Morgunblaðið - 20.07.2020, Blaðsíða 27
SUND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Tíu met litu dagsins ljós á Íslands-
mótinu í 50 metra laug í sundi í
Laugardalslaug um helgina. Fimm
þeirra komu í gær og fimm á laugar-
dag.
Boðsundssveit Sundfélags
Hafnarfjarðar sló eigið met í 4x50
metra skriðsundi í blönduðum
flokki. Jóhanna Elín Guðmunds-
dóttir, Símon Elías Statkevicius,
Dadó Fenrir Jasminuson og Stein-
gerður Hauksdóttir skipuðu sveit-
ina, sem synti á 1:39,16 mínútum, en
gamla metið var 1:39,95 og var sett í
mars 2019. Hjörtur Ingvarsson úr
Firði setti Íslandsmet í flokki S5 í
100m baksundi á tímanum 1:47,16.
Gamla metið var 1:49,91 frá árinu
2018.
Sonja Sigurðardóttir úr ÍFR setti
met í flokki S4 í 100 m skriðsundi.
Hún synti á tímanum 2:13,04. Metið
var 2:15,73.
Í síðustu grein mótsins bætti sveit
SH piltametið í 4x100 m fjórsundi en
þeir syntu á tímanum 4:07,25 og
bættu þar 8 ára gamalt met ÍRB
sem var 4:16,12. Sveitina skipuðu
þeir Veigar Hrafn Sigþórsson,
Snorri Dagur Einarsson, Símon Elí-
as Statkevicius og Daði Björnsson.
Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH
sló eigið drengjamet í 50 metra bak-
sundi þegar hann endaði í öðru sæti
á tímanum 29,16 sekúndur en gamla
metið var 29,28 sekúndur frá janúar
á þessu ári. Hann bætti sömuleiðis
sjö ára gamalt met í 400 metra fjór-
sundi er hann synti á 4:47,90 mín-
útum og 50 metra flugsundi með
tímanum 26,39 sekúndur. Þá bætti
Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr ÍBR
sitt eigið meyjamet í 50 metra flug-
sundi er hún synti á tímanum 32,35
sekúndum en gamla metið hennar
var 32,77 sekúndur sem hún setti í
febrúar.
Sveit SH í 4x100 metra skriðsundi
setti piltamet þegar hún synti á tím-
anum 3:42,00 mínútu. Sveitina skip-
uðu þeir Símon Elías Statkevicius,
Daði Björnsson, Veigar Hrafn Sig-
þórsson og Snorri Dagur Einarsson.
Gamla metið átti sveit Ægis frá
árinu 2017 sem synti á 3:45,89.
Þá bætti Róbert Ísak Jónsson Ís-
landsmetið í fötlunarflokki S14 í 200
m flugsundi en hann synti á 2:16,08.
Gamla metið var 2:25,93.
Anton vann fjórum sinnum
Karen Mist Arngeirsdóttir kom
fyrst í mark í þremur greinum á
mótinu og Kristín Helga Hákonar-
dóttir sigraði sömuleiðis í þremur
greinum og lenti einu sinni í öðru
sæti, eins og Patrik Viggó Vilbergs-
son. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
kom fyrst í mark í öllum fjórum
greinum sínum á mótinu og Anton
Sveinn McKee vann allar fjórar
greinarnar sem hann tók þátt í, en
Anton er eini íslenski íþróttamaður-
inn sem hefur tryggt sér sæti á
Ólympíuleikunum í Tókýó.
Tíu met í Laugardalslauginni
Sterkir keppendur á Íslandsmótinu í 50 metra laug í Laugardalnum
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Bringusund Anton Sveinn McKee á fleygiferð í lauginni í Laugardalnum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2020
Körfuknattleiksmaðurinn Tómas
Þórður Hilmarsson hefur samið við
Aquimisa Carbajosa á Spáni. Leikur
liðið í C-deild spænska körfuboltans.
Tómas hefur leikið með Stjörnunni
allan ferilinn og verið viðloðandi
landsliðið síðustu ár.
