Morgunblaðið - 20.07.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 20.07.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020 duka.is Einfalt að sníða sinn brúðargjafalista á duka.is Kartell Jellies matarstell Kahla Pronto matarstell Flora matarstell Aida RAW matarstell „EF ÞÚ GETUR EKKI HJÁLPAÐ MÉR AÐ SAFNA JURTUM SKALTU BARA SEGJA ÞAÐ. ÉG ÞARF EKKI FLÓKIÐ MYNDMÁL TIL ÚTSKÝRINGAR.” „KAFFIÐ KOSTAR 150 KRÓNUR FYRIR FYRSTA HÁLFTÍMANN OG SVO 75 KRÓNUR EFTIR ÞAÐ FYRIR HVERJA HÁLFA KLUKKUSTUND.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... koss vegna þess að þú elskar hann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIR! VAKNAÐU! ÞÚ ERT BÚINN AÐ SOFA Í ALLAN DAG! HA? ÞETTA VERÐUR GOTT ÁR! ÉG HEF EKKI REKIST Á MEÐEIGANDA ÞINN Í LENGRI TÍMA! HANN HEFUR EKKI VERIÐ HÉR EFTIR AÐ HANN TAPAÐI FJÁRDRÁTTARMÁLI … HANN VARÐI SIG SJÁLFUR! ÁI! steinn Einarsson, f. 16.9. 1960, for- stjóri Set ehf., maki: Hafdís Krist- jánsdóttir, f. 17.4. 1959, bóka- vörður; 2) Guðfinna Elín Einars- dóttir, f. 14.3. 1963, d. 29.12. 2013, tækniteiknari, maki: Einar Jóns- son f. 28.1. 1958, húsasmíðameist- ari og sölumaður hjá Húsasmiðj- unni; 3) Örn Einarsson, f. 16.2. 1966, framkvæmdastjóri hjá Set ehf., maki: Steinunn Fjóla Sigurð- ardóttir, f. 7.7. 1973, lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá umhverf- isráðuneytinu; 4) Sigrún Helga Einarsdóttir, f. 25.5. 1970, við- skiptafræðingur hjá Mast, maki: Sverrir Einarsson, f. 3.3. 1967, rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Selfossi. Barnabörn Einars og Sig- ríðar eru tólf og barnabarnabörnin eru ellefu. Albróðir Einars er Sigfús Þór Elíasson f. 31.1.1944, tannlæknir og prófessor emeritus, búsettur í Reykjavík. Sammæðra bróðir var Sigurbergur Hávarðsson f. 12.11. 1927, d. 30.8. 2015, útvarpsvirki í Vestmannaeyjum og iðnskóla- kennari í Reykjavík; samfeðra systkini voru Erna Kristín, f. 27.3. 1926, d. 17.4.2020, húsmóðir á Egilsstöðum og í Kópavogi, og Sigfús Ágúst f. 29.9. 1927, d. 4.11. 1948, sjómaður í Vestmanna- eyjum. Foreldrar Einars voru hjónin Guð- finna Einarsdóttir f. 22.7. 1906, d. 16.10. 1999, húsmóðir og verkakona í Vestmannaeyjum, og Elías Sigfús- son f. 17.3. 1900, d. 7.5. 1997, verka- maður og formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. Einar Pálmar Elíasson Magnús Árnason vinnumaður á Rangárvöllum og í Fljótshlíð Vilborg Jónsdóttir húskona á Kaldbak á Rangárvöllum Þórhildur Magnúsdóttir verkakona í Hafnarfirði Sigfús Þórðarson sjómaður í Hafnarfirði Elías Sigfússon verkamaður og formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja Þórunn Ólafsdóttir húsfreyja í Móhúsum Þórður Sigurðsson sjómaður í Móhúsum á Miðnesi Oddbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Bjarnastöðum Einar Einarsson sjómaður á Bjarna- stöðum á Álftanesi Einar Einarsson sjómaður á Mjóafirði Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Guðfinna Árnadóttir húsfreyja á Stuðlum Sigurður Finnbogason bóndi og sjómaður á Stuðlum í Norðfirði Úr frændgarði Einars Pálmars Elíassonar Guðfinna Einarsdóttir verkakona og húsmóðir í Vestmannaeyjum Áfimmtudag skrifaði Gunnar J.Straumland á Boðnarmjöð: „Kötturinn hefur gaman af því að slaka á í garðinum og horfa á fugla. „Bara horfa,“ segir hann og veifar Fuglavísi með fallegum litmyndum og fróðlegum upplýsingum um lífs- hætti fugla. Í morgun var hann í ró- legheitum að dást að syngjandi músarrindli, malandi með sjálfum sér, en „þá kom steypiregn og vatnið óx og óx.““ Mænandi á músabróðurinn mjálmandi rauk hann svo óður inn, en stoppaði að bragði og stóískur sagði: „Þetta er svo gott fyrir gróðurinn!“ Indriði á Skjaldfönn segir: „Lang- barðar og fleiri í vondum málum“: Úti á Langbarðalandi lífið er þyrnum stráð, vondslegur veirufjandi víkur þar ekki í bráð. Leggst hún á limi alla lungu og heilabú. Heilsu fer mjög að halla, hörðustu garpar falla. Staðan er sem sé sú. Jón Gissurarson bauð góðan dag- inn og sagði: „Eftir allnokkra rign- ingu undanfarna daga hefur sólin nú náð að víkja henni til hliðar um sinn og merlar nú Skagafjörðinn með fal- legum litum“: Nú skal hefja dagsins dund þó dignað hafi jörðin. Sólarinnar mæta mund merlar Skagafjörðinn. Jóhann frá Flögu segir frá því, að Jón Jónsson á Hafsteinsstöðum í Skagafirði hafi mætt í rétti móti presti, sem var nýkominn frá messu. Kastaði hann þá fram vísu þessari: Það er sómi þeirri stétt, þegar prestur stígur fram úr stólnum fyrir rétt, flækir mál og lýgur. Guðfríður Jónsdóttir húsfreyja í Múlakoti í Lundarreykjadal hafði oft þröngt í búi. Eitt sinn fór maður hennar með hest er Bleikalingur hét út á Skipaskaga (Akranes) og var búið þá bjargarlaust. Þá kvað Guð- ríður: Heyrðu, drottinn, sárt ég syng særð af hungri löngu: Sendu björg á Bleikaling börnunum mínum svöngu. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason yrkir: Ykkur það ég segi satt að svoddan er ég maður er hann rignir ofan í flatt ekki verð ég glaður! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af rigningu, ketti og músarrindli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.