Morgunblaðið - 20.07.2020, Page 26
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslandsmeistarar KR eru komnir
upp í toppsætið í Pepsi Max-deild
karla í fótbolta eftir 3:0-útisigur á
Fylki í gær. Var staðan markalaus í
hálfleik en KR-ingar voru sterkari
og var sigurinn verðskuldaður.
„KR-vélin virðist svo sannarlega
komin af stað. Vesturbæingar eru
svo ótrúlega vel skipulagðir og agaðir
í öllum sínum aðgerðum inni á vell-
inum að stundum virðist nær von-
laust að brjóta þá á bak aftur,“ skrif-
aði Kristófer Kristjánsson m.a. um
leikinn í umfjöllun sinni á mbl.is.
Óskar Örn Hauksson skoraði 77.
mark sitt í efstu deild og er hann í
14.-15. sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar ásamt Steven
Lennon.
Pablo Punyed er búinn að skora
fjögur mörk í fyrstu sex leikjunum,
en hann hefur aldrei áður skorað
meira en þrjú mörk á tímabili.
Ólafur Ingi Skúlason fékk ann-
að rauða spjald sitt á tímabilinu.
Ólafur var í þjálfarateymi Fylkis í
gær og fékk spjaldið eftir leik. Það
fyrra fékk hann í fyrstu umferðinni,
þá sem leikmaður.
Líður betur á útivelli
Valsmönnum líður greinilega mun
betur á útivöllum en heima á Hlíðar-
enda því liðið hefur unnið alla fjóra
útileiki sína eftir 2:1-sigur á Breiða-
bliki á Kópavogsvelli. Breiðablik hef-
ur nú leikið fjóra leiki í röð án sigurs
eftir þrjá sigurleiki í röð í byrjun
móts. Einar Karl Ingvarsson skoraði
sigurmarkið úr glæsilegri auka-
spyrnu á 81. mínútu, fjórum mín-
útum eftir að hann kom inn á sem
varamaður, og eru Valsmenn í öðru
sæti með 13 stig.
„Valsmenn mættu á Kópavogsvöll
í kvöld og létu svo sannarlega finna
fyrir sér. Þeir sköpuðu sér hættu-
legri færi í leiknum, sérstaklega í
fyrri hálfleik, og því auðvelt að rétt-
læta það að sigur þeirra hafi verið
sanngjarn,“ skrifaði Bjarni Helgason
m.a. um leikinn á mbl.is.
Thomas Mikkelsen hjá Breiða-
bliki hefur skorað sjö mörk í fyrstu
sjö umferðunum, eins og Óttar
Magnús Karlsson hjá Víkingi og eru
þeir markahæstir.
Blikinn Benedikt V. Warén spil-
aði fyrsta leik sinn í efstu deild er
hann kom inn á sem varamaður í
seinni hálfleik.
Markaveisla í Fossvogi
Það vantaði ekki fjörið í Fossvog-
inn þar sem Víkingur vann 6:2-
heimasigur á ÍA. Eftir hæga byrjun
hefur Víkingur nú unnið tvo leiki í
röð. Skagamenn eru búnir að vinna
þrjá leiki, tapa þremur og gera eitt
jafntefli í sjö leikjum.
„Skagamenn þurftu að taka
áhættu eftir að hafa lent 2:0 undir og
það hentaði Víkingum fullkomlega.
Þeir gátu sótt hratt á þá, sérstaklega
á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks
þegar þeir gerðu út um leikinn,“
skrifaði Víðir Sigurðsson m.a. í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Skagamaðurinn Benjamín Me-
hic var byrjunarliði ÍA og lék fyrsta
leik sinn í efstu deild. Kristall Máni
Ingason og Atli Barkarson hjá Vík-
ingi voru í fyrsta skipti í byrjunarliði
í efstu deild.
Eiður og Logi byrja vel
Eiður Smári Guðjohnsen og Logi
Ólafsson fara vel af stað með FH, en
þeir félagar tóku við liðinu af Ólafi
Kristjánssyni síðastliðinn fimmtu-
dag. FH vann öruggan 3:0-útisigur á
Fjölni í frumraun Eiðs Smára á
hliðarlínunni, en Logi er öllu reynd-
ari. Botnlið Fjölnis er eina liðið sem
ekki hefur fagnað sigri í sumar.
„Það hlýtur að gefa leikmönnum
FH kraft að spila fyrir mann eins og
Eið Smára Guðjohnsen og eru þeir
væntanlega allir staðráðnir í að
heilla eina mestu stórstjörnu ís-
lenska boltans frá upphafi,“ skrifaði
undirritaður m.a. um leikinn á
mbl.is.
Jónatan Ingi Jónsson er kominn
með þrjú mörk í sex leikjum í sumar,
en hann hafði skorað þrjú mörk í 35
leikjum í deildinni fyrir þetta tímabil.
Guðmann Þórisson fékk sjötta
rauða spjald sitt í efstu deild.
Arnar nagaði neglurnar
KA fer vel af stað undir stjórn
Arnars Grétarssonar og vann nýliða
Gróttu á heimavelli í fyrsta leik, 1:0.
Var sigurinn sá fyrsti hjá KA í
sumar. Með sigrinum fór KA upp úr
fallsæti og í 9. sæti en Grótta fór nið-
ur í næstneðsta sæti.
„Arnar hefur eflaust verið farinn
að naga neglur undir lokin þegar
leikurinn stefndi í markalaust jafn-
tefli. KA skoraði sigurmarkið á 90.
mínútu og gat því Blikinn geðprúði
fagnað sigri í sínum fyrsta leik,“
skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. um
leikinn á mbl.is.
Steinþór Freyr Þorsteinsson
skoraði annað mark sitt fyrir KA í
deildinni, en það fyrra kom árið 2018.
Jibril Abubakar hjá KA og Kier-
an McGrath hjá Gróttu léku fyrstu
leiki sína í efstu deild hér á landi þeg-
ar þeir komu inn á undir lok leiksins.
Íslandsmeistararnir á
kunnuglegum slóðum
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Færi Daninn Patrick Pedersen hjá Val í færi á Kópavogsvelli í gærkvöldi.
Anton Ari Einarsson í marki Breiðabliks er til varnar.
KR-ingar aftur í toppsætið Víkingar skoruðu sex Sterkur útisigur Vals
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
Fjölnir – FH.............................................. 0:3
KA – Grótta............................................... 1:0
Fylkir – KR............................................... 0:3
Víkingur R. – ÍA ....................................... 6:2
Breiðablik – Valur .................................... 1:2
Staðan:
KR 6 5 0 1 11:5 15
Valur 7 4 1 2 15:7 13
Fylkir 7 4 0 3 11:9 12
Breiðablik 7 3 2 2 14:11 11
Víkingur R. 7 3 2 2 14:11 11
Stjarnan 4 3 1 0 10:3 10
ÍA 7 3 1 3 17:14 10
FH 6 3 1 2 13:12 10
KA 6 1 3 2 6:10 6
HK 7 1 2 4 12:19 5
Grótta 7 1 1 5 7:17 4
Fjölnir 7 0 2 5 5:17 2
Lengjudeild karla
Þór – ÍBV .................................................. 1:1
Leiknir F. – Vestri ................................... 0:1
Leiknir R. – Magni ................................... 2:1
Staðan:
ÍBV 6 4 2 0 12:5 14
Keflavík 6 4 1 1 20:8 13
Leiknir R. 6 4 1 1 14:9 13
Fram 6 4 1 1 11:8 13
Þór 6 3 1 2 9:7 10
Vestri 6 3 1 2 5:5 10
Afturelding 6 3 0 3 16:9 9
Grindavík 6 2 3 1 11:10 9
Víkingur Ó. 6 2 0 4 6:12 6
Leiknir F. 6 2 0 4 5:11 6
Þróttur R. 6 0 0 6 1:12 0
Magni 6 0 0 6 3:17 0
2. deild karla
Kórdrengir – Völsungur .......................... 4:1
3. deild karla
Höttur/Huginn – Elliði ............................ 2:1
KFG – Einherji......................................... 1:3
Ægir – Tindastóll ..................................... 1:1
Sindri – KV ............................................... 2:1
Pepsi Max-deild kvenna
Selfoss – Þór/KA ...................................... 2:1
Staðan:
Valur 6 5 1 0 18:3 16
Breiðablik 4 4 0 0 15:0 12
Selfoss 6 3 1 2 8:5 10
Fylkir 4 2 2 0 7:4 8
Þór/KA 5 2 0 3 9:10 6
Stjarnan 6 2 0 4 8:14 6
Þróttur R. 5 1 2 2 8:9 5
FH 5 1 0 4 2:10 3
ÍBV 5 1 0 4 5:15 3
KR 4 1 0 3 4:14 3
2. deild kvenna
Álftanes – HK ........................................... 1:7
Fjarðab/Höttur/Leiknir – Hamar .......... 2:1
ÍR – Hamrarnir ........................................ 1:1
Sindri – Fram ........................................... 3:0
England
Norwich – Burnley.................................. 0:2
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrsta
klukkutímann með Burnley.
Bournemouth – Southampton................. 0:2
Tottenham – Leicester ............................ 3:0
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Arsenal – Manchester City ..................... 2:0
Manchester United – Chelsea................. 0:3
B-deild:
QPR – Millwall ......................................... 4:3
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 11. mínútu hjá Millwall.
Ítalía
AC Milan – Bologna................................. 5:1
Andri Fannar Baldursson kom inn á sem
varamaður á 60. mínútu hjá Bologna.
Úkraína
Kolos Kovalivka – Dynamo Kiev ........... 2:0
Árni Vilhjálmsson kom inn á sem vara-
maður hjá Kolos og skoraði annað markið.
Tyrkland
Rizespor – Yeni Malatyaspor................. 3:0
Viðar Örn Kjartansson kom inn á sem
varamaður á 38. mínútu hjá Yeni Malatya-
spor.
Bandaríkin
Houston Dash – Utah Royals......... 3:2 (0:0)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kom inn á
sem varamaður á 14. mínútu hjá Utah.
Danmörk
FC Köbenhavn – AGF ............................. 2:4
Ragnar Sigurðsson lék ekki með FCK
vegna meiðsla.
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 70
mínúturnar með AGF.
OB – Randers ........................................... 2:0
Aron Elís Þrándarson lék seinni hálfleik-
inn með OB.
Svíþjóð
Sirius – Norrköping ................................ 4:2
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping.
Umeå – Rosengård .................................. 0:3
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Uppsala ........................... 2:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék fyrstu 65
mínúturnar með Kristianstad. Elísabet
Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Uppsala.
BREIÐABLIK – VALUR 1:2
0:1 Kristinn Freyr Sigurðsson 46.
1:1 Thomas Mikkelsen (víti) 49.
1:2 Einar Karl Ingvarsson 81.
M
Thomas Mikkelsen (Breiðabliki)
Brynjólfur A. Willumsson (Breiðab.)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Kwame Quee (Breiðabliki)
Hannes Þór Halldórsson (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Valgeir Lunddal Friðriksson (Val)
Einar Karl Ingvarsson (Val)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 6.
Áhorfendur: 1621.
VÍKINGUR R. – ÍA 6:2
1:0 Óttar Magnús Karlsson (víti) 23.
2:0 Davíð Örn Atlason 37.
2:1 Stefán Teitur Þórðarson 41.
3:1 Nikolaj Hansen 50.
4:1 Erlingur Agnarsson 52.
4:2 Hlynur Sævar Jónsson 59.
5:2 Ágúst Eðvald Hlynsson 66.
6:2 Ágúst Eðvald Hlynsson 78.
MM
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
M
Kári Árnason (Víkingi)
Atli Barkarson (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Stefán Teitur Þórðarson (ÍA)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: Um 1.000.
FYLKIR – KR 0:3
0:1 Pablo Punyed 50.
0:2 Óskar Örn Hauksson 57.
0:3 Tobias Thomsen 80.
M
Arnór Gauti Jónsson (Fylki)
Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki)
Sam Hewson (Fylki)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Beitir Ólafsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Pablo Punyed (KR)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6
Áhorfendur: 2020.
FJÖLNIR – FH 0:3
0:1 Jónatan Ingi Jónsson 6.
0:2 Steven Lennon 44.
0:3 Jónatan Ingi Jónsson 86.
M
Gunnar Nielsen (FH)
Daníel Hafsteinsson (FH)
Steven Lennon (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Sigurpáll Melberg Pálsson (Fjölni)
Arnór Breki Ásþórsson (Fjölni)
Christian Sivebæk (Fjölni)
Rautt spjald: Guðmann Þórisson (FH)
85.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 8.
Áhorfendur: Um 700.
KA – GRÓTTA 1:0
1:0 Steinþór Freyr Þorsteinsson 90.
M
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA)
Kristófer Melsted (Gróttu)
Arnar Þór Helgason (Gróttu)
Axel Sigurðarson (Gróttu)
Pétur Theódór Árnason (Gróttu)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 6.
Áhorfendur: 785.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Peysutog KR-ingurinn Finnur Orri Margeirsson og Ásgeir Eyþórsson,
fyrirliði Fylkis, eigast við á Würth-vellinum í Árbænum í gærkvöldi.