Nigel Pearson hefur verið rekinn
úr starfi knattspyrnustjóra hjá Wat-
ford, sem leikur í ensku úrvalsdeild-
inni. Aðeins tvær umferðir eru eftir af
tímabilinu en Watford er rétt fyrir of-
an fallsæti. Watford situr í 17. sæti
með 34 stig, þremur stigum fyrir ofan
fallsæti, en tvær umferðir eru eftir af
tímabilinu. Liðið mætir Manchester
City á morgun og svo Arsenal í loka-
umferðinni um næstu helgi.
Lewis Hamilton bar sigur úr býtum
í ungverska kappakstrinum í Formúlu
1 í gær og hefur hann unnið tvær
keppnir af þrjár á tímabilinu, en hann
keyrir fyrir Mercedes.
Bikarmeistarar Skallagríms hafa
samið við miðherjann Nikita Teles-
ford um að leika með liðinu á Íslands-
mótinu í körfuknattleik kvenna í vetur
en Telesford kemur beint úr kanad-
íska háskólaboltanum. Telesford er 23
ára og 189 sentímetrar en hún er
uppalin í Toronto í Kanada. Á síðustu
leiktíð spilaði hún með Concordia í
kanadíska háskólaboltanum þar sem
hún skoraði 11,5 stig og tók 7,8 frá-
köst að meðaltali í leik. Áður spilaði
hún í þrjú ár í Bandaríkjunum.
Albert Ólafsson, Anna María Al-
freðsdóttir, Izaar Arnar Þorsteinsson
og Guðbjörg Reynisdóttir unnu Ís-
landsmeistaratitla á Íslandsmótinu í
bogfimi utanhúss á laugardag, en
keppt var í berboga og trissuboga í
hávaðaroki á Víðistaðatúni í Hafnar-
firði. Hefur Guðbjörg staðið uppi sem
sigurvegari síðustu þrjú ár.
Knattspyrnufólkið Kristinn Stein-
dórsson og Bergþóra Sól Ásmunds-
dóttir hafa framlengt samninga sína
við Breiðablik. Gerðu þau bæði samn-
ing sem gildir til loka tímabils 2022.
Knattspyrnumaðurinn Andri Fann-
ar Baldursson mun skrifa undir fimm
ára samning við ítalska A-deildar-
félagið Bologna á
næstu dögum.
Andri, sem er 18
ára, lék fyrsta leik
sinn með Bologna
gegn Udinese í
febrúar og hefur
fimm sinnum
komið inn á
sem varamaður
í deildinni, síð-
ast gegn AC
Mílan á laugar-
dag, þar sem
hann lék í
rúman hálf-
tíma.
Eitt
ogannað
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – ÍBV ............................... 18
Meistaravellir: KR – Þróttur R........... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Stjarnan ......... 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Augnablik........ 19.15
Í KVÖLD!
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir vann öruggan sig-
ur í Hvaleyrarbikarnum í golfi í
Hafnarfirði í gær. Lék hún tvo
hringi á þremur höggum undir pari
og var fimm höggum á undan
Huldu Clöru Gestsdóttur, sem varð
önnur. Ragnhildur Kristinsdóttir
varð þriðja. Hákon Örn Magnússon
vann eftir spennandi keppni í karla-
flokki. Lék hann hringina tvo á
fjórum höggum undir pari og var
einu höggi á undan Guðmundi
Rúnari Hallgrímssyni, sem varð í
öðru sæti.
Íslandsmeistar-
inn í sérflokki
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistari Guðrún Brá Björgvins-
dóttir bar sigur úr býtum.
Alls voru sjö mótsmet slegin á ung-
lingameistaramóti Íslands í frjáls-
íþróttum sem fram fór í Kaplakrika
um helgina. Efnilegasta frjáls-
íþróttafólk landsins tók þátt og setti
Tiana Ósk Whitworth mótsmet í 200
hlaupi stúlkna 20-22 ára er hún
hljóp á 24,58 sekúndum. Þá stökk
Viggó Sigurfinnsson 2 metra í há-
stökki og sló mótsmetið í flokki 17-
18 ára. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir,
ein efnilegasta frjálsíþróttakona
landsins, vann 100 og 200 metra
hlaup 18-19 ára. Frekari úrslit af
mótinu má nálgast á mbl.is/sport.
