hópinn og
hlúðum hver að annarri. Við
reyndum að hittast eins oft og
hægt var og var þá kátt á hjalla.
Réðu þá hláturinn, gleðin og vin-
arkærleikurinn ríkjum. Minning
þín lifir í hjörtum okkar. Elsku
Guðmundur, Guðbjörg Erla,
bræður og fjölskyldur, hjartans
samúðarkveðjur.
Hafdís Hákonardóttir, Krist-
rún Valtýsdóttir, Rún Elfa
Oddsdóttir, Sigrún Rafnsdótt-
ir, Sigurlaug Jóhannsdóttir,
Sigþóra Sigurjónsdóttir og
Sólveig Ásgeirsdóttir Hausler.
Ástkær móðir mín,
ÞURÍÐUR FREYSDÓTTIR
Rúrý
Sólbrekku 10, Húsavík,
lést þriðjudaginn 14. júlí.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju
miðvikudaginn 22. júlí klukkan 14.
Ágúst Örn Gíslason
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, kær
vinur, afi, og langafi,
HELGI JÓNSSON,
fyrrverandi bankaútibússtjóri,
sem andaðist á Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi þriðjudaginn 14. júlí, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 22. júlí klukkan 13.
Áslaug Helgadóttir Gunnar Guðmundsson
Jón Helgason Sigríður K. Valdimarsdóttir
Sigríður Helgadóttir Ólafur Þorsteinsson
Helgi Teitur Helgason Guðrún Hildur Pétursdóttir
Margrét Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
FINNFRÍÐUR B. HJARTARDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hólmavík
15. júlí.
Útför hennar fer fram frá Hólmavíkurkirkju
laugardaginn 25. júlí klukkan 14.
Gunnar Örn Númason
Rósmundur Númason Grazina Norkeviciene
Jónína Númadóttir Jón Logi Sigurbjörnsson
Hjörtur Númason Hafdís Gunnarsdóttir
Ingibjörg Númadóttir Vignir Helgi Sigurþórsson
Jóhann Víðir Númason Ragna Kristín Árnadóttir
Freyja Dís Númadóttir Valentínus G. Baldvinsson
Ólafur Freyr Númason Katrín Ágústa Thorarensen
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, sonur og tengdasonur,
GUNNAR M. ERLINGSSON,
löggiltur endurskoðandi,
Hæðarseli 14, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 11.
júlí umvafinn ástvinum sínum. Útförin fer
fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. júlí
klukkan 13.
Lilja Guðjónsdóttir
Kolbrún F. Gunnarsdóttir Sigurður Dagur Sigurðarson
Andri Örn Gunnarsson Dagný Jónsdóttir
Gunnar Örn Sigurðarson Björgvin Logi Sigurðarson
Lilja Kristín Sigurðardóttir Birkir Úlfar Sigurðarson
Kolbrún Gunnarsdóttir Erling J. Sigurðsson
Sigfríður Runólfsdóttir
systkini og fjölskyldur þeirra
Yndisleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ARNHEIÐUR ÁRNADÓTTIR,
Hraunbæ 103,
áður Glæsibæ 1,
lést á líknardeild Landspítalans 14. júlí.
Útförin verður miðvikudaginn 22. júlí klukkan 13 frá
Árbæjarkirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Theódór Óskarsson
Guðrún Theódórsdóttir Kristján Georg Björnsson
Óskar Theódórsson Katla Sveinbjörnsdóttir
Bryndís Theódórsdóttir Gísli Kristján Birgisson
Guðni G. og Arna María Kristjánsbörn
Theódór, Arnheiður Rós, Pétur og Pálmi Óskarsbörn
Hildur Sif, Theódóra og Hinrik Hjaltabörn
og barnabarnabörn
Kæra mamma,
eftir að hafa hjálpað
þér við að setja inn
minningargreinar
um ættingja og vini í blöðin í
gegnum tíðina, þá er þessi erfið-
ust, hún er um þig. Eftir alla þá
erfiðleika sem þú hefur gengið í
gegnum öll þessi ár og alltaf stað-
ið þá af þér, þá kom upp þessi
sjúkdómur í haust og hann var
óvinnandi, það var vitað frá byrj-
un, og af tveim slæmum kostum
tókst þú ákvörðun um að nú væri
nóg komið. Það þurfti hugrekki að
taka þessa ákvörðun, mig langaði
að malda í móinn, en varð að vera
sammála, það var engin önnur
leið. Ég reyndi ýmsar jurtatöflur
og fleira á þig til að hægja á þessu
ferli og kallaðir þú mig hómópat-
ann þinn en það tókst ekki hjá
mér.
Það er margs að minnast á leið
okkar saman gegnum lífið, en þú
varst kletturinn minn og hjálpaðir
mér mikið og oft. Þegar ég villtist
af leið þá vísaðir þú mér á réttu
brautina, sama hefur þú gert fyrir
börnin mín og sakna þau þín mik-
ið, kaffi hjá ömmu Dísu á sunnu-
dögum í Baldurshaganum var
fastur punktur og var jafnvel beð-
ið eftir því alla vikuna, því að þar
var bakkelsið ekki sparað.
Mér gengur ekki allt of vel að
skilja að þú sért farinn í þitt síð-
asta ferðalag og oft langar mig að
Þórdís Vilborg
Sigfúsdóttir
✝ Þórdís VilborgSigfúsdóttir
fæddist 10. septem-
ber 1936. Hún lést
22. júní 2020.
Útförin hefur
farið fram í kyrr-
þey.
taka upp síman og
hringja í þig og at-
huga stöðuna eða
kíkja í kaffi eftir
vinnu í Baldurshag-
ann, en þú ert ekki
þar lengur. Þú naust
þess að ferðast þessi
síðari ár og fannst
þér fínan ferða-
félaga, hann Edda,
sem stóð þétt við
hliðina á þér fram á
síðustu stund og kann ég Edda
ómetanlegar þakkir fyrir það.
Við náðum því að fara öll sam-
an til Calpe 2016 og halda uppá 80
árin þín þar, það var skemmtileg
ferð og langaði mig að fara aftur
með þér aftur í haust eitthvert er-
lendis, en af því verður víst ekki.
En með þessum fátæklegu orð-
um langar mig að þakka þér sam-
fylgdina öll þessi ár, sem verða þó
aldrei fullþökkuð, en nú ertu kom-
inn til pabba sem er búinn að
hinkra eftir þér í 11 ár og öll
systkinin þín, sem fóru flest of
snemma, tóku eflaust vel á móti
þér. Við fjölskyldan eigum
ógrynni af góðum minningum um
þig og njótum þeirra saman, en ég
sakna þín óskaplega.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir)
Þorgeir, Þórdís, Richard
(Rikki), Sigurjón, Daníel
Orri og Eydís Ósk.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgun-
blaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minn-
ingargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóð-
ina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar