Morgunblaðið - 10.08.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.08.2020, Blaðsíða 13
Fjöldi daglegra kórónuveirusmita á heimsvísu Frá 1. mars til 6. ágúst 320.000 256.000 192.000 128.000 64.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 19.141.627 smit alls 715.802 dauðsföll alls Heimild: Johns Hopkins CSSE Staðfest smit Dauðsföll Dauðsföll Síðastliðinn fimmtudag voru skráð 285.196 ný kórónuveirusmit í heim- inum. Til samanburðar greindust mest 290.100 smit hinn 31. júlí, skv. vef Johns Hopkins-háskóla. Útbreiðsla faraldursins jafnast því næstum á við það að þrír af hverjum fjórum Íslendingum myndu veikjast á einum degi. Alls voru skráð 6.516 dauðsföll vegna veirunnar í heiminum á fimmtudaginn en mest voru skráð 9.973 dauðsföll 23. júlí síðastliðinn. Samanlagt höfðu 19,141 milljón smita greinst í heiminum og alls um 716 þúsund höfðu látist. Til samanburðar er áætlað að ein til fjórar milljónir manna hafi látist af völdum „Hong Kong-flensunnar“ árin 1968-70 (veiran H3N2). Þetta kemur fram í skýrslu Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar sem dagsett er 5. maí 2011. Áður gengu spænska veikin 1918- 19 og Asíuflensan 1957-58 en tugir milljóna létust úr þeirri fyrrnefndu. Jafnast á við Ísland á rúmum sólarhring Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kórónuveiran er enn að breiðast sem eldur í sinu um fjölmenn ríki og því útlit fyrir enn fleiri dauðsföll. Á fimmtudaginn var greindust 59.692 kórónuveirusmit í Bandaríkj- unum og voru 1.250 dauðsföll. Til samanburðar létust mest 2.666 af völdum veirunnar í Bandaríkjunum hinn 17. apríl. Með hliðsjón af fjölda nýrra smita er útlitið dökkt í ágúst. Þetta kemur fram á vef Johns Hopkins-háskóla um veiruna. Næst á eftir kom Brasilía en sama dag létust þar 1.237 af völdum veir- unnar og 53.139 smit voru greind. Indland er í þriðja sæti yfir fjölda smita. Þar létust 886 á fimmtudaginn var og 62.538 smit voru greind. Rússland er í fjórða sæti en þar létust 114 vegna veirunnar þennan sama dag og 5.239 smit voru greind. Svo kemur Suður-Afríka en þar voru 306 dauðsföll vegna veirunnar og 8.307 smit á fimmtudaginn var. Mexíkó er í sjötta sæti yfir fjölda smita en þar létust 819 á fimmtudag- inn var og 6.590 smit greindust. Á öðrum stað í faraldrinum Ferðamálastofa áætlaði að 63 þús- und erlendir ferðamenn kæmu til landsins í ágúst og þar af margir frá Spáni, Frakklandi og Ítalíu. Þessi ríki eru á öðrum stað í far- aldrinum en fyrstnefndu ríkin sex. Fyrsta bylgjan var gengin yfir og byrjað var að opna samfélögin þegar önnur bylgjan kom nú síðsumars. Síðastliðinn þriðjudag létust 26 á Spáni og greindust 4.088 smit á fimmtudaginn var. Nýrri tölur um dauðsföll voru ekki aðgengilegar á vef háskólans um hádegi á föstudag, þegar þessi pistill var tekinn saman. Á Ítalíu voru sex dauðsföll og 401 smit á fimmtudaginn var. Sama dag létust 11 vegna veirunnar í Frakk- landi og 2.734 smit greindust. Mun fleiri smit greinast því á Frakklandi og Spáni en á Ítalíu þessa dagana. En það kann aftur að hafa áhrif á fjölda ferðamanna sem koma þaðan til Íslands næstu vikur. Þá þarf ekki að hafa mörg orð um að útbreiðsla veirunnar í Banda- ríkjunum þýðir að enn ólíklegra er en áður að íslensk ferðaþjónusta geti sótt á þann markað í bráð. Loks má nefna að vel á aðra millj- ón smita höfðu samanlagt greinst í Perú (455.409 smit), Síle (366.671 smit) og Kólumbíu (357.710 smit). Þar greindust 7.785, 1.948 og 11.996 smit á fimmtudaginn var, í þessari röð, og þann dag dóu 196, 97 og 315 úr veirunni í þessum löndum. Argentína er ekki langt undan. Þar greindust 7.513 smit og 145 lét- ust. Eru smitin rúmlega 228 þúsund. Athygli vekur að smitum hefur fjölgað verulega í Venesúela en smit- in eru orðin um 23.300. Misjafnt er hversu vel er skimað fyrir veirunni. Veiran herjar á mörg stærstu ríkin  Alls rúmlega 175 þúsund smit greindust í Bandaríkjunum, Brasilíu og Indlandi á fimmtudaginn var  Kórónuveiran er aftur komin á kreik á Spáni og í Frakklandi en greinist nú í minna mæli á Ítalíu Fjöldi daglegra kórónuveirusmita í nokkrum löndum frá 1. mars til 6. ágúst Heimild: Johns Hopkins CSSE Spánn 47 milljónir íbúa 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 4.088 ný smit 6. ágúst 309.855 smit alls 28.500 dauðsföll alls Rússland 144 milljónir íbúa 13.000 10.400 7.800 5.200 2.800 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 5.239 ný smit 6. ágúst 875.378 smit alls 14.698 ný smit Bandaríkin 324 milljónir íbúa 80.000 64.000 48.000 32.000 16.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 59.692 ný smit 6. ágúst 4.884.406 smit alls 160.115 dauðsföll alls Ítalía 60 milljónir íbúa 7.000 5.600 4.200 2.800 1.400 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 401 nýtt smit 6. ágúst 249.204 smit alls 35.187 dauðsföll alls Suður-Afríka 53 milljónir íbúa 15.000 12.000 9.000 6.000 3.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 8.307 ný smit 6. ágúst 538.184 smit alls 9.604 dauðsföll alls Mexíkó 127 milljónir íbúa 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 6.590 ný smit 6. ágúst 462.690 smit alls 50.517 dauðsföll alls Brasilía 206 milljónir íbúa 75.000 60.000 45.000 30.000 15.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 53.139 ný smit 6. ágúst 2.912.212 smit alls 98.493 dauðsföll alls Indland 1.353 milljónir íbúa 65.000 52.000 39.000 26.000 13.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 62.538 ný smit 6. ágúst 2.027.074 smit alls 41.584 dauðsföll alls Frakkland 67 milljónir íbúa 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í 2.734 ný smit 6. ágúst 231.310 smit alls 30.308 dauðsföll alls FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2020 Við erum sérfræðingar í malbikun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.