Sjö mótsmet í
Kaplakrika
Morgunblaðið/Sigurður Ragnars
Fyrst Tiana Ósk Whitworth kemur
fyrst í mark í Kaplakrika.
Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal
leiða saman hesta sína í úrslitum
enska bikarsins í fótbolta 1. ágúst
næstkomandi eftir sigra í undan-
úrslitum á Wembley um helgina.
Chelsea er á leiðinni í 14. bikarúr-
slitaleik sinn eftir 3:1-sigur á Man-
chester United í gær. Oliver Giroud
og Mason Mount skoruðu fyrir
Chelsea og þriðja markið var sjálfs-
mark. Bruno Fernandes lagaði stöð-
una fyrir United úr vítaspyrnu. Varð
Chelsea síðast bikarmeistari árið
2018 eftir sigur á United í úrslitum.
Arsenal er á leiðinni í 21. bikar-
úrslitaleik sinn, en ekkert félag
hefur eins oft komist í úrslit. Ars-
enal hefur unnið enska bikarinn
þrettán sinnum, oftast allra. Ars-
enal vann 2:0-sigur á Manchester
City á laugardag, en Pierre-
Emerick Aubameyang skoraði
bæði mörkin. Hefur hann skorað
25 mörk í 41 leik fyrir Arsenal á
leiktíðinni og er markahæstur hjá
liðinu. Arsenal varð síðast bikar-
meistari árið 2017 eftir sigur á
Chelsea, 2:1.
AFP
London Olivier Giroud fagnar marki sínu gegn Manchester United í gær.
Lundúnaliðin mæt-
ast í bikarúrslitum
Selfoss er komið upp í þriðja sæti í
Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta
eftir 2:1-heimasigur á Þór/KA í
gær. María Catharina Ólafsdóttir
Gros kom Þór/KA yfir á 21. mín-
útu með öðru marki sínu í sumar
og þriðja marki sínu í deildinni.
Gerði hún eitt mark í átta leikj-
um á síðustu leiktíð. Var staðan í
hálfleik 1:0, en Harpa Jóhanns-
dóttir í marki Þórs/KA varði víti
frá Dagnýju Brynjarsdóttur um
miðjan fyrri hálfleik.
Það kom ekki að sök fyrir Sel-
foss því Magdalena Anna Remus og
Tiffany McCarthy sneru taflinu við
snemma í seinni hálfleik og Selfoss
fagnaði þriðja sigri sínum í sumar.
Magdalena hefur nú skorað þrjú
mörk í sex leikjum í sumar, jafn-
mörg og hún skoraði í átján leikj-
um á síðustu leiktíð. McCarty er
komin með tvö mörk í sumar, á
fyrsta tímabili sínu hér á landi.
Selfoss er með tíu stig, sex stig-
um minna en topplið Vals. Fylkir
getur tekið þriðja sætið af Selfossi
á nýjan leik með sigri á Stjörnunni
á heimavelli í kvöld. Þór/KA er
með sex stig, en liðið hefur nú tap-
að þremur leikjum í röð eftir tvo
sannfærandi sigra í fyrstu tveimur
umferðunum.
„Þó að eins marks forskot sé
ekki þægilegur veruleiki fyrir Sel-
fyssinga virtust Akureyringar
aldrei líklegir til þess að jafna
metin. Selfyssingar voru nær því
að bæta við marki en allt kom fyrir
ekki,“ skrifaði Guðmundur Karl
Sigurdórsson m.a. um leikinn á
mbl.is.
Selfyssingar fóru
upp í þriðja sætið
SELFOSS – ÞÓR/KA 2:1
0:1 María C. Ólafsdóttir Gros 21.
1:1 Magdalena Anna Reimus 53.
2:1 Tiffany McCarty 57.
M
Clara Sigurðardóttir (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsd. (Selfossi)
Dagný Brynjarsdóttir (Selfossi)
Magdalena Anna Reimus (Selfossi)
Anna Björk Kristjánsd. (Selfossi)
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
María Ólafsdóttir Gros (Þór/KA)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 6.
Áhorfendur: 285.